Skýrsla um stöðu og stefnu í loftslagsmálum 2.3.2017

Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.

Í skýrslunni er farið yfir alþjóðlegar skuldbindingar Íslands í loftslagsmálum, sem er að finna í Kýótó-bókuninni og Parísarsamningnum, auk Evrópureglna á grunni EES-samningsins. Ísland hefur tilkynnt sitt framlag til Parísarsamningsins um að vera með í sameiginlegu markmiði 30 ríkja ...

Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.

Í skýrslunni er farið yfir alþjóðlegar skuldbindingar Íslands í loftslagsmálum, sem er að finna í Kýótó-bókuninni og Parísarsamningnum, auk ...

Norræna umhverfismerkið Svanurinn.Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.

Norræna umhverfismerkisnefndin gefur út reglur um umhverfisvottun Svansins og endurspeglar reglugerðin norrænu reglurnar. Skyldur umsækjenda um leyfi til að nota umhverfismerki eru gerðar skýrari en helstu breytingar ...

Björt Ólafsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra ávarpaði gesti á málþinginu.

Björt Ólafsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra, ávarpaði í gær málþingið „Green to Scale“ í Norræna húsinu þar sem kynntar voru norrænar loftslagslausnir sem dregið geta úr losun gróðurhúsalofttegunda á heimsvísu.

Norræna „Green to Scale“ verkefnið var kynnt á Loftlagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Marrakech (COP22) í nóvember síðastliðnum. Á málþinginu kom fram að með því að beita 15 norrænum loftslagslausnum, sem þegar ...

Steinar KaldalSteinar Kaldal og Þórunn Pétursdóttir hafa verið ráðin aðstoðarmenn Bjartar Ólafsdóttur, umhverfis- og auðlindaráðherra. Þau hefja störf í næstu viku.

Síðastliðin ár hefur Steinar unnið sem verkefnisstjóri hálendisverkefnis Náttúruverndarsamtaka Íslands og Landverndar sem er samvinnuverkefni náttúruverndarsamtaka, útivistarsamtaka og Samtaka ferðaþjónustunnar og snýr að vernd miðhálendisins. Steinar er jafnframt formaður FUMÍ, félags umhverfisfræðinga á Íslandi.

Steinar er með stúdentspróf frá Menntaskólanum ...

Björt Ólafsdóttir tók við embætti umhverfis- og auðlindaráðherra á ríkisráðsfundi í dag, miðvikudaginn 11. janúar 2017. Fráfarandi ráðherra, Sigrún Magnúsdóttir, afhenti henni lyklana að ráðuneytinu síðdegis.

Björt var kosin alþingismaður fyrir Bjarta framtíð í Reykjavíkurkjördæmi norður árið 2013.

Sigrún Magnúsdóttir, fráfarandi ráðherra, afhenti Björtu Ólafsdóttur, umhverfis- og auðlindaráðherra lyklana að ráðuneytinu. Lyklakippan skartar Djúpalónsperlu og leysir af hólmi lyklakippuna sem Össur Skarphéðinsson afhenti Guðmundi Bjarnasyni árið 1995 og var með áfastri rjúpnakló.Hún er fædd 2. mars 1983. Eiginmaður hennar er Birgir Viðarsson verkfræðingur og eiga þau þrjú börn. Björt lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum ...

Umhverfis- og auðlindaráðherra ávarpaði loftslagsfund Sameinuðu þjóðanna í Marrakech í Marokkó í kvöld.Nú er kominn tími til að efna loforð Parísarsamningsins í loftslagsmálum, sagði Sigrún Magnúsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra í ræðu sinni í dag á loftslagsfundi Sameinuðu þjóðanna í Marrakech í Marokkó. Allir þyrftu þar að leggja lóð á vogarskálarnar: stjórnvöld, atvinnulíf, vísindaheimurinn og almenningur. Nýsköpun í loftslagsvænni tækni og lausnum væri nauðsynleg til að ná settu marki.

Fundurinn í Marrakech er ...

GullfossUmhverfis- og auðlindaráðuneytið óskar, í samvinnu við forsætisráðuneytið, atvinnu- og nýsköpunarráðuneytið og Samband íslenskra sveitarfélaga, eftir umsögnum um drög að áætlun um uppbyggingu innviða á ferðamannastöðum, um land allt, til verndar náttúru og menningarminjum. Í áætluninni er sett fram forgangsröðun verkefna sem lagt er til að ráðist verði í á árinu 2017, í samræmi við bráðabirgðaákvæði laga sem Alþingi samþykkti ...

Sigrún Magnúsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra, Árni Bragason landgræðslustjóri og Þröstur Eysteinsson skógræktarstjóri skrifuðu í dag undir fimm ára samning um áframhaldandi endurheimt Hekluskóga.  Árleg fjárveiting til verkefnisins er 27,5 milljónir.

Stofnað var til Hekluskóga árið 2007. Meginmarkmið verkefnisins nú sem þá er að byggja upp skóga og kjarrlendi með birki og öðrum tegundum til að græða land og verjast ...

Sigrún Magnúsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra, tók fyrstu skóflustunguna að nýrri þjóðgarðsmiðstöð fyrir Þjóðgarðinn Snæfellsjökul í gær á Hellissandi. Þá setti ráðherra málþing um framtíð Þjóðgarðsins í kjölfarið.

Þjóðgarðurinn var stofnaður árið 2001 og fimm árum síðar var efnt til opinnar samkeppni um þjóðgarðsmiðstöð á Hellissandi. Hönnun hefur því legið fyrir um nokkurt skeið og er byggingunni ætlað að uppfylla allar ...

GullfossUmhverfis- og auðlindaráðuneytið auglýsir eftir tilnefningum til tvennra verðlauna sem afhent verða á Degi íslenskrar náttúru, 16. september næstkomandi. Annars vegar er um að ræða Fjölmiðlaverðlaun umhverfis- og auðlindaráðuneytisins og hins vegar Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti.

Fjölmiðlaverðlaunum umhverfis- og auðlindaráðuneytisins er ætlað að hvetja til hverskyns umfjöllunar um íslenska náttúru, hvort heldur er í því skyni að vekja athygli á ...

Háspennulínur á Hellisheiði. Ljósm. Einar BergmundurStarfshópur vegna endurskoðunar laga um mat á umhverfisáhrifum hefur hafið störf, en honum er ætlað að gera tillögur að lagabreytingum sem nauðsynlegar eru til að innleiða ákvæði tilskipunar ESB sem ætlað er að einfalda regluverk vegna mats á umhverfisáhrifum.

Starfshópurinn er einnig með til skoðunar ákvæði laga um mat á umhverfisáhrifum sem fjalla m.a. um sameiginlegt mat á umhverfisáhrifum ...

Verkefnisstjórn 3. áfanga rammaáætlunar mun ganga frá drögum að tillögum sínum um flokkun virkjunarkosta þann 30. mars nk. Til að auðvelda almenningi og hagsmunaaðilum að kynna sér drögin efnir verkefnisstjórn til kynningarfunda, sem hér segir:

31.3. - Reykjavík, Kaldalón í Hörpu, kl. 14-16

6.4. - Grindavík, Gjáin, kl. 20-22

7.4. - Kirkjubæjarklaustur, fundarstaður ekki ákveðinn, kl. 16:30-18:30

7 ...

Forsíða vefsins matarsoun.isÁ morgunverðarfundi sem umhverfis- og auðlindaráðuneytið boðaði til fimmtudaginn 17. mars sl. var stefna um úrgangsmál undir yfirsögninni Saman gegn sóun – 2016 – 2027 kynnt og nýr vefur um matarsóun matarsoun.is kynntur til leiks.

Helstu markmið stefnunnar eru að draga úr myndun úrgangs m.a. með því að bæta nýtingu auðlinda. Áhersla er lögð á fræðslu til að koma í ...

Merki Kuðungsins. Merkið hér að ofan er Kuðungur sem Náttúran.is fékk en Náttúran.is fékk umhverfisviðurkenninguna fyrir árið 2011.

Úthlutunarnefnd á vegum umhverfis- og auðlindaráðuneytisins óskar eftir tilnefningum um fyrirtæki eða stofnun, sem vegna verka sinna og athafna á síðasta ári, er þess verðug að hljóta umhverfisviðurkenninguna Kuðunginn fyrir árið 2015.

Óskað er eftir því að stutt greinargerð fylgi með tilnefningunni. Fyrirtæki og stofnanir geta hvort heldur tilnefnt sig sjálf eða verið tilnefnd af öðrum.

Kuðungurinn er viðurkenning á ...

Umhverfis- og auðlindaráðuneytið, í samráði við atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið, óskar eftir umsögnum um drög að breytingum á starfsreglum verkefnisstjórnar verndar- og orkunýtingaráætlunar.

Að Hveravöllum. Ljósm. Árni Tryggvason.Starfsreglur verkefnisstjórnar voru undirritaðar af ráðherra 22. maí 2015 og birtust í Stjórnartíðindum 22. júní 2015. Í kjölfarið hafa ráðuneytinu borist ábendingar um tiltekin atriði í starfsreglum sem þyrfti að skýra frekar. Ráðuneytið hefur nú brugðist við þeim ...

Plastpokar. Ljósm. Guðrún Tryggvadóttir.Umhverfis- og auðlindaráðherra hefur skipað starfshóp sem hefur það hlutverk að móta tillögur að aðgerðum um hvernig draga megi úr notkun plastpoka. Hópurinn mun í starfi sínu horfa til þingsályktunar Alþingis frá júlí sl. um að draga úr plastpokanotkun, breytinga á EES-samningnum vegna plastpokanotkunar og tillögu Umhverfisstofnunar um hvernig draga megi úr plastpokanotkun hér á landi.

Áætlað er að árlega ...

Nemendur í 9. bekk í Lágafellsskóla hlutu útnefninguna 2015. Ljósm. Guðrún Tryggvadóttir.Óskað er eftir verkefnum til þátttöku í hinni árlegu verkefnasamkeppni, Varðliðum umhverfisins. Þetta er í 10. sinn sem samkeppnin er haldin meðal grunnskólabarna í 5. til 10. bekk. Markmið keppninnar er að hvetja ungt fólk til góðra verka í umhverfisvernd, vekja athygli á sýn ungs fólks á umhverfismál og kalla eftir leiðsögn yngri kynslóðarinnar á því sviði.

Að verkefnasamkeppninni standa ...

Slæm umgengni við gáma fyrir blandaðan úrgang við Sogið. Ljósm. Guðrún Tryggvadóttir.Umhverfis- og auðlindaráðuneytið óskar eftir umsögnum um drög að frumvarpi til breytinga á lögum um meðhöndlun úrgangs, lögum um eftirlit með skipum og lögum um ráðstafanir gegn umhverfismengun af völdum einnota umbúða fyrir drykkjarvörur.

Meginefni frumvarpsins eru innleiðingar ýmissa Evrópugerða er varða úrgangsmál. Auk þess eru lagðar til nokkrar aðrar breytingar á lögunum er varða m.a. opinberar birtingar á ...

Matur í gámi, hent sem rusli. Af matarsoun.is.Umhverfis- og auðlindaráðherra hefur gefið út fyrstu almennu stefnuna um úrgangsforvarnir sem ber heitið Saman gegn sóun. Stefnan gildir fyrir árin 2016 - 2027 og eru markmið hennar m.a. að draga úr myndun úrgangs og bæta nýtingu auðlinda.

Forvarnir gegn myndun úrgangs felast í að nýta auðlindir okkar sem best. Viðfangsefnið er að þróa samfélag sem hefur skilvirka auðlindanýtingu í ...

Steinefni til urðunar (sorp) í Álfsnesi. Ljósm. Guðrún Tryggvadóttir.Umhverfis- og auðlindaráðherra hefur sett nýja reglugerð um endurnýtingu úrgangs. Reglugerðinni er ætlað að hvetja til endurnýtingar úrgangs og stuðla þannig að betri nýtingu hráefna og auðlinda.

Áhugi íslenskra fyrirtækja hefur aukist á því að nýta ýmiss konar úrgang við framleiðslu á nýjum vörum með mismunandi endurnýtingaraðferðum. Í því sambandi er mikilvægt að skýrt sé hvenær úrgangur teljist ekki lengur ...

Ísland vill að loftslagssamkomulag í París verði metnaðarfullt, en verði ekki bara einföld umgjörð utan um innsend markmið ríkja. Fjölmörg ríki hafa á síðustu dögum lýst yfir stuðningi við að tryggja hátt metnaðarstig í samningnum undir merkjum „Bandalags um mikinn metnað“. Ísland hefur lýst yfir stuðningi við þessa hreyfingu og mætti Sigrún Magnúsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra á fund ráðherra í ...

Forseti 21. Aðildaríkjaþings loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna (COP21), Laurent Fabius, kynnti í dag ný drög að hnattrænum samningi um aðgerðir í loftslagsmálum, með þátttöku allra ríkja.

Í ræðu á stuttum fundi í dag þar sem samningsdrögunum var dreift sagði Fabius að búið væri að ná saman að mestu leyti um mikilvæg atriði á borð við hvernig standa skuli að aðlögun að ...

Rafhlaða. Ljósm. Umhverfis- og auðlindaráðuneytið.Umhverfis- og auðlindaráðuneytið óskar eftir umsögnum um drög að breytingum á reglugerð um rafhlöður og rafgeyma.

Markmiðið með breytingunni er tvíþætt. Annars vegar þarf að uppfæra reglugerðina miðað við breytingar sem gerðar hafa verið á lögum um meðhöndlun úrgangs. Þar var m.a. ábyrgð á rekstri skráningarkerfis framleiðanda og innflytjanda rafhlaðna og rafgeyma fært frá Úrvinnslusjóði til Umhverfisstofnunar og síðarnefndu ...

Umhverfismerkið SvanurinnVika grænna opinbera innkaupa á Norðurlöndum hófst mánudaginn 2. nóvember. Í Reykjavík er boðið til morgunverðarfunda og ráðstefnu um opinber innkaup auk þess sem norræna umhverfismerkið Svanurinn verður ofarlega á baugi.

Opinber innkaup geta haft talsverð áhrif á framboð og gæði vara og þjónustu enda er talið að þau séu um 20% af vergri landsframleiðslu. Með því að setja umhverfisskilyrði ...

Þjóðarblómið, holtasóleyjar. Ljósm. Guðrún Tryggvadóttir.Skráning á IX. Umhverfisþing stendur nú sem hæst. Þingið verður haldið föstudaginn 9. október á Grand Hótel í Reykjavík. Umhverfisþing fjallar að þessu sinni um samspil náttúru og ferðamennsku.

Fyrir hádegi verða flutt inngangserindi um þema þingsins. Meðal ræðumanna er heiðursgestur þingsins, Susan Davies forstjóri Scottish Natural Heritage, en stofnunin hefur umsjón með náttúruvernd og sjálfbærri nýtingu náttúru í Skotlandi ...

Umhverfis- og auðlindaráðherra boðar til IX. Umhverfisþings 9. október 2015 á Grand hótel í Reykjavík. Umhverfisþing fjallar að þessu sinni um samspil náttúru og ferðamennsku.

Heiðursgestur á Umhverfisþingi að þessu sinni verður Susan Davies forstjóri Scottish Natural Heritage en stofnunin hefur með höndum málefni náttúruverndar og sjálfbæra nýtingu náttúru í Skotlandi. Davies mun ávarpa þingið og m.a. fjalla um ...

Verðlaunagripurinn Jarðarberið eftir Finn Arnar Arnarson. Ljósm. Guðrún Tryggvadóttir.Dómnefnd hefur tilnefnt þrjá til fjölmiðlaverðlauna umhverfis- og auðlindaráðuneytisins sem veitt verða á Degi íslenskrar náttúru, miðvikudaginn 16. september næstkomandi.

Tilnefnd til verðlaunanna eru Hallgrímur Indriðason, fréttamaður á RÚV, Iceland Review og þáttaröðin „Lífríkið í sjónum við Ísland“.  Rökstuðningur dómnefndar fyrir valinu er eftirfarandi:

Hallgrímur Indriðason, fréttamaður á RÚV, sem gerði hápólitísku deiluefni um virkjanakosti í Þjórsá ítarleg og góð ...

Undirbúningur vegna Dags íslenskrar náttúru, sem haldinn er hátíðlegur 16. september ár hvert, stendur nú sem hæst. Upplýsingar um viðburði, verkefni og uppákomur sem efnt er til í tilefni dagsins má senda á umhverfis- og auðlindaráðuneytið og verða þær þá birtar á heimasíðu dagsins á vef ráðuneytisins.
Þetta er í fimmta sinn sem dagurinn er haldinn hátíðlegur og hafa æ ...

Frá verðlaunaafhendingum 2013. Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti hlaut þá frú Vigdís Finnbogadóttir og Fjölmiðlaverðlaunain hlaut Páll Steingrímsson. Ljósm. Guðrún Tryggvadóttir.Umhverfis- og auðlindaráðuneytið auglýsir eftir tilnefningum til tvennra verðlauna sem afhent verða á Degi íslenskrar náttúru, 16. september næstkomandi. Annars vegar er um að ræða Fjölmiðlaverðlaun umhverfis- og auðlindaráðuneytisins og hins vegar Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti.

Fjölmiðlaverðlaunum umhverfis- og auðlindaráðuneytisins er ætlað að hvetja til hverskyns umfjöllunar um íslenska náttúru, hvort heldur er í því skyni að vekja athygli á ...

Jökulsárlón. Ljósm. Guðrún Tryggvadóttir.Íslensk stjórnvöld hafa tilkynnt um landsmarkmið í loftslagsmálum til 2030 í aðdraganda Parísarfundarins, þar sem ganga á frá heimssamkomulagi um takmörkun á losun gróðurhúsalofttegunda. Ísland mun leitast við að ná sameiginlegu markmiði með ríkjum ESB og Noregi um 40% minnkun losunar til 2030 miðað við 1990. Markmiðið er framhald af því fyrirkomulagi sem nú er við lýði á 2. skuldbindingartímabili ...

Jarðarber Ljósm. Guðrún TryggvadóttirReglugerð um plöntuverndarvörur hefur tekið gildi. Markmið hennar er að gera notkun slíkra vara eins örugga og hægt er fyrir heilbrigði manna og dýra og fyrir umhverfið. Sömuleiðis er markmiðið að bæta starfsemi innri markaðarins með því að samræma reglur um setningu plöntuverndarvara á markað. Um leið eru skilyrði við ræktun í landbúnaði og garðyrkju bætt.

Til plöntuverndarvara teljast efni ...

Kvöldleikur við Mývatn. Ljósm. Guðrún Tryggvadóttir.Sigrún Magnúsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra, hefur skipað starfshóp til að hafa umsjón með sameiningu Náttúrufræðistofnunar Íslands (NÍ) og Náttúrurannsóknastöðvarinnar við Mývatn (RAMÝ). Þetta er í samræmi til tillögu stýrihóps sem gerði frumathugun á samlegð stofnana á sviði rannsókna og vöktunar á náttúru Íslands og skilaði ráðherra skýrslu sinni í mars sl.

Verkefni starfhópsins verða m.a. að fara yfir rekstrarlega- ...

Matarleyfar, eggjaskurn, kaffikorgur o.fl. í moltukassa. Ef til vill of miklu hent? Ljósm. Guðrún Tryggvadóttir.Sigrún Magnúsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra, hefur ákveðið að veita Umhverfisstofnun 1,8 milljónir króna til verkefna sem ætlað er að sporna gegn matarsóun. Með fjárveitingunni er fylgt eftir tillögum starfshóps um matarsóun sem skilaði ráðherra skýrslu í lok apríl sl.

Sérstök áhersla er lögð á fræðslu almennings í því skyni að ýta undir vitundarvakningu um matarsóun. Stefnt er að því ...

Daníel Tryggvi skoðar furu. Ljósm. Guðrún Tryggvadóttir.Aukið hefur verið við framkvæmdir í skógrækt og landgræðslu á árinu með 20 milljóna króna fjárframlagi ríkisins sem skipt verður jafnt á milli greinanna tveggja. Í tengslum við fjárlagavinnu 2016 hefur Sigrún Magnúsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra, kynnt í ríkisstjórn tillögur um að auka myndarlega við þessi framlög á næstu árum.

Þeir fjármunir sem renna til skógræktar nú skiptast á milli ...

Göngustígur í Kerlingafjöllum. Ljósm. Guðrún TryggvadóttirÍslensk náttúra hefur lagt grunninn að öflugri ferðaþjónustu, sem nú skapar meiri gjaldeyristekjur fyrir þjóðarbúið en nokkur önnur atvinnugrein. Vöxtur greinarinnar hefur skapað mörg tækifæri, en einnig áskoranir vegna mikillar ásóknar ferðafólks á viðkvæm náttúrusvæði. Til að tryggja að íslensk náttúra og öflug ferðaþjónusta geti blómstrað samtímis hefur ríkisstjórnin samþykkt að verja í sumar 850 milljónum króna til brýnna uppbyggingar- ...

Úr Þjórsárverum. Ljósm. Einar BergmdundurSigrún Magnúsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram á Alþingi frumvarp sem varðar frestun gildistöku laga nr. 60/2013 um náttúruvernd til 1. janúar 2016. Jafnframt hyggst ráðherra mæla fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um náttúruvernd næsta haust, sem felur í sér endurskoðun á náttúruverndarlögum. Þetta er gert til að tryggja að frumvarp um náttúruvernd fái fullnægjandi ...

Í Reykjadal. Ljósm. Guðrún Tryggvadóttir.Umhverfis- og auðlindaráðherra hefur undirritað reglugerð um baðstaði í náttúrunni. Reglugerðin hefur það að markmiði að fyrirbyggja og koma í veg fyrir slys og sýkingar, stuðla að öryggi notenda, bættum hollustuháttum og heilnæmi vatns

Baðstaðir í náttúrunni eru skilgreindir sem náttúrulaug eða baðströnd sem notuð er til baða af almenningi  þar sem vatn er ómeðhöndlað af sótthreinsiefnum, geislun eða á ...

Frá BreiðafirðiSigrún Magnúsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra, hefur undirritað verndaráætlun Breiðafjarðar fyrir árin 2014 – 2019. Áætlunin er stefnumörkun Breiðafjarðarnefndar þar sem sérstöðu fjarðarins er lýst. Þá er mörkuð stefna um útfærslu stjórnunar og umsýslu vegna verndar, skipulags og framkvæmda á svæðinu og sýndar leiðir til að ná markmiðum um vernd náttúru- og menningarminja svæðisins.

Í áætluninni er fjallað um sérstöðu fjarðarins hvað ...

Ármann HöskuldssonSigrún Magnúsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra, hefur skipað dr. Ármann Höskuldsson formann stjórnar Vatnajökulsþjóðgarðs.

Ármann er eldfjallafræðingur og vísindamaður við Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands frá árinu 2004. Áður starfaði hann sem forstöðumaður Náttúrustofu Suðurlands í Vestmannaeyjum. 

Ármann er með doktorsgráðu í eldfjallafræði, bergfræði og jarðefnafræði frá Blaise Pascal háskólanum í Frakklandi. Hann hefur gegnt ýmsum trúnaðarstörfum í gegn um tíðina og m ...

Laufey Helga Guðmundsdóttir, formaður starfshópsins kynnir skýrsluna.Starfshópur, sem umhverfis- og auðlindaráðherra skipaði sl. haust og hafði það hlutverk að móta tillögur um hvernig draga megi úr sóun matvæla, skilaði í dag ráðherra skýrslu sinni á hátíðarathöfn í tilefni af Degi umhverfisins.

Í skýrslunni er tæpt á því hvað matarsóun er og þeim verkefnum sem þegar hefur verið hrint í framkvæmd á þessu sviði. Í skýrslunni er ...

Kuðungurinn fór til Landspítala í ár. Ingólfur Þórisson, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Landspítala tók við kuðungnum úr hendi Sigrúnar Magnúsdóttur, umhverfis- og auðlindaráðherraUmhverfis- og auðlindaráðherra, Sigrún Magnúsdóttir, veitti Landspítala í dag Kuðunginn, umhverfisviðurkenningu umhverfis- og auðlindaráðuneytisins, fyrir framúrskarandi starf að umhverfismálum á síðasta ári. Við sama tækifæri voru nemendur í 9. bekk í Lágafellsskóla í Mosfellsbæ útnefndir Varðliðar umhverfisins.

Kuðungurinn

Landspítali hlýtur Kuðunginn fyrir metnaðarfulla umhverfisstefnu og markvisst umhverfisstarf undanfarin ár. Er árangur starfsins skýr og mælanlegur og sýnir að það hefur ...

Stýrihópurinn ásamt ráðherra við afhendingu skýrslunnarStýrihópur ráðuneytis og forstjóra nokkurra stofnana á sviði rannsókna og vöktunar hefur skilað umhverfis- og auðlindaráðherra skýrslu sinni um frumathugun á samlegð stofnana á sviði rannsókna og vöktunar á náttúru Íslands. Tillögum stýrihópsins er ætlað að auka samstarf rannsóknastofnana ráðuneytins m.a. með það að markmiði að efla þekkingu á auðlindum íslenskrar náttúru og miðlun upplýsinga um hana.

Hlutverk stýrihópsins ...

Bláklukka. Ljósm. Guðrún Tryggvadóttir.Umhverfis- og auðlindaráðuneytið leggur fram til kynningar drög að frumvarpi til breytinga á lögum um náttúruvernd. Markmiðið með endurskoðun laganna er að skýra betur framkvæmd þeirra og ná fram betri samstöðu um efni þeirra. Unnið var að endurskoðuninni með nefndarálit umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis að leiðarljósi.

Lög nr. 60/2013, um náttúruvernd, voru samþykkt á Alþingi 28. mars 2013 og ...

Merki Kuðungsins. Merkið hér að ofan er Kuðungur Náttúran.is sem fékk umhverfisviðurkenninguna fyrir árið 2011.Úthlutunarnefnd á vegum umhverfis- og auðlindaráðuneytisins óskar eftir tilnefningum um fyrirtæki eða stofnun, sem vegna verka sinna og athafna á síðasta ári, er þess verðug að hljóta umhverfisviðurkenninguna Kuðunginn fyrir árið 2014.

Óskað er eftir því að stutt greinargerð fylgi með tilnefningunni. Fyrirtæki og stofnanir geta hvort heldur tilnefnt sig sjálf eða verið tilnefnd af öðrum.

Kuðungurinn er viðurkenning á ...

Sigríður Jónsdóttir, ráðuneytisstjóri umhverfis- og auðlindaráðuneytisins.Umhverfis- og auðlindaráðherra tilkynnti í dag þá ákvörðun sína að skipa Sigríði Auði Arnardóttur í embætti ráðuneytisstjóra frá og með 1. mars næstkomandi. Þetta er gert með vísan til 36. greinar laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.

Sigríður Auður er með embættispróf í lögfræði frá Háskóla Íslands. Hún hefur starfað í ráðuneytinu frá árinu 1998 og gegnt embætti skrifstofustjóra ...

Seljalandsfoss, ljósm. Árni Tryggvason.Umhverfis- og auðlindaráðuneytið fagnar 25 ára afmæli í dag en það var stofnað 23. febrúar árið 1990 undir nafni umhverfisráðuneytisins. Fyrir þann tíma höfðu málefni umhverfis og náttúru heyrt undir ólík ráðuneyti.

Umhverfis- og auðlindaráðherra, Sigrún Magnúsdóttir, er sextándi ráðherrann til að gegna embættinu frá stofnun ráðuneytisins, en fyrsti umhverfisráðherrann var Júlíus Sólnes, sem kosinn var á Alþingi fyrir Borgaraflokkinn ...

Nemendur Hvolsskóla hlutu viðurkenningu Varðliða umhverfisins 2014. Ljósm. Guðrún Tryggvadóttir.Óskað er eftir verkefnum til þátttöku í hinni árlegu verkefnasamkeppni, Varðliðum umhverfisins. Þetta er í 9. sinn sem samkeppnin er haldin meðal grunnskólabarna í 5. til 10. bekk. Markmið keppninnar er að hvetja ungt fólk til góðra verka í umhverfisvernd, vekja athygli á sýn ungs fólks á umhverfismál og kalla eftir leiðsögn yngri kynslóðarinnar á því sviði.

Að verkefnasamkeppninni standa ...

Sigrún Magnúsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra afhendir Grænfánann. Ljósm. Landvernd. á dögunum Fjölbrautaskólanum við Ármúla Grænfánann við hátíðlega athöfn. Þetta er í fimmta sinn sem skólinn hlýtur fánann.

Fjölbrautaskólinn við Ármúla var fyrstur íslenskra framhaldsskóla til að skrá sig til leiks sem Skóla á grænni grein, árið 2005. Um er að ræða alþjóðlegt verkefni sem miðar að því að auka umhverfismennt og styrkja umhverfisstefnu í skólum. Þeir skólar sem vilja ...

MývatnAlþingi hefur samþykkt breytingu á lögum um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000. Breytingin er til komin vegna skuldbindinga Íslands á grundvelli EES samningsins. Breytingin felur í sér að fleiri framkvæmdir falla undir lögin en verið hefur en málsmeðferð þeirra er einfaldari og styttri en annarra framkvæmda sem undir lögin falla í dag.

Sveitarfélögin skulu taka ákvarðanir um matsskyldu þeirra ...

Ákvörðun var tekin á fundi Loftslagssamnings S.þ. í Lima aðfararnótt sunnudags um upplegg að nýju framtíðarsamkomulagi í loftslagsmálum.Samkvæmt ákvörðuninni eiga ríki að setja sér markmið um minnkun losunar á gróðurhúsalofttegundum og tilkynna til skrifstofu Loftslagssamningsins á árinu 2015.

Sett verður upp ferli innan samningsins til að meta innsend markmið ríkja og tryggja eftir föngum að þau séu skýr ...

MatarsóunUmhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur óskað eftir umsögnum um drög að almennri stefnu um úrgangsforvarnir, „Saman gegn sóun“. Stefnan mun gilda fyrir árin 2015 – 2026 og eru markmið hennar m.a. að draga úr myndun úrgangs og bæta nýtingu auðlinda. Frestur til að skila umsögnum er til föstudagsins 23. janúar 2015.

Forvarnir gegn myndun úrgangs felast í að nýta auðlindir okkar ...

Hellisheiðarvirkjun. Ljósm. Guðrún Tryggvadóttir.Ísland styður gerð hnattræns framtíðarsamkomulags í loftslagsmálum og er bjartsýnt á að tekin verði góð skref í átt til þess á 20. aðildarríkjaþingi Loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna, sem nú fer fram í Lima í Perú. Þetta kom fram í innleggi Íslands á þinginu í dag. Vakin var athygli á þeirri ógn sem höfunum og lífríki þeirra stafar af loftslagsbreytingum og súrnun ...

Hafið. Ljósm. Guðrún Tryggvadóttir.Ríkisendurskoðun hefur gert úttekt á framkvæmd alþjóðasamninga um varnir gegn mengun sjávar frá skipum, sem eru á könnu umhverfis- og auðlindaráðuneytisins og Umhverfisstofnunar. Ríkisendurskoðun setur einnig fram ábendingar til ráðuneytisins og Umhverfisstofnunar sem miða að efldu og bættu starfi til að sinna þessum samningum og tryggja innleiðingu reglna þeirra hér á landi. 

Ráðuneytið telur ábendingarnar gagnlegar og hyggst verða við ...

Hver í Reykjadal. ljósm. Guðrún TryggvadóttirSigurður Ingi Jóhannsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, hefur sett af stað vinnu við frumathugun á sameiningu nokkurra stofnana ráðuneytisins eða samþættingu verkefna sem undir þær heyra. Stofnanirnar sem um ræðir eru Náttúrufræðistofnun Íslands, Náttúrurannsóknastöðin við Mývatn, Umhverfisstofnun vegna verkefna á sviði vöktunar og Veðurstofa Íslands. Þá verða jafnframt skoðaðir mögulegir samstarfsfletir við Íslenskar orkurannsóknir (ÍSOR) og Rannsóknarmiðstöð í jarðskjálftaverkfræði.

Tilgangur verkefnisins ...

Ráðherrarnir ásamt stjórnendum veðurstofanna tveggja og ráðuneytisstjórum. ljósm: UARSigurður Ingi Jóhannsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, og Rasmus Helveg Petersen, loftslags- og orkumálaráðherra Danmerkur, undirrituðu í dag viljayfirlýsingu um samstarf landanna tveggja á sviði rannsókna á loftslagi, veðurfari og haffræði. Þá kveður viljayfirlýsingin á um aukið samstarf Veðurstofu Íslands og Veðurstofu Danmerkur.

Forsendur yfirlýsingarinnar eru m.a. að löndin tvö hafa lengi átt samstarf á sviði veðurþjónustu og að staðsetning ...

Úr Þjórsárverum. Ljósm. Guðrún TryggvadtóttirUmhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur boðað hagsmuna- og fagaðila til samráðs um mótun aðgerðaáætlunar varðandi endurheimt votlendis. Aðgerðaáætlunin er liður í stefnu íslenskra stjórnvalda í loftslagsmálum og náttúruvernd.

Markmið starfsins verður að kortleggja nánar hvaða svæði koma til greina til endurheimtar votlendis án þess að skaða hagsmuni annarrar landnotkunar. Jafnframt er ætlunin að móta aðferðafræði til að forgangsraða slíkum svæðum m ...

Séð út á Breiðafjörð. Ljósm. Guðrún Tryggvadóttir.Sigurður Ingi Jóhannsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, undirritaði á föstudag samkomulag um stofnun öndvegisseturs um sjálfbæra nýtingu og vernd hafsins. Um er að ræða samstarfsvettvang fyrirtækja, háskólasamfélagsins, rannsóknastofnana og stjórnvalda um rannsóknir, þróun, framleiðslu og kynningu á tæknilausnum sem stuðla að vernd hafsins.

Samkomulagið var undirritað á föstudag í tengslum við alþjóðlegu Norðurslóðaráðstefnuna Arctic Circle sem fram fór í Hörpunni.

Markmiðið ...

Frá fundi Figueres og Sigurðar Inga Jóhannssonar í gær.Christiana Figueres, framkvæmdastýra rammasamnings Sameinuðu þjóðanna um loftslagsmál, átti í gær fundi með Sigurði Inga Jóhannssyni, umhverfis- og auðlindaráðherra og Gunnari Braga Sveinssyni, utanríkisráðherra. Figueres er hér á landi til að taka þátt í Arctic Circle ráðstefnunni, sem fram fer um helgina.

Figueres lagði áherslu á að aðildarríki leggi fram metnaðarfullar áætlanir um minnkun á losun í yfirstandandi samningaviðræðum um ...

Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í dag tillögu Sigurðar Inga Jóhannssonar, umhverfis- og auðlindaráðherra, um að setja á fót starfshóp með fulltrúum fimm ráðuneyta, í því skyni að yfirfara og meta ráðleggingar sem fram koma í nýlegri heildarúttekt OECD á stöðu og þróun umhverfismála á Íslandi fyrir tímabilið 2001 – 2013.

Skýrsla OECD kynntÚttekt OECD (Environmental Performance Review – Iceland-2014) var kynnt þann 4 ...

Viðey í ÞjórsáRíkisstjórnin samþykkti í gær að tillögu Sigurðar Inga Jóhannssonar, umhverfis- og auðlindaráðherra að leggja fyrir Alþingi þingsályktunartillögu þess efnis að Hvammsvirkjun í neðri hluta Þjórsár verði flutt úr biðflokki rammaáætlunar í orkunýtingarflokk. Er þetta endurflutningur tillögu frá í vor en hún er í samræmi við niðurstöðu verkefnisstjórnar 3. áfanga áætlunar um vernd og orkunýtingu landsvæða (rammaáætlunar).

Í greinargerð verkefnisstjórnar frá ...

Frá fundinum, mynd UARGóð þátttaka var á kynningarfundi umhverfis- og auðlindaráðuneytisins um drög að frumvarpi til laga um landsáætlun um uppbyggingu innviða fyrir ferðamenn í þágu náttúruverndar, en fundurinn var haldinn í ráðuneytinu í gær.

Óskað hefur verið eftir umsögnum almennings um drögin en frumvarpið kveður á um að gerð verði tólf ára stefnumarkandi áætlun um uppbyggingu innviða sem lögð verði fyrir Alþingi ...

Sígríður Bylgja frá Landvernd kynnir verkefnið Saman gegn matarsóun á Sumarmatarmarkaði Búrsins í lok ágúst sl.Umhverfis- og auðlindaráðherra hefur skipað starfshóp sem móta skal tillögur um hvernig draga megi úr sóun matvæla. Hópnum er ætlað að benda á hvetjandi leiðir til að nýta hráefni betur við vinnslu matvara sem og fullunnar matvörur eftir að þær eru komnar til neytenda, veitingastaða, framleiðenda og söluaðila. 

Þá skal hópurinn leggja fram tillögur um hvernig auka megi fræðslu um ...

Magnús Geir Þórðarson útvarpsstjóri sem tók við Fjölmiðlaverðlaununum úr hendi umhverfisráðherra Sigurðar Inga Jóhannssonar fyrir hönd RÚV.Umhverfis- og auðlindaráðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson, veitti í dag í tilefni af Degi íslenskrar náttúru, RÚV – hljóðvarpi og sjónvarpi, fjölmiðlaverðlaun umhverfis- og auðlindaráðuneytisins. Við sama tækifæri veitti hann Tómasi J. Knútssyni, Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti.

Tilnefndir til fjölmiðlaverðlaunanna voru:

  • Gunnþóra Gunnarsdóttir, blaðamaður á Fréttablaðinu fyrir greinaflokkinn Útivist og afþreying þar sem sjónum var beint að áhugaverðum náttúruperlum í öllum landshlutum ...

Dynkur í ÞjórsáÁ fundi ríkisstjórnarinnar þ. 1. október 2010 var ákveðið að 16. september, fæðingardagur Ómars Ragnarssonar, yrði þaðan í frá „dagur íslenskrar náttúru“.  Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra lagði fram tillögu þess efnis. Hún sagði að ákvörðun ríkisstjórnarinnar vera viðurkenningu á framlagi Ómars til náttúruverndar og almenningsfræðslu um mikilvægi íslenskrar náttúru sem og allra þeirra sem lagt hafa sitt af mörkum til að ...

Jarðarberið, verðlaunagripurinn hannaður af hannaði Finni Arnari Arnarsyni.Dómnefnd hefur tilnefnt þrjá til fjölmiðlaverðlauna umhverfis- og auðlindaráðuneytisins sem veitt verða á Degi íslenskrar náttúru, þriðjudaginn 16. september næstkomandi.

Tilnefnd til verðlaunanna eru:

Gunnþóra Gunnarsdóttir, blaðamaður á Fréttablaðinu
Fréttablaðið birti í sumar greinaflokk undir heitinu Útivist og afþreying eftir Gunnþóru Gunnarsdóttur, þar sem sjónum er beint að áhugaverðum náttúruperlum í öllum landshlutum. Framsetning  efnisins er aðlaðandi og til þess ...

Holtasóleyjar.Íslensk náttúra hefur gegnt lykilhlutverki í efnahagsbata landsins, bæði vegna orkuauðlinda hennar sem og aðdráttarafls fyrir erlenda ferðamenn. Íslendingar njóta mikilla lífsgæða og hreins umhverfis sem býður upp á framúrskarandi vatnsgæði, litla loftmengun og mikið aðgengi að óspilltri náttúru. Þetta er meðal meginniðurstaðna heildarúttektar Efnahags- og framfarastofnunar Evrópu (OECD) á umhverfismálum á Íslandi árin 2001 - 2013, en úttektarskýrslan var kynnt ...

Illagil að FjallabakiKynning á Hótel Natura, fimmtudaginn 4. september kl. 10:00.

Efnahags-og framfarastofnunin  (OECD – The Organization for Economic Co-operation and Development) kynnir á morgun heildarúttekt á stöðu og þróun umhverfismála á Íslandi yfir tímabilið 2001-2013.  Þetta er í þriðja sinn sem OECD gerir slíka úttekt á umhverfismálum hér á landi.

Í skýrslunni er m.a. farið yfir stöðu og stefnumörkun í ...

Við afhendingu Náttúruverndarviðurkenningar Sigríðar í Brattholti, en þau hlaut Vigdís Finnbogadóttir og Fjölmiðlaverðlaunanna, en þau hlaut Páll Steingrímsson.Umhverfis- og auðlindaráðuneytið auglýsir eftir tilnefningum til tvennra verðlauna sem afhent verða á Degi íslenskrar náttúru, 16. september næstkomandi. Annars vegar er um að ræða Fjölmiðlaverðlaun umhverfis- og auðlindaráðuneytisins og hins vegar Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti.

Fjölmiðlaverðlaunum umhverfis- og auðlindaráðuneytisins er ætlað að hvetja til hverskyns umfjöllunar um íslenska náttúru, hvort heldur er í því skyni að vekja athygli á ...

Frá undirritun samkomulagsins í dag. Kristján Andri Stefánsson undirritaði samkomulagið fyrir Íslands hönd og Artur Runge-Metzger fyrir hönd ESB.Samningamenn Íslands og Evrópusambandsins hafa í dag áritað samning um fyrirkomulag á sameiginlegu markmiði 29 ríkja innan Kýótó-bókunarinnar á tímabilinu 2013-2020, varðandi losun gróðurhúsalofttegunda. Gert var ráð fyrir þessu fyrirkomulagi við breytingar á Kýótó-bókuninni árið 2012, en með samningnum nú er kveðið á um skuldbindingar Íslands innan hins sameiginlega markmiðs, en þær verða sambærilegar og gerist hjá ríkjum ESB. Stefnt ...

Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur veitt Orkuveitu Reykjavíkur undanþágu til tveggja ára frá hertum kröfum í reglugerð um styrk brennisteinsvetnis í andrúmslofti sem taka gildi 1. júlí næstkomandi, að uppfylltum tilteknum skilyrðum. Með þessum hertum kröfum er óheimilt að fara yfir heilsuverndarmörk vegna brennisteinsvetnis í andrúmslofti en í gildandi reglugerð er heimilt að fara fimm sinnum á ári yfir þessi mörk ...

Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun ríflega 350 milljóna króna fjárframlag til uppbyggingar og verndaraðgerða á ferðamannastöðum í sumar. Fjármunirnir verða notaðir til verkefna sem talin eru brýn vegna verndunar eða öryggissjónarmiða. 

Umhverfis- og auðlindaráðherra og Iðnaðar- og viðskiptaráðherra hafa í samstarfi við  forsætisráðuneytið og stjórn Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða sett saman lista yfir staði í umsjón og eigu ríkisins og ...

Út er komin sjötta landsskýrsla Íslands um loftslagsmál. Um er að ræða heildaryfirlit yfir loftslagsmál á Íslandi sem ber að skila til Loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna. Í skýrslunni er að finna ítarlega umfjöllun m.a. um losun gróðurhúsalofttegunda hér á landi, rannsóknir, aðgerðir og áætlanir landsins í loftslagsmálum.

Skýrslan gerir grein fyrir aðstæðum á Íslandi, loftslagsbókhaldi Íslands, stefnu og aðgerðum á ...

Mengun er það þegar aðskotaefni komast út í umhverfið þar sem þeir geta valdið óstöðugleika, röskun, skaða og óþægindi í vistkerfinu. Mengun getur verið kemískt efni eða orka eins og hávaði, hiti eða ljós. Mengunarvaldar geta komið fyrir náttúrulega en þeir kallast aðskotaefni þegar þeir eru meira en náttúrulegt magn.

Mengun frá álverum
Útblásturssvæði (þynningarsvæði) álvera er svæðið næst álverum ...

Sigurður Ingi Jóhannsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, staðfesti í dag tvær friðlýsingar innan marka Garðabæjar. Um er að ræða annars vegar friðlýsingu Búrfells, Búrfellsgjár og eystri hluta Selgjár sem náttúruvætti en alls er þar um að ræða 323 hektara. Hins vegar Garðahraun neðra, Garðahraun efra, Vífilsstaðahraun og Maríuhella í Búrfellshrauni sem nú eru friðlýst sem fólkvangur en alls eru það um ...

Umhverfis- og auðlindaráðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson, veitti Kaffitári í dag Kuðunginn, umhverfisviðurkenningu umhverfis- og auðlindaráðuneytisins, fyrir framúrskarandi starf að umhverfismálum á síðasta ári. Við sama tækifæri voru nemendur í Hvolsskóla á Hvolsvelli útnefndir Varðliðar umhverfisins.

Kuðungurinn
Kaffitár hlýtur Kuðunginn fyrir öflugt umhverfisstarf fyrirtækisins allt frá stofnun þess árið 1990. Segir meðal annars í rökstuðningi valnefndar að eigendur þess hafi verið ...

Umhverfis- og auðlindaráðuneytið efnir til dagskrár á Degi umhverfisins, föstudaginn 25. apríl næstkomandi. Sigurður Ingi Jóhannsson, umhverfis- og auðlindaráðherra afhendir þá viðurkenningar fyrir störf á sviði umhverfismála á sérstakri hátíðarsamkomu auk þess sem efnt er til morgunverðarfundar um matarsóun sama dag.

Dagur umhverfisins, 25. apríl er fæðingardagur náttúrufræðingsins og læknisins Sveins Pálssonar. Í tilefni dagsins stendur umhverfis- og auðlindaráðuneytið fyrir ...

Umhverfis- og auðlindaráðuneytið stendur fyrir morgunverðarfundi um matarsóun undir yfirskriftinni „Hættum að henda mat“, á Degi umhverfisins, 25. apríl næstkomandi.

Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna (FAO) áætlar að árlega fari 1,3 milljarðar tonna matvæla til spillis. Þetta er álíka mikill matur og framleiddur er árlega í Afríku sunnan Sahara eyðimerkurinnar.  Á sama tíma fer ein af hverjum sjö manneskjum ...

Sigurður Ingi Jóhannsson, umhverfis- og auðlindaráðherra hefur kynnt ríkisstjórn nánari útfærslu á fyrirhugaðri landsáætlun um uppbyggingu innviða og vernd náttúru á ferðamannastöðum. Frumvarp um áætlunina er í vinnslu í umhverfis- og auðlindaráðuneytinu sem fer með forræði málsins.

Hvatinn að gerð áætlunarinnar er að stefnumörkun og heildstætt yfirlit yfir þörf á vernd og framkvæmdum á ferðamannastöðum í íslenskri náttúru hefur skort ...

kort af svæðunumÍsland tilkynnti nýlega fimm verndarsvæði í hafi til OSPAR samningsins en meginmarkmið hans er verndun Norð-Austur Atlantshafsins sem m.a. felst í  uppbyggingu verndarsvæða. Alls hefur Ísland tilkynnt fjórtán svæði til samningsins en nýju svæðin einkennast fyrst og fremst af kaldsjávarkóröllum.

Umræða um verndarsvæði í hafi hefur verið áberandi á alþjóðavettvangi síðastliðin misseri en vinna að verndun er töluvert skemmra ...

Þjóðgarður í Jökulsárgljúfrum í 40 ár

Vatnajökulsþjóðgarður, Norðurþing, Landvernd, Umhverfis- og auðlindaráðuneytið, Atvinnuþróunarfélag Þingeyinga og Ferðamálstofa efna til málþings á Fosshótel Húsavík 3. apríl í tilefni af því að meira en 40 ár eru liðin síðan þjóðgarður var stofnaður í Jökulsárgljúfrum 1973.

Dagskrá:

10.30 - 10.40 Bergur Elías Ágústsson, bæjarstjóri Norðurþings, setur fundinn.

10.45 - 11.25 Kristveig Sigurðardóttir ...

Umhverfis- og auðlindaráðherra hefur ákveðið að veita rúmlega 20 milljónum króna til uppbyggingar og landvörslu á friðlýstum svæðum og mikilvægum ferðamannastöðum. Um er að ræða verkefni á friðlýstum svæðum í umsjón Umhverfisstofnunar, og í Þórsmörk sem er í umsjón Skógræktar ríkisins.

Stofnanirnar telja þessi verkefni vera í forgangi yfir þær aðgerðir sem ráðast þarf í nú þegar til að koma ...

Alþjóðlegur dagur skóga er í dag, 21. mars en deginum er ætlað að vekja athygli á mikilvægi skóga og trjágróðurs.

Skógar þekja um þriðjung lands á jörðinni og veita lífsnauðsynlega þjónustu um alla veröld. Um 1,6 milljarðar manna og yfir 2000 menningarsamfélög frumbyggja reiða sig á skóga til lífsviðurværis.

Skógar eru fjölbreyttasta vistkerfi sem til er á landi og ...

Úthlutunarnefnd á vegum umhverfis- og auðlindaráðuneytisins óskar eftir tilnefningum um fyrirtæki eða stofnun, sem vegna verka sinna og athafna á síðasta ári, er þess verðug að hljóta umhverfisviðurkenninguna Kuðunginn fyrir árið 2013.

Óskað er eftir því að stutt greinargerð fylgi með tilnefningunni. Fyrirtæki og stofnanir geta hvort heldur tilnefnt sig sjálf eða verið tilnefnd af öðrum.

Kuðungurinn er viðurkenning á ...

Sigríður Auður ArnardóttirUmhverfis- og auðlindaráðherra hefur veitt Stefáni Thors, ráðuneytisstjóra í umhverfis- og auðlindaráðuneyti, námsleyfi frá störfum sínum í ráðuneytinu að hans ósk til eins árs frá 1. mars nk.

Sigríður Auður Arnardóttir, skrifstofustjóri á skrifstofu umhverfis og skipulags í ráðuneytinu, hefur frá sama tíma verið sett í embætti ráðuneytisstjóra til eins árs.

Sigríður Auður er með embættispróf í lögfræði  frá Háskóla ...

Verkefnisstjórn 3. áfanga áætlunar um vernd og orkunýtingu landsvæða (rammaáætlunar) hefur kynnt drög að tillögu sinni um flokkun virkjunarkosta í neðri hluta Þjórsár. Samkvæmt drögunum leggur verkefnisstjórnin til að Hvammsvirkjun verði flutt í orkunýtingarflokk. Að öðru leyti gerir verkefnisstjórnin ekki tillögu á þessu stigi um breytingu á þeirri röðun virkjunarkosta sem fram kemur í þingsályktun um áætlun um vernd og ...

Landgræðsluverðlaunin afhentSigurður Ingi Jóhannsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, veitti landgræðsluverðlaunin við hátíðlega athöfn í Gunnarsholti á dögunum. Að þessu sinni komu verðlaunin annars vegar í skaut ábúenda á Bíldsfelli II og III í Grímsnes- og Grafningshreppi og hins vegar Hafnarfjarðarbæjar.

Landgræðsla á Bíldsfelli á sér langa sögu, allt frá því húsdýraáburður, moð og annað sem til féll á búinu, var borið í ...

Sigurður Ingi Jóhannsson, umhverfis- og auðlindaráðherra og Magnús Gunnarsson, for

maður Skógræktarfélags Íslands, skrifuðu í dag undir samning vegna Landgræðsluskóga. Samningurinn felur í sér áframhaldandi stuðning ríkisins við verkefni sem hefur það að markmiði að endurheimta landgæði með ræktun og gróðursetningu í rýrt og ógróið land.

Skógræktarfélag Íslands sér um stjórn verkefnisins en skógræktarfélögin sem eru starfrækt víða um land ...

Umhverfis- og auðlindaráðherra hyggst á næstunni setja reglugerð um virkjunarkosti í verndar- og orkunýtingaráætlun (rammaáætlun) sem kveður á um þau gögn sem fylgja skulu beiðni til Orkustofnunar um umfjöllun um mögulegan virkjunarkost. Óskað er eftir umsögnum um þau drög að reglugerðinni sem nú liggja fyrir.

Samkvæmt lögum þarf beiðni um að verkefnastjórn fjalli um virkjunarkost að berast Orkustofnun sem metur ...

Árósasamningurinn logoUmhverfis- og auðlindaráðuneytið undirbýr nú gerð fyrstu skýrslu sinnar um stöðu innleiðingar Árósasamningsins hér á landi, en aðildarríkjum hans ber að skila slíkum skýrslum til skrifstofu samningsins á þriggja ára fresti. Ráðuneytið mun hafa samráð við umhverfisverndarsamtök við gerð skýrslunnar en öllum er velkomið að koma með ábendingar varðandi efni hennar.

Ísland fullgilti í október 2011 Árósasamninginn um aðgang að ...

19. aðildarríkjaþingi Loftslagssamnings S.þ. lauk í dag í Varsjá í Póllandi. Meginefni fundarins var að setja dagskrá og áherslur í viðræðum um nýjan hnattrænan samning um minnkun losunar, sem ljúka á 2015. Einnig náðist árangur varðandi aðgerðir til verndunar skóga og um aðgerðir til að bæta tjón af völdum loftslagstengdra hamfara. Einnig voru fjármál í brennidepli fundarins, en þróunarríki ...

Umhverfis- og auðlindaráðherra hefur falið Skipulagsstofnun að vinna tillögu að landsskipulagsstefnu 2015-2026, í samræmi við skipulagslög. Gert er ráð fyrir að stofnunin skili ráðherra tillögum sínum í lok næsta árs.

Ráðherra hefur setta fram eftirfarandi áherslur við gerð landsskipulagsstefnu:

  1. Skipulag á miðhálendi Íslands
  2. Búsetumynstur – dreifing byggðar
  3. Skipulag á haf- og strandsvæðum
  4. Skipulag landnotkunar í dreifbýli

Þær áherslur sem komu fram ...

Sigurður Ingi Jóhannsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, kynnti áherslur í umhverfismálum vegna formennsku Íslands í norrænu ráðherranefndinni árið 2014, á fundi norrænu umhverfisráðherranna í Osló í dag. Yfirskrift formennskunnar er Gróska – lífskraftur þar sem aðaláherslan verður á lífhagkerfið.

Formennska í samstarfsvettvangi norrænu ríkisstjórnanna, Norrænu ráðherranefndinni, gengur á milli norrænu ríkjanna fimm og tekur Ísland við stjórnartaumunum á næsta ári. Þema Íslands ...

Umhverfisþing verður föstudaginn 8. nóvember 2013 í Hörpunni í Reykjavík. Umhverfisþing fjallar að þessu sinni um skipulag lands og hafs, sjálfbæra þróun og samþættingu verndar og nýtingar.

Fyrir hádegi verða flutt inngangserindi um þessi efni en eftir hádegið verða erindi og umræður í tveimur málstofum, annars vegar um sjálfbæra landnýtingu og hins vegar um skipulag hafs og stranda. Drög að ...

Starfshópur um myrkurgæði á Íslandi hefur skilað umhverfis- og auðlindaráðherra greinargerð sinni þar sem settar eru fram þrettán tillögur um að varðveita myrkurgæði og sporna við ljósmengun á Íslandi, bæði í þéttbýli og dreifbýli.

Hópurinn bendir á að myrkurgæðum hafi hrakað verulega á Íslandi undanfarna áratugi, sérstaklega á höfuðborgarsvæðinu, og telur að ljósmengun sé meiri hérlendis en á sambærilegum svæðum ...

Sigurður Ingi Jóhannsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, hefur skipað samráðsvettvang um mótun stefnu í úrgangsstjórnun. Vettvangnum er ætlað að efla samstarf á sviði úrgangsstjórnunar og stuðla að virku samráði við hagsmunaaðila við mótun stefnu í úrgangsstjórnun.

 Með samramráðsvettvangnum gefst tækifæri til að ræða úrgangsstjórnun í víðu samhengi og velta upp hugmyndum og tillögum sem nýtast við frekari stefnumótun af hálfu ráðuneytisins ...

Sigurður Ingi Jóhannsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, hefur skipað Hjalta Þór Vignisson formann stjórnar Vatnajökulsþjóðgarðs.

Hjalti Þór hefur verið bæjarstjóri á Hornafirði frá árinu 2006 en lætur þar af störfum um næstu mánaðarmót þegar hann tekur til starfa hjá sjávarútvegsfyrirtækinu Iceland Pelagic. Áður starfaði hann m.a. sem forstöðumaður Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar og framkvæmdastjóri stjórnsýslusviðs bæjarins.

Hjalti er með meistaragráðu í stjórnmálafræði ...

Umhverfis- og auðlindaráðherra Sigurður Ingi Jóhannsson hefur ákvarðað að veiðidagar rjúpu í ár verði tólf talsins sem skiptast á fjórar helgar á tímabilinu 25. október til 17. nóvember 2013. Leyfileg heildarveiði á rjúpum er 42.000 rjúpur og er miðað við 6-7 fugla á hvern veiðimann. Áfram verður sölubann á rjúpum og er Umhverfisstofnun falið að fylgja því eftir. Að ...

Í frétt á vef umhverfis- og auðlindaráðuneytisins segir frá í dag segir:

Umhverfis- og auðlindaráðherra hefur ákveðið að afturkalla lög um náttúruvernd nr. 60/2013 sem voru samþykkt á Alþingi rétt fyrir þinglok í vor. Lögum þessum var ætlað að taka gildi 1. apríl 2014.

Ráðherra hefur ákveðið að leggja fram frumvarp á Alþingi þegar þing kemur saman í haust ...

sjálfbærni

Norrænn vinnuhópur um sjálfbæra neyslu hefur skilað af sér skýrslunni „Bætt stefnumörkun og ákvarðanataka á Norðurlöndum ef goðsagnir um sjálfbæra neyslu eru hraktar". Vinnuhópurinn er á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar en samhliða útgáfunni kemur út samantekt yfir stefnu Norðurlandanna á þessu sviði, þar sem m.a. er fjallað um tíu goðsagnir eða misskilning um sjálfbæra neyslu.

Í skýrslunni er m.a ...

Ráðherra ásamt verðlaunahöfum. Sigurður Ingi Jóhannsson, umhverfis- og auðlindaráðherra ásamt verðlaunahöfunum, Vigdísi Finnbogadóttur og Páli Steingrímssyni.
Sigurður Ingi Jóhannsson, umhverfis- og auðlindaráðherra ásamt verðlaunahöfunum, Vigdísi Finnbogadóttur og Páli Steingrímssyni.

Umhverfis- og auðlindaráðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson, veitti í dag í tilefni af Degi íslenskrar náttúru, Páli Steingrímssyni, kvikmyndagerðarmanni, fjölmiðlaverðlaun umhverfis- og auðlindaráðuneytisins. Við sama tækifæri veitti hann Vigdísi Finnbogadóttur, Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti.

Tilnefndir til fjölmiðlaverðlaunanna voru: 

  • Guðbjörg Gissurardóttir, ritstjóri tímaritsins Í boði náttúrunnar fyrir vandað og ...

Örnefni, stjörnur, náttúruljóð, jarðfræði, jurtalitun, útikennsluapp, laxalíf, skipulagsuppdrættir,  náttúruratleikur og kvikmyndafrumsýning er meðal þess sem almenningi gefst kostur á að kynna sér og njóta á Degi íslenskrar náttúru, sem fagnað verður um allt land á mánudag, 16. september.

Sigurður Ingi Jóhannsson umhverfis- og auðlindaráðherra mun í tilefni dagsins veita fjölmiðlaverðlaun umhverfis- og auðlindaráðuneytisins og Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti á ...

Dómnefnd hefur tilnefnt þrjá til fjölmiðlaverðlauna umhverfis- og auðlindaráðuneytisins sem veitt verða á Degi íslenskrar náttúru mánudaginn 16. september næstkomandi.

Tilnefnd til verðlaunanna eru:

Guðbjörg Gissurardóttir, ritstjóri tímaritsins Í boði náttúrunnar
Guðbjörg ritstýrir vönduðu og fallegu tímariti um íslenska náttúru sem hún stofnaði með manni sínum Jóni Árnasyni árið 2010 og nefnist Í boði náttúrunnar. Áður önnuðust þau útvarpsþætti á ...

Fátt hefur mótað íslenska þjóð eins og náttúran. Íslendingar hafa aðlagað líf sitt samspili elds og ísa, dyntóttum veðurguðum og kröftugum sjávarföllum um leið og þeir hafa notið allt alltumlykjandi náttúrufegurðar og haft lísviðurværi sitt af ríkulegum gjöfum íslenskrar foldar.

Dagur íslenskrar náttúru er haldinn hátíðlegur 16. september ár hvert og er undirbúningur fyrir dagskrána í ár hafinn. Einstaklingar, stofnanir ...

Umhverfis- og auðlindaráðuneytið auglýsir eftir tilnefningum til tvennra verðlauna sem afhent verða á Degi íslenskrar náttúru, 16. september næstkomandi. Annars vegar er um að ræða Fjölmiðlaverðlaun umhverfis- og auðlindaráðuneytisins og hins vegar Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti.

Fjölmiðlaverðlaunum umhverfis- og auðlindaráðuneytisins er ætlað að hvetja til hverskyns umfjöllunar um íslenska náttúru, hvort heldur er í því skyni að vekja athygli á ...

Skýrslan Vernd, velferð og veiðar villtra fugla og spendýra sem inniheldur umfjöllun og tillögur nefndar um stöðu villtra fugla og villtra spendýra hefur nú verið gerð aðgengileg á vef umhverfis- og auðlindaráðuneytisins.

Nefndin telur mikilvægt að endurskoðuð löggjöf og stjórnsýsla á þessu sviði taki mið af þremur lykilstoðum, þ.e. vernd, velferð og veiðum villtra dýra. Hver þessara þátta myndi ...

Ríkisstjórn Íslands samþykkti í dag 40 milljóna króna fjárveitingu til vinnu við 3. áfanga áætlunar um vernd og orkunýtingu landsvæða (Rammaáætlun) fyrir árið 2013. Verkefnisstjórn hefur þegar tekið til starfa og er áætlað að hún skili stöðuskýrslu til umhverfis- og auðlindaráðherra í mars á næsta ári.

Verkefnisstjórn hefur það hlutverk að vinna drög að tillögum um flokkun virkjunarhugmynda og afmörkun ...

Umhverfis- og auðlindaráðherra hefur gefið út nýja reglugerð um snyrtivörur sem kemur í stað eldri reglugerðar um snyrtivörur. Í reglugerðinnni er m.a. kveðið á um aukna ábyrgð framleiðenda og innflytjenda snyrtivara með það að markmiði að auka neytendavernd í því skyni að vernda heilsu manna með öflugum hætti.

Með reglugerðinni eru gerðar auknar kröfur til ábyrgðaraðila, þ.e. framleiðenda ...

Umhverfis- og auðlindaráðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson, undirritar friðlýsingu vegna stækkunar friðlandsins í Þjórsárverum á morgun, 21. júní kl. 15:00. Athöfnin verður í Árnesi, Skeiða- og Gnúpverjahreppi en við sama tækifæri undirrita fulltrúar sveitarfélaganna yfirlýsingu um friðlýsinguna.

Undanfarin ár hefur verið unnið að stækkun friðlandsins í Þjórsárverum í samræmi við náttúruverndaráætlun 2009-2013, en svæðið var friðlýst árið 1981 og náði ...

Opnun GestastofuNý gestastofa Vatnajökulsþjóðgarðs í Gömlubúð á Höfn í Hornafirði var opnuð í dag, á fimm ára afmæli þjóðgarðsins. Í gestastofunni er upplýsingaþjónusta fyrir ferðamenn, starfsaðstaða fyrir starfsmenn þjóðgarðsins auk glæsilegrar sýningar um þjóðgarðinn og sögu Gömlubúðar.

Þetta er fjórða gestastofa Vatnajökulsþjóðgarðs en áður er búið að opna Skaftafellsstofu í Skaftafelli, Glúfrastofu í Jökulsárglúfrum og Snæfellsstofu í Fljótsdal. Þá er fyrirhugað ...


Arctic Ocean Acidification (2013) - Full (12 minute) version from AMAP on Vimeo.

Súrnun hafsins, loftslagsbreytingar og áhrif á íbúa á Norðurslóðum er umfjöllunarefni nýs fræðslumyndbands sem Norðurskautsráðið hefur gefið út.

Loftslagsbreytingar eru helsta ógn við lífríki Norðurslóða. Súrnun hafsins er meiri í Norðurhöfum en á hafsvæðum sunnar á hnettinum og er ein helsta ógnin við lífríki hafsins sem er viðkvæmt ...

BreiðafjörðurNorrænn vinnuhópur um verndun hafsins (HAV-hópurinn) auglýsir eftir umsóknum um styrki vegna verkefna sem miða að því að bæta umhverfismál í hafi og á ströndum. Umsóknarfrestur er til 10. júlí 2013.

HAV-hópurinn, sem starfar á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar, úthlutar árlega slíkum styrkjum. Sett er það skilyrði að a.m.k. þrjú norræn lönd taki þátt í verkefninu og að það ...

Sigurður Ingi Jóhannsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, afhjúpaði í dag skjöld á Breiðabakka á Heimaey í Vestmannaeyjum til staðfestingar á því að Surtsey er á heimsminjaskrá Menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNESCO). Í næsta mánuði eru fimm ár liðin frá því að eyjan var samþykkt inn á listann.

Skjöldurinn er staðsettur á Breiðabakka á Heimaey þar sem sjá má til Surtseyjar. Eftir ávarp ...

Umhverfis- og auðlindaráðherra hefur gefið út landsáætlun um meðhöndlun úrgangs fyrir tímabilið 2013-2024. Í áætluninni er að finna ítarlegt yfirlit yfir núverandi stöðu úrgangsmála á Íslandi, bæði hvað varðar magn einstakra úrgangsflokka og þróun mismunandi leiða í meðhöndlun úrgangs. Þar eru einnig sett fram tímasett markmið sem öll miða að því að bæta nýtingu auðlinda og lágmarka þau neikvæðu áhrif ...

Umhverfis- og auðlindaráðherra, Svandís Svavarsdóttir, hefur staðfest friðlýsingu Krepputungu, 678 ferkílómetra svæðis sem liggur á milli Jökulsár á Fjöllum og Kreppu. Svæðið verður hluti Vatnajökulsþjóðgarðs en innan þess er m.a. Kverkfjallarani og Hvannalindir. Þegar í sumar verður aukið við landvörslu á hinu friðlýsta svæði.

Hið friðlýsta svæði nær til svokallaðrar Krepputungu sem er ungt eldfjallaland, og er yfirborð hennar ...

Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur hafnað beiðni stýrihóps um brennisteinsvetni frá jarðgufuvirkjunum, um sex ára frestun á hertum gildistökuákvæðum í reglugerð um styrk brennisteinsvetnis í andrúmslofti. Telur ráðuneytið ekki fullreynt hvort einhverjar þeirra leiða sem hafa verið til skoðnar til að draga úr brennisteinsmengun frá virkjununum muni skila árangri fyrir 1. júlí 2014, þegar ákvæðin taka gildi.

Að stýrihópnum standa Orkuveita ...

Nemendur í 5. og 6. bekk Kerhólsskóla í Grímsnes- og Grafningshreppi hljóta útnefninguna Varðliðar umhverfisins fyrir verkefnið Breytum rétt - mengum minna. Verkefnið gengur út á að nemendurnir safna saman smáraftækjum á borð við farsíma og tónhlöður í sérstök safnílát sem þeir hafa komið fyrir á áberandi stöðum í sveitarfélaginu. Nemendurnir hafa kynnt verkefnið með ýmsum hætti fyrir sveitungum sínum, s ...

Umhverfis- og auðlindaráðherra, Svandís Svavarsdóttir, veitti Íslenskum fjallaleiðsögumönnum í dag Kuðunginn, umhverfisviðurkenningu umhverfis- og auðlindaráðuneytisins, fyrir framúrskarandi starf að umhverfismálum á síðasta ári. Við sama tækifæri voru nemendur í Kerhólsskóla í Grímsnes- og Grafningshreppi, Melaskóla í Reykjavík og Patreksskóla á Patreksfirði útnefndir Varðliðar umhverfisins. Við athöfnina var undirritaður viðaukasamningur við Landvernd um verkefnið Skóla á grænni grein (Grænfánaverkefnið) sem felur ...

Umhverfis- og auðlindaráðuneytið efnir til dagskrár miðvikudaginn 24. apríl næstkomandi í tilefni af degi umhverfisins, sem í ár ber upp á sumardaginn fyrsta. Efnt verður til málþings um loftgæði og lýðheilsu auk þess sem Svandís Svavarsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra afhendir viðurkenningar fyrir störf á sviði umhverfismála á sérstakri hátíðarsamkomu.

Dagur umhverfisins er þann 25. apríl næstkomandi en það er fæðingardagur ...

Umhverfis- og auðlindaráðuneytið og velferðarráðuneytið bjóða til málþings um loftgæði og lýðheilsu þ. 24. apríl kl. 10 -12 á Nauthóli í Öskjuhlíð í aðdraganda Dags umhverfisins.

Á málþinginu verður fylgt úr hlaði nýju riti starfs hóps ráðuneytanna tveggja um loftgæði og heilsufar á Íslandi þar sem einnig eru settar fram tillögur til úrbóta.

Dagskrá:

10:00  Opnun og ávarp umhverfis- ...

Stýrihópur skilaði í dag Guðbjarti Hannessyni, velferðarráðherra og Svandísi Svavarsdóttur, umhverfis- og auðlindaráðherra, riti sem inniheldur úttekt á loftgæðum og lýðheilsu þeim tengdum. Efnt verður til málþings í næstu viku til að fylgja ritinu eftir.

Loftmengun  er fylgifiskur aukins mannfjölda og þéttbýlismyndunar á jörðinni og er hættuleg heilsu og lífsgæðum, einkum þeirra sem þjást af  sjúkdómum í öndunarfærum eða hjarta ...

Svandís Svavarsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra, kynnti í ríkisstjórn í morgun skýrslu Umhverfisstofnunar um ástand friðlýstra svæða. Sex svæði eru nú talin í verulegri hættu sem er fækkun um fjögur svæði ef miðað er við sambærilegan lista sem gefinn var út fyrir tveimur árum.

Svæðin sem fjallað er um í skýrslunni eru flokkuð í tvo hópa og lenda á rauðum eða ...

Umhverfis- og auðlindaráðherra, Svandís Svavarsdóttir, hefur í dag skipað Stefán Thors í embætti ráðuneytisstjóra í umhverfis- og auðlindaráðuneytinu.

Embættið var auglýst laust til umsóknar þann 12. janúar sl. og þriggja manna ráðgefandi hæfnisnefnd var skipuð í samræmi við 19. gr. laga nr. 115/2011, um Stjórnarráð Íslands, sbr. reglur nr. 393/2012 um ráðgefandi nefndir er meta hæfni umsækjenda um ...

Umhverfis- og auðlindaráðherra, Svandís Svavarsdóttir, hefur skipað verkefnastjórn rammaáætlunar um vernd og orkunýtingu náttúrusvæða. Verkefnisstjórn er skipuð til fjögurra ára í senn og skal að fengnum niðurstöðum faghópa, samráði við haghafa og umsagnar almennings vinna drög að rökstuddum tillögum til ráðherra um flokkun virkjunarhugmynda og afmörkun virkjunar- og verndarsvæða. Rammaáætlun er meðal þeirra verkefna sem fluttust til umhverfis- og auðlindaráðuneytisins ...

Úthlutunarnefnd á vegum umhverfis- og auðlindaráðuneytisins óskar eftir tilnefningum um fyrirtæki eða stofnun, sem vegna verka sinna og athafna á síðasta ári, er þess verðug að hljóta umhverfisviðurkenninguna Kuðunginn fyrir árið 2012.

Óskað er eftir því að stutt greinargerð fylgi með tilnefningunni. Fyrirtæki og stofnanir geta hvort heldur tilnefnt sig sjálf eða verið tilnefnd af öðrum.

Kuðungurinn er viðurkenning á ...

Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur úthlutað styrkjum til verkefna er stuðla að uppbyggingu á sviði umhverfismála.

Á árinu 2012 voru gerðar breytingar á úthlutun styrkja til félaga, samtaka og einstaklinga á þann veg að Alþingi hætti úthlutunum á styrkjum til ýmissa verkefna til félaga, samtaka og einstaklinga eins og verið hefur. Alþingi ákvarðar áfram umfang styrkja til einstakra málaflokka en úthlutun ...

kort LMÍ borið saman við yahoo kortStafræn kort og landupplýsingar í vörslu Landmælinga Íslands hafa verið gerð gjaldfrjáls, samkvæmt ákvörðun Svandísar Svavarsdóttur umhverfis- og auðlindaráðherra. Gögnin eru notuð við ýmis verkefni á vegum stofnana ríkisins s.s. við eignaskráningu, skipulagsmál, náttúruvernd, náttúruvá, orkumál, rannsóknir og opinberar framkvæmdir en einnig gagnast þau almenningi og fyrirtækjum með margvíslegum hætti.

Markmiðið með því að gera stafræn kort og landupplýsingar ...

  • Ísland meðal 37 ríkja sem taka á sig skuldbindingar um takmörkun á losun gróðurhúsalofttegunda
  • Ísland tekur á sig sameiginlegar skuldbindingar með 28 öðrum ríkjum
  • Ísland uppfyllir skuldbindingar með framkvæmd aðgerðaáætlunar og framfylgd EES-reglna

Skuldbindingar Kýótó-bókunarinnar um losun gróðurhúsalofttegunda verða framlengdar til ársins 2020, samkvæmt ákvörðun 18. aðildarríkjaþings Loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna, sem lauk í dag í Doha í Katar. Fyrsta skuldbindingartímabilinu ...

Umhverfis- og auðlindaráðherra, Svandís Svavarsdóttir, staðfesti í gær friðlýsingu náttúruvættisins Blábjarga á Berufjarðarströnd í Djúpavogshreppi. Björgin, sem eru í landi Fagrahvamms, eru all sérstæð fyrir grænleitan blæ sem rekja má til klórítsteindar sem myndaðist við ummyndun bergsins.

Blábjörg eru hluti af sambræddu flikrubergi, sem hefur verið kallað Berufjarðartúff (Berufjörður acid tuff) og myndaðist í gjóskuflóði í líparítsprengigosi. Í jarðlagastaflanum er ...

Umhverfis- og auðlindaráðherra, Svandís Svavarsdóttir, opnaði í dag nýtt veftækt vákort af Norður-Atlantshafi á nasarm.is með upplýsingum um þá þætti sem eru í hættu við mengunarslys á hafsvæðinu. Við sama tækifæri undirrituðu Georg Kr. Lárusson forstjóri Landhelgisgæslu Íslands og Gunnlaug Einarsdóttir staðgengill forstjóra Umhverfisstofnunar samning um samvinnu stofnananna um eftirlit með mengun á sjó. Þá tók í gær gildi ...

Svandís Svavarsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra afhenti veitingastaðnum Nauthól Svansmerkið á þriðjudag. Nauthóll er þar með fyrsta veitingahús landsins sem uppfyllir skilyrði norræna umhverfismerkisins, en áður hafa kaffihús Kaffitárs hlotið vottun.

Svansvottunin tekur m.a. til orkunotkunar, flokkunar rusls, gæða umhverfis og heilnæmi hráefnis. Starfsfólk Nauthóls hefur nú lært að flokka úrgang á fjóra vegu, nota sérstök Svansvottuð hreinsiefni, gæta að ...

Vegna frétta af umræðum á Alþingi í gær vill umhverfis- og auðlindaráðuneytið koma eftirfarandi á framfæri:

Veðurstofa Íslands spáði ítrekað stormi og snjókomu á Norðurlandi í aðdraganda óveðurs sem gekk yfir landshlutann dagana 9. - 11. september síðastliðinn.

Fyrsta spá um veðrið kom fram í textaspá tæpri viku áður en óveðrið reið yfir, eða þriðjudaginn 4. september þar sem spáð var ...

Vatn í listum er viðfangsefni hádegisfyrirlesturs í Þjóðminjasafninu, miðvikudaginn 7. nóvember kl. 12:10. Þar mun Halldór Björn Runólfsson, safnstjóri Listasafns Íslands fjalla um vatn í myndlist og Karólína Eiríksdóttir, tónskáld fjalla um vatn í tónlist.

Í fyrirlestrum fyrr á árinu hefur verið fjallað um stærð og eðli vatnsauðlindarinnar á Íslandi annars vegar og í Afríku hins vegar þar sem ...

Efnahags- og framfarastofnunin (OECD) hefur opnað vefsvæði þar sem nálgast má með einföldum hætti nýjustu upplýsingar um vörur, aðrar en matvæli, sem hafa verið innkallaðar af markaði í Evrópu, Bandaríkjunum, Ástralíu og Kanada.

Vefsvæðinu, globalrecalls.oecd.org, er ætlað að ýta undir og bæta vöruöryggi en Efnahags- og framfarastofnunin telur kostnað vegna dauðsfalla og slysa af völdum skaðlegra framleiðsluvara nema ...

Umhverfis- og auðlindaráðherra hefur ákveðið fyrirkomulag rjúpnaveiða haustið 2012, að fengnu mati og tillögum Náttúrufræðistofnunar Íslands og Umhverfisstofnunar. Veiðar verða heimilar í níu daga líkt og haustið 2011 og dreifist veiðitímabilið á fjórar helgar með eftirfarandi hætti:

 

Föstudagurinn 26. október til sunnudagsins 28. október.

Laugardagurinn 3. nóvember og sunnudagurinn 4. nóvember.

Laugardagurinn 17. nóvember og sunnudagurinn 18. nóvember.

Laugardagurinn 24 ...

Verðlaunahafar á Degi íslenskrar náttúru
Umhverfis- og auðlindaráðherra, Svandís Svavarsdóttir, veitti í dag í tilefni af Degi íslenskrar náttúru, Rúnari Pálmasyni, blaðamanni á Morgunblaðinu, Fjölmiðlaverðlaun umhverfis- og auðlindaráðuneytisins. Við sama tækifæri veitti hún Hjörleifi Guttormssyni, Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti.

Tilnefndir til Fjölmiðlaverðlaunanna voru:

  • Tímaritið Fuglar fyrir umfjöllun um fugla í náttúru Íslands.
  • Herdís Þorvaldsdóttir fyrir heimildamynd sína „Fjallkonan hrópar á ...

Í dag er haldið upp á Dag íslenskrar náttúru í annað sinn en þ. 16. september árið 2010 ákvað ríkisstjórnin a helga náttúrunni einn dag árlega og var afmælisdagur eins skeleggasta baráttumanns fyrir verndun íslenskrar náttúru, Ómars Ragnarssonar, fyrir valinu (sjá frétt). Deginum verður fagnað á margvíslegan hátt um allt land og er dagskráin sem hér segir:

Allt landið

  • 10 ...

Dómnefnd hefur tilnefnt þrjá til fjölmiðlaverðlauna umhverfis- og auðlindaráðuneytisins, sem veitt verða á Degi íslenskrar náttúru, sunnudaginn 16. september næstkomandi.

Tilnefnd til verðlaunanna eru:

  • Tímaritið Fuglar fyrir umfjöllun um fugla í náttúru Íslands. Fuglar er fróðlegt tímarit sem leitast við að beina sjónum að því helsta sem tengist staðfuglum, farfuglum og sjaldgæfum flækingum, fræða almenning um helstu búsvæði fugla og ...

Umhverfis- og auðlindaráðuneytið óskar eftir umsögnum um drög að frumvarpi til náttúruverndarlaga sem áformað er að leggja fram á Alþingi í haust. Drögin byggja á Hvítbók um löggjöf til verndar náttúru Íslands, sem gefin var út á síðastliðnu ári að teknu tilliti til athugasemda er bárust um hana.

Frumvarpið felur í sér heildarendurskoðun á náttúruverndarlögum. Meðal breytinga sem frumvarpið mælir ...

Sóa Íslendingar vatni? er yfirskrift fyrirlesturs sem Kristín Linda Árnadóttir, forstjóri Umhverfisstofnunar heldur í Þjóðminjasafninu miðvikudaginn 5. september. Fyrirlesturinn er sá þriðji í röð hádegisfyrirlestra um vatn sem umhverfisráðuneytið, Landgræðsla ríkisins, Umhverfisstofnun, Veðurstofa Íslands og Vatnafræðinefndin efna til í tilefni af evrópsku ári vatnsins.

Í fyrirlestrinum mun Kristín Linda fjalla um vatnsnotkun Íslendinga og félagsleg og menningarleg áhrif vatns á ...

Umhverfis- og auðlindaráðuneyti tekur til starfa laugardaginn 1. september við tilflutning verkefna úr sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti og iðnaðarráðuneyti til umhverfisráðuneytis. Nýtt skipurit tekur þá gildi en það var kynnt á fundi með starfsmönnum í gær.

Við breytingarnar munu rannsóknir á auðlindum og ráðgjöf um nýtingu þeirra verða verkefni umhverfis- og auðlindaráðuneytis. Ráðuneytinu er í því sambandi falið að setja viðmið ...

Undirbúningur vegna Dags íslenskrar náttúru er nú kominn á fullt skrið en dagurinn verður haldinn hátíðlegur í annað sinn sunnudaginn 16. september næstkomandi. Sérstakt vefsvæði tileinkað deginum hefur verið opnað á vef umhverfisráðuneytisins.

Dagskráin er í mótun en meðal annars munu stofnanir umhverfisráðuneytisins efna til ýmiss konar viðburða í tilefni dagsins sem verða auglýstir þegar nær dregur. Umhverfisráðherra efnir til ...

Umhverfisráðuneytið auglýsir eftir tilnefningum til tveggja verðlauna, sem afhent verða á Degi íslenskrar náttúru, sem haldinn verður hátíðlegur öðru sinni þann 16. september næstkomandi. Annars vegar er um að ræða Fjölmiðlaverðlaun umhverfisráðuneytisins og hins vegar náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti.

Fjölmiðlaverðlaun umhverfisráðuneytisins voru veitt í fyrsta skipti á Degi íslenskrar náttúru í fyrra. Verðlaununum er ætlað að hvetja til hverskyns umfjöllunar ...

Alþingi hefur samþykkt ný lög um loftslagsmál, sem leysa af hólmi lög nr. 65/2007 um losun gróðurhúsalofttegunda. Þetta er fyrsta heildstæða löggjöf á sviði loftslagsmála hérlendis.

Markmið lagasetningarinnar er að meginstefnu tvíþætt. Annars vegar að setja heildarlöggjöf um loftslagsmál og gefa með því málaflokknum tilhlýðinlegan gaum sem sjálfstæðum málaflokki meðal umhverfismála. Með því er loftslagsmálum mörkuð viðeigandi staða í ...

Umhverfisráðuneytið, Umhverfisstofnun, Veðurstofa Íslands, Landgræðsla ríkisins og Íslenska vatnafræðinefndin bjóða til hádegisfyrirlesturs undir yfirskriftinni „Vatnsmiðlun og lífið“ þar sem Ólafur Arnalds, prófessor við Landbúnaðarháskóla Íslands fjallar um samspil vatns og jarðvegs.

Erindið verður haldið í fyrirlestrarsal Þjóðminjasafnsins, fimmtudaginn 7. júní og hefst kl. 12:10.

Mold er mikilvægur liður í hringrás vatnsins á jörðinni. Jarðvegsvernd er því sérlega þýðingarmikil en ...

„Hvað munu næstu fjórir áratugir hafa í för með sér?“ er spurning sem ný skýrsla OECD um horfur í umhverfismálum fram til 2050 glímir við. Skýrslan beinir sjónum að fjórum meginatriðum: loftslagsbreytingum, líffræðilegri fjölbreytni, vatni og lýðheilsu og loks umhverfi.

„Mannkynið hefur orði vitni að fordæmalausum vexti og velmegun á síðastliðunum fjórum áratugum, stærð efnahagskerfis heimsins hefur meira en þrefaldast ...

Umhverfisráðuneytið stendur fyrir málþingi um Árósasamninginn, þar sem fjallað verður um upplýsingagjöf og samráð í umhverfismálum og aðkomu almennings, félagasamtaka og hagsmunaaðila að ákvarðanatöku í umhverfismálum. Málþingið fer fram miðvikudaginn 30. maí næstkomandi í Þjóðminjasafninu frá kl. 13:00 til 16:30. Það er öllum opið og er aðgangur ókeypis.

Alþingi samþykkti síðastliðið haust fullgildingu Árósasamningsins og tóku lög þar ...

Iðnaðarráðherra og umhverfisráðherra hafa skipað nefnd er móta skal stefnu um lagningu raflína í jörð í samræmi við þingsályktun Alþingis í þskj. 748 frá 1. febrúar 2012.  Á undanförnum árum hefur orkuframleiðsla á Íslandi aukist mjög og jafnframt gagnrýni á neikvæð umhverfisáhrif hennar.  Einn þáttur þeirra áhrifa er sjónmengun af völdum háspennulína og hefur sú krafa orðið háværari að jarðstrengir ...

Umhverfisráðuneytið, Umhverfisstofnun, Veðurstofa Íslands, Landgræðsla ríkisins og Íslenska vatnafræðinefndin efna til hádegisfyrirlestra undir yfirskriftinni Má bjóða þér vatn? Fyrstu erindin verða í Norræna húsinu, miðvikudaginn 2. maí kl. 12:10 ­­– 13:00 og verður fjallað um vatnsauðlindina á Íslandi og aðgang að vatni á heimsvísu.

Fyrirlesarar eru tveir:

  • Árni Snorrason, forstjóri Veðurstofu Íslands, flytur erindi um Vatnsauðlindir Íslands. Hann fjallar ...

Umhverfisráðherra, Svandís Svavarsdóttir, veitti Náttúrunni.is í dag Kuðunginn, umhverfisviðurkenningu umhverfisráðuneytisins, fyrir framúrskarandi starf að umhverfismálum. Við sama tækifæru voru nemendur í Stórutjarnaskóla í Ljósavatnsskarði og Foldaskóla í Grafarvogi útnefndir Varðliðar umhverfisins. Við athöfnina í dag opnaði umhverfisráðherra einnig nýtt Endurvinnslukort Náttúrunnar.is sem sérstaklega er hannað fyrir snjallsíma og spjaldtölvur.

Kuðungurinn

Náttúran.is hlaut Kuðunginn fyrir samnefnda „framúrskarandi vefsíðu ...

Dagur umhverfisins verður haldinn hátíðlegur á morgun þann 25. apríl. Að þessu sinni ber daginn upp á 250 ára fæðingarafmæli náttúrufræðingsins og læknisins Sveins Pálssonar sem dagurinn er tileinkaður og bera hátíðarhöldin þeirra tímamóta nokkur merki.

Dagskráin hefst í raun daginn á undan, þ.e. þriðjudaginn 24. apríl, með málþingi um Svein Pálsson þar sem fjallað verður um hann frá ...

Umhverfisráðherra hefur breytt reglugerð nr. 456/1994 um fuglaveiðar og nýtingu hlunninda af villtum fuglum á þann veg að stytta veiðitíma fimm tegunda svartfugla nú í vor. Veiðar á álku, langvíu, lunda, stuttnefju og teistu verða heimilar til 25. apríl í stað 10. maí nú í vor. Með styttingu veiðitímans nú er vonast til að dragi úr afföllum og álagi ...

Umhverfisráðuneytið, í samvinnu við Landgræðslu ríkisins, Læknafélag Íslands og Mýrdalshrepp boðar til málþings um ævi og störf fyrsta íslenska náttúrufræðingsins Sveins Pálssonar í tilefni af 250 ára fæðingarafmæli hans sem er á Degi umhverfisins, 25. apríl næstkomandi. Til að heiðra minningu hans var fæðingardagur Sveins valinn sem Dagur umhverfisins á Íslandi árið 1999.

Sveinn var annálaður fræðimaður, rithöfundur, læknir og ...

Utanríkisráðuneyti, umhverfisráðuneyti, Stofnun Sæmundar fróða um sjálfbæra þróun og þverfræðilegar rannsóknir, Alþjóðamálastofnun og Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi boða til opins fundar um Ríó+20, ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun, sem fram fer í Ríó de Janeiro í júní n.k. Á Ríó+20 verður áhersla m.a. lögð á endurnýjuð pólitísk heit og græna hagkerfið sem leið að ...

Draga verður úr losun sóts og metans til að sporna gegn loftslagsbreytingum á Norðurskautssvæðinu. Þetta segja norrænu umhverfisráðherrarnir í sameiginlegri yfirlýsingu sem gefin var út í lok fundar þeirra á Svalbarða í gær.

Sót og metan hafa mikil áhrif á loftslag þrátt fyrir stuttan líftíma í andrúmsloftinu. Með því að draga úr losun slíkra efna er hægt að hafa mikil ...

Úthlutunarnefnd á vegum umhverfisráðuneytisins óskar eftir tilnefningum um fyrirtæki eða stofnun, sem vegna verka sinna og athafna á síðasta ári, er þess verðugt að hljóta umhverfisviðurkenninguna Kuðunginn fyrir árið 2011.

Óskað er efti því að stutt greinargerð fylgi með tilnefningunni. Fyrirtæki og stofnanir geta hvort heldur tilnefnt sig sjálf eða verið tilnefnd af öðrum.

Tillögur skulu berast umhverfisráðuneytinu eigi síður ...

Sérákvæði um starfandi sorpbrennslustöðvar hafa nú verið felld úr gildi með breytingu á reglugerð um brennslu úrgangs. Reglugerðin, sem nýlega var undirrituð, hefur í för með sér að allar íslenskar sorpbrennslustöðvar eiga nú að uppfylla sömu kröfur og gerðar eru til sambærilegrar starfsemi á Evrópska efnahagssvæðinu.

Með breytingunni er sorpbrennslustöðvum gert að uppfylla öll ákvæði reglugerðarinnar eigi síðar en 1 ...

Umhverfisráðuneytið hefur úthlutað styrkum til verkefna er stuðla að faglegri uppbyggingu á sviði umhverfismála.Úthlutunin er í samræmi við breytt fyrirkomulag úthlutunar styrkja til félaga, samtaka og lögaðila en Alþingi hefur hætt úthlutun á styrkjum til ýmissa verkefna eins og verið hefur. Alþingi ákvarðar áfram umfang fjárframlaga en úthlutun er í höndum mismunandi ráðuneyta eftir málefnasviðum þeirra.  Í úthlutun umhverfisráðuneytisins ...

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra hefur skipað starfshóp um myrkurgæði, en hópnum er ætlað að taka saman upplýsingar um þau lög og reglur sem gilda um ljósmengun á Íslandi og víðar. Hópurinn skal skila tillögum um hugsanlegar úrbætur á þessu sviði til umhverfisráðherra næstkomandi haust.

Ákveðið var að skipa starfshópinn í framhaldi af fyrirspurn Marðar Árnasonar þingmanns á Alþingi í janúar síðastliðnum ...

Starfshópur sem Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra skipaði í september sl. um verndun og endurreisn svartfuglastofna leggur m.a. til að fimm tegundir sjófugla af svartfuglaætt verði friðaðar fyrir öllum veiðum og nýtingu næstu fimm árin. Þetta kemur fram í skýrslu sem hópurinn hefur skilað af sér og umhverfisráðherra kynnti í ríkisstjórn í morgun.

Starfshópnum var falið að gera tillögur um aukna ...

  • Nýtt lagalega bindandi samkomulag um losun með þátttöku allra náist 2015
  • Gengið verður frá 2. skuldbindingartímabili Kýótó en með takmarkaðri þátttöku
  • Ísland tekur á sig sambærilegar skuldbindingar og önnur Evrópuríki
  • Tillaga Íslands um endurheimt votlendis til að draga úr losun samþykkt

Samkomulag náðist aðfararnótt sunnudags á loftslagsráðstefnunni í Durban í Suður-Afríku um aðgerðir til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Meginþættirnir ...

Skólum á grænni grein vex fiskur um hrygg á fullveldisdaginn, 1. desember. Þá verður undirritaður þriggja ára styrktarsamningur milli umhverfisráðuneytisins, mennta- menningarmálaráðuneytisins og Landverndar, sem stýrir verkefninu en það er einnig þekkt sem Grænfánaverkefnið.

Samningurinn verður undirritaður í Kvennaskólanum í Reykjavík, sem er 200. skólinn á Íslandi sem hóf þátttöku í verkefninu. Til gamans má geta að 100. skólinn sem ...

Umhverfisráðuneytið óskar eftir tillögum og ábendingum frá almenningi og hagsmunaaðilum vegna landsáætlunar um úrgang 2012 – 2023 en gerð hennar stendur nú yfir. Áætlunin mun geyma stefnu stjórnvalda í úrgangsmálum auk þess að tilgreina stöðu úrgangsmála í landinu.

Landsáætlunin tekur til hvers kyns úrgangsmála, hvort sem um er að ræða hvernig auðvelda eigi almenningi flokkun úrgangs, hvernig standa skuli að endurvinnslu ...

Umhverfisráðuneytið og sveitarfélagið Hornafjörður standa saman að ráðstefnu um deiliskipulag og hugmyndir um friðlýsingu vestanverðs Jökulsárlóns á Breiðamerkursandi næstkomandi fimmtudag. 

Ráðstefnan er haldin í tilefni af því að unnið er að nýju deiliskipulagi við Jökulsárlón á sama tíma og komið hafa fram hugmyndir um að vesturhluti lónsins og Breiðamerkursands, sem eru þjóðlendur, verði hluti af Vatnajökulsþjóðgarði.

Markmiðið með ráðstefnunni er ...

Með rammaáætlun er mörkuð stefna um það hvaða virkjunarkostir komi til greina og hvaða svæði beri að friða. Frá 19. ágúst hafa drög að rammaáætlun verið til umsagnar hjá þjóðinni og rennur umsagnarfrestur út á miðnætti föstudaginn 11. nóvember. Allar innkomnar umsagnir má sjá á vefsvæðinu rammaaaetlun.is.

Opnu 12 vikna samráðs og kynningarferli um drög að þingsályktun iðnaðarráðherra og ...

Umhverfisráðuneytið efnir til almennra kynningarfunda á nokkrum stöðum á landsbyggðinni vegna hvítbókar, sem nefnd um endurskoðun náttúruverndarlaga skilaði af sér í haust og felur í sér heildarúttekt á lagaumhverfi náttúruverndar á Íslandi. Hvíbókin verður grunnur að væntanlegri endurskoðun náttúruverndarlaga sem unnið verður að á komandi mánuðum.

Í hvítbókinni er m.a. fjallað um nýjar aðferðir og viðhorf sem hafa rutt ...

Rannsóknastofa í kvenna- og kynjafræðum við Háskóla Íslands (RIKK) boðar til alþjóðlegrar ráðstefnu í tilefni af 20 ára afmæli stofnunarinnar og 100 ára afmælis Háskóla Íslands. Ráðstefnan fer fram dagana 4.–5. nóvember 2011 við Háskóla Íslands og dagskrána má nálgast hér (.pdf).

Ráðstefnan í ár skiptist í 20 málstofur með þátttöku fræðimanna af ólíkum fræðasviðum. Athygli er vakin á ...

Utanríkisráðuneyti og umhverfisráðuneyti í samvinnu við framkvæmdastjórn ESB standa þann 25. október fyrir málþingi um ESB og umhverfismál. Ráðstefnan verður haldin í CenterHotel Plaza Aðalstræti 4.

Á málþinginu verður fjallað um hvaða áhrif þátttaka Íslands í Evrópska efnhagssvæðinu (EES) hefur haft á umhverfislöggjöf landsins og hvaða breytingar hugsanleg aðild að Evrópusambandinu myndi hafa í för með sér á því sviði ...

Yfir 300 manns eru væntanlegir á VII. Umhverfisþing sem haldið verður á Hótel Selfossi á morgun. Umhverfisþing fjallar að þessu sinni um náttúruvernd. Meðal annars verður nýútkomin hvítbók um löggjöf til verndar náttúru Íslands kynnt og rædd á þinginu en bókinni er ætlað að leggja grunn að heildarendurskoðun náttúruverndarlaga,.

Í málstofum verður fjallað um friðlýsingar og framkvæmd náttúruverndaráætlunar, vísindaleg viðmið ...

Umhverfisráðherra hefur fallist á ráðleggingar Náttúrufræðistofnunar um ráðlagða rjúpnaveiði árið 2011 upp á 31.000 fugla. Þetta eru ríflega helmingi færri fuglar en árið 2010, sem skýrist af verri stöðu rjúpnastofnsins. Með því að deila ráðlagðri veiði á fjölda skráðra rjúpnaveiðimanna undanfarin ár má þannig gera ráð fyrir um 6 rjúpum á hvern veiðimann.

Fyrirkomulagi rjúpnaveiða verður vegna þessa breytt ...

Umhverfisþing verður haldið þ. 14. október nk. á Hótel Selfossi. Á þinginu verður fjallað um náttúruverndarmál, þar á meðal nýútkomna hvítbók um endurskoðun náttúruverndarlaga, friðlýsingar, ferðaþjónustu, útivist, náttúruvísindi og viðmið fyrir náttúruvernd.

Heiðursgestur er Ella Maria Bisschop-Larsen, formaður Dönsku náttúruverndarsamtakanna sem fagna 100 ára afmæli í ár.

Dagskrá þingsins og nánari upplýsingar er að finna á vef umhverfisráðuneytisins.

Nauðsynlegt  er ...

Umhverfisráðherra, Svandís Svavarsdóttir, kynnti í morgun í ríkisstjórn samstarf sem hafið er við bæjarstjórn Vesturbyggðar um að vinna að friðlýsingu Látrabjargs og Rauðasands. Svæðið hefur frá upphafi náttúruverndaráætlunar verið tilgreint sem eitt af þeim svæðum sem mikilvægt er að vernda sem friðland eða þjóðgarð.

Látrabjarg og Rauðasandur einkennast af mikilfenglegu og fjölbreyttu landslagi, stórbrotnu fuglabjargi ásamt minjum um búskap við ...

Ríkisstjórnin samþykkti í morgun, að tillögu umhverfisráðherra og mennta- og menningarmálaráðherra að bæta Torfajökulssvæðinu á yfirlitsskrá Íslands með tilnefningu til heimsminjaskrár UNESCO í huga.

Torfajökulseldstöðin er einstök bæði á landsvísu og á heimsvísu. Hún er megineldstöð, með stærsta líparítsvæði landsins og innan öskjunnar er stærsta háhitasvæði landsins. Mikill hluti gosmyndana varð til við gos í jökli og er þetta hugsanlega ...

Alþingi hefur samþykkt  frumvarp til laga um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála vegna fullgildingar Árósasamningsins, en hann fjallar um aðgang almennings að upplýsingum, þátttöku hans í ákvarðanatöku og aðgang að réttlátri málsmeðferð í umhverfismálum. Að auki samþykkti Alþingi annað frumvarp til ýmissa breytinga á lögum sem eiga að tryggja að íslensk löggjöf samræmist samningnum. Lögin taka gildi 1. janúar nk.

Fullgilding ...

Umhverfisráðherra, Svandís Svavarsdóttir, veitti í dag í tilefni af Degi íslenskrar náttúru, Ragnari Axelssyni, Rax, ljósmyndara á Morgunblaðinu, fjölmiðlaverðlaun umhverfisráðuneytisins - Jarðarberið.

Tilnefndir voru:

  • Morgunblaðið fyrir upplýsandi og vandaða umfjöllun um áhrif loftslagsbreytinga á íslenska náttúru í greinarflokknum Hamskipti lífríkis og landslags. Greinarnar skrifuðu blaðamennirnir  Guðni Einarsson og Rúnar Pálmason en þeim til aðstoðar var Elín Esther Magnúsdóttir sem vann grafík ...

Dagur íslenskrar náttúru verður haldinn hátíðlegur á morgun, föstudaginn 16. september. Efnt verður til margra viðburða víða um land í tilefni dagsins, þar sem almenningur, skólabörn, náttúrufræðingar, fjölmiðlar, háskólafólk, ráðamenn, sendiherrar, sveitarstjórnarfólk og fjöldi annarra koma við sögu.

Umhverfisráðherra mun veita fjölmiðlaverðlaun í tilefni dagsins, en ætlunin er að veita slík verðlaun árlega hér eftir.
Eftirtalin eru tilnefnd til verðlaunanna ...

Dómnefnd hefur tilnefnt fjóra til fjölmiðlaverðlauna umhverfisráðuneytisins sem veitt verða í fyrsta sinn 16. september næstkomandi á Degi íslenskrar náttúru.

Tilnefnd til verðlaunanna eru:

  • Morgunblaðið fyrir upplýsandi og vandaða umfjöllun um áhrif loftslagsbreytinga á íslenska náttúru í greinarflokknum Hamskipti lífríkis og landslags. Greinarnar skrifuðu blaðamennirnir  Guðni Einarsson og Rúnar Pálmason en þeim til aðstoðar var Elín Esther Magnúsdóttir sem vann ...

HvítbókinUmhverfisráðherra, Svandís Svavarsdóttir, kynnti í morgun í ríkisstjórn hvítbók sem nefnd um endurskoðun náttúruverndarlaga hefur unnið en í henni felst heildarendurskoðun og -úttekt á lagaumhverfi náttúruverndar á Íslandi.

Þetta er í fyrsta sinn sem slík hvítbók er unnin í því skyni að leggja grunn að smíði nýrrar löggjafar hér á landi en það er í samræmi við vinnubrögð sem tíðkast ...

Hér á eftir fer ávarp umhverfisráðherra Svandísar Svavarsdóttur v. dags íslenskrar náttúru sem haldin verður hátíðlegur í fyrsta sinn þ. 16. september nk.

Vart þarf að tíunda hversu mikilvæg íslensk náttúra er okkur öllum. Náttúra landsins gegnir lykilhlutverki í sjálfsmynd okkar sem þjóðar, í menningu okkar, efnahags- og atvinnulífi, ferðamennsku og afþreyingu. Í aldanna rás hefur íslensk náttúra gefið okkur ...

Ríkisstjórn Íslands samþykkti á fundi sínum á föstudag, að tillögu Svandísar Svavarsdóttur umhverfisráðherra, að hafin yrði vinna við hættumat fyrir eldgos á Íslandi. Um viðamikla vinnu er að ræða sem gróflega er áætlað að taki 15 – 20 ár í heildina en fyrsti áfanginn er verkefni til þriggja ára.

Eldgosin í Grímsvötnum og Eyjafjallajökli hafa undirstrikað nauðsyn þess að vinna hættumat ...

Umhverfisráðherra, Svandís Svavarsdóttir, fundar með hugsuðinum og baráttukonunni Vandana Shiva á mánudag í tilefni af komu hennar hingað til lands. Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra og Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra taka einnig þátt í fundinum.

Vandana Shiva hefur barist fyrir sjálfbærri þróun með áherslu á umhverfis- og mannréttindamál um áratuga skeið. M.a. er hún þekkt um allan heim fyrir baráttu ...

Ríkisstjórn Íslands ákvað síðastliðið haust, að tillögu Svandísar Svavarsdóttur umhverfisráðherra, að tileinka 16. september ár hvert íslenskri náttúru. Markmiðið með Degi íslenskrar náttúru er að beina sjónum landsmanna að hinni einstöku náttúru landsins, gögnum hennar og gæðum.

Umhverfisráðherra hefur ákveðið að stofna til fjölmiðlaverðlauna sem veitt verða á Degi íslenskrar náttúru. Verðlaununum er ætlað að hvetja til hverskyns umfjöllunar um ...

Umhverfisráðuneytið hefur staðfest samning Umhverfisstofnunar og sveitarfélagsins Mýrdalshrepps um umsjón og rekstur friðlandsins í Dyrhólaey sem Umhverfisstofnun og sveitarfélagið höfðu gert í samræmi við 30. gr. laga nr. 44/1999 um náttúruvernd. Í samningnum er m.a. kveðið á um réttindi og skyldur samningsaðila, mannvirkjagerð og aðrar framkvæmdir, landvörslu, menntun starfsmanna, móttöku ferðamanna og fræðslu. Hlutverk Umhverfisstofnunar er m.a ...

Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun að veita 40 milljónum til styrkingar gróðurs á þeim svæðum þar sem mikið öskufall varð í eldgosinu í Grímsvötnum í vor. Markmiðið með verkefninu er að hefta öskufok á þessum svæðum á næstu misserum.

Þrátt fyrir að veður og vindar hafi verið hagstæðir og feykt töluverðri ösku á haf út í kjölfar gossins ...

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra opnaði formlega nýja sýningu í Mývatnsstofu, gestastofu verndarsvæðis Mývatns og Laxár, í húsnæði Umhverfisstofnunar í Reykjahlíð á laugardag. Þar gefst gestum tækifæri til að kynna sér hið sérstaka náttúrufar svæðisins þar sem jarðeldar og vatn hafa skapað umhverfi einstakra og fagurra hraunmyndana ásamt auðugu og fjölbreyttu lífríki.

Um 120 manns komu í gestastofuna á opnunardaginn en sýningin ...

Ný heimasíða, agengar.land.is var opnuð í dag þar sem dregnar eru saman upplýsingar er varða eiginleika og útbreiðslu ágengu plöntutegundanna skógarkerfils og lúpínu með leiðbeiningum um mögulegar aðgerðir til upprætingar þeirra.

Á undanförnum árum hefur verið nokkur umræða um áhrif ágengra framandi tegunda á lífríki Íslands. Alaskalúpína og skógarkerfill eru framandi plöntutegundir sem voru fluttar til landsins, m ...

Umferð skipa eykst vegna hlýnunar loftslags

Á ríkisstjórnarfundi á dögunum kynnti umhverfisráðherra tillögur að auknu samstarfi stofnana og ráðuneyta vegna vaxandi siglinga á Norðurslóðum. Að mati ráðuneytisins er þörf á auknu eftirliti með skipaumferð og viðbúnaði við hugsanlegri mengun vegna aukinna umsvifa og siglinga á Norðurslóðum. Vegna þessa hefur ráðuneytið tekið saman greinargerð um stöðu mála og hugsanlegar aðgerðir.

Þegar ...

  • Jafn margir birnir á 3 árum og á 70 árum þar á undan
  • Sérfræðiúttekt taldi björgunartilraunir ekki réttlætanlegar vegna óvissu um árangur
  • Óskað eftir greinargerð frá Náttúrufræðistofnun Íslands
  • Erindi sent til Grænlands vegna austur-grænlenska ísbjarnarkvótans

Umhverfisráðherra hefur óskað eftir greinargerð frá Náttúrufræðistofnun Íslands í samvinnu við Umhverfisstofnun, Veðurstofuna og aðra hlutaðeigandi aðila um hugsanlegar orsakir aukinnar tíðni komu hvítabjarna hingað ...

Ríkisstjórn Íslands hefur samþykkt tillögu Svandísar Svavarsdóttur, umhverfisráðherra, um að veita 41,9 m kr. til brýnna framkvæmda nú í vor og sumar á friðlýstum svæðum sem jafnframt eru vinsælir viðkomustaðir ferðamanna.

Á síðastliðnu ári urðu miklar umræður um hnignandi ástand fjölmargra fjölsóttra ferðamannastaða. Umhverfisráðuneytið óskaði þá eftir sérstakri úttekt á þeim svæðum sem Umhverfisstofnun taldi að verst stæðu og ...

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra afhenti Þóru Ellen Þórhallsdóttur Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti við athöfn í Þjóðmenningarhúsinu í dag. Við sama tækifæri fengu Farfuglaheimilin í Reykjavík afhentan Kuðunginn, umhverfisviðurkenningu umhverfisráðuneytisins, og nemendur Þjórsárskóla voru útnefndir Varðliðar umhverfisins.

Náttúruverndarviðurkenning Sigríðar í Brattholti

Þetta er í annað sinn sem Náttúruverndarviðurkenning Sigríðar í Brattholti er veitt. Með viðurkenningunni er lögð áhersla á mikilvægi framlags almennings ...

Dagur umhverfisins er haldinn 25. apríl ár hvert og í ár verður hann tileinkaður skógum. Efnt verður til ýmissa viðburða af þessu tilefni:

Reykjavíkurborg stendur fyrir mörgum viðburðum í apríl sem eru meðal annars tengdir Degi umhverfisins. Hægt er að nálgast upplýsingar um þá á heimasíðu borgarinnar og í Viðburðardagatlainu hér t.h. á síðunni.

Í Borgarbyggð mun umsjónarnefnd Einkunna ...

Umhverfisráðuneytið og Náttúrufræðistofnun Íslands efna til málstofu fimmtudaginn 31. mars um ástand og þróun helstu stofna sjófugla við landið, hvernig loftslags- og umhverfisbreytingar hugsanlega virka á stofnana og umhverfi þeirra og hvernig bregðast megi við slíkum breytingum.

Málstofan er haldin á Hótel Sögu í sal Harvard II, kl. 13:00 til 17:00. Hólmfríður Arnardóttir, framkvæmdastjóri Fuglaverndar, er fundarstjóri.

Dagskrá ...

Umhverfisráðuneytið hefur látið taka saman svör við spurningum umhverfisnefndar Alþingis um Stjórnunar- og verndaráætlun Vatnajökulsþjóðgarðs. Spurningarnar komu fram á opnum fundi nefndarinnar með Svandísi Svavarsdóttur umhverfisráðherra fyrr í þessum mánuði og vörðuðu meðal annars fjölda athugasemda, samráð, umferð um Vonarskarð, aðgengi fatlaðra og heimildir til að tjalda.

1. Hver var fjöldi athugasemda?

Spurningar og svör

Alls bárust 274 athugasemdir og ...

Dagur umhverfisins er haldinn 25. apríl ár hvert, en þann dag árið 1762 fæddist Sveinn Pálsson, fyrsti íslenski náttúrufræðingurinn. Hann var einna fyrstur til að hvetja til aðgerða gegn skógareyðingu á Íslandi og orðaði þá hugsun sem nú kallast sjálfbær þróun.

Undanfarin ár hefur verið efnt til fjölda viðburða um allt land í tilefni dagsins, m.a. hefur umhverfisráðherra veitt ...

Náttúruverndarviðurkenning Sigríðar í Brattholti verður afhent í annað sinn á degi umhverfisins 25. apríl næstkomandi. Viðurkenningin er veitt einstaklingi sem hefur unnið markvert starf á sviði náttúruverndar. Umhverfisráðuneytið óskar eftir tilnefningum til viðurkenningarinnar. Tilnefningar þurfa að berast umhverfisráðuneytinu eigi síðar en 1. apríl 2011, merktar Náttúruverndarviðurkenning Sigíðar í Brattholti, á póstfangið postur@umhverfisraduneyti.is eða með pósti í umhverfisráðuneytið, Skuggasundi ...

Úthlutunarnefnd á vegum umhverfisráðuneytisins óskar eftir tilnefningum um fyrirtæki eða stofnanir, sem vegna verka sinna og athafna á síðasta ári, er þess verðugt að hljóta umhverfisviðurkenningu umhverfisráðuneytisins, Kuðunginn fyrir árið 2010. Kuðungurinn verður afhentur á degi umhverfisins 25. apríl.

Óskað er eftir því að stutt greinargerð fylgi með tilnefningunum. Fyrirtæki og stofnanir geta hvort heldur sem er tilnefnt sig sjálf ...

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra hefur ákveðið að veita almenningi og fjölmiðlum aðgang að minnisblöðum er varða annars vegar ákvörðun ráðherra um að synja skipulagi Flóahrepps staðfestingar og hins vegar ákvörðun um að áfrýja dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í málinu.

Eyjan.is og Morgunblaðið hafa óskað eftir aðgangi að lögfræðilegum álitsgerðum og minnisblöðum sem tengjast málinu. Tvö skjöl falla undir beiðni þeirra, en ...

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra hefur staðfest stjórnunar- og verndaráætlun Vatnajökulsþjóðgarðs. Vatnajökulsþjóðgarður er umfangsmesta verkefni á sviði náttúruverndar sem ráðist hefur verið í hérlendis en hann nær yfir 13% landsins og er stærsti þjóðgarður Evrópu. Stjórnunar- og verndaráætlunin felur í sér stefnu, markmið og framtíðarsýn þjóðgarðsins hvað varðar náttúruvernd, útivist og byggðarþróun. Þar er kveðið á um skipulag samganga í þjóðgarðinum, þjónustu ...

  • Mengun í hvölum og örnum.
  • Hvað með mengun í þorskinum?
  • Er mengun í blóði íslenskra kvenna?
  • Fær maður nokkuð í magann af því að baða sig í Nauthólsvík?
  • Er sjórinn við landið að verða  hættulega súr?
  • Er rigningin góð?
  • Er Ísland hreinasta land í heimi?

Þessum spurningum og fleiri verður reynt að svara á ráðstefnu um mengun á Ísland.

Ráðstefna ...

Búsvæði tjarnaklukku á Hálsum við Djúpavog hefur verið friðlýst. Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra undirritaði friðlýsinguna nýverið með samþykki sveitarstjórnar Djúpavogshrepps og landeigenda jarðarinnar Strýtu við Berufjörð. Með friðlýsingunni varð Djúpavogshreppur fyrst íslenskra sveitarfélaga til að samþykkja friðlýsingu svæðis til verndar smádýralífi. Samhliða friðlýsingunni gerði Umhverfisstofnun samning við sveitarfélagið um umsjón með hinu friðlýsta svæði.

Við þetta tilefni hrósaði umhverfisráðherra sveitarstjórn Djúpavogshrepps ...

Í hádegisfréttum Bylgjunnar sagði sveitarstjóri Flóahrepps að framkvæmdir í sveitarfélaginu hefðu legið í láginni vegna ákvörðunar umhverfisráðherra að staðfesta ekki aðalskipulag sveitarfélagsins á sínum tíma. Sagði sveitarstjórinn að ekki hefði verið hægt að deiliskipuleggja, ekki hægt að byggja við hús, útihús og í raun ekkert hægt að gera. Svona hafi ástandið verið í tvör ár.

Í ákvörðun umhverfisráðherra frá  janúar ...

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra hefur beint þeirri ósk til sveitarstjórna Skaftárhrepps, Hornafjarðar og Vestmannaeyja að þær skoði alla möguleika til að hætta eða draga verulega úr sorpbrennslu þar til niðurstöður frekari rannsókna liggja fyrir. Bréf þess efnis var sent í dag. Óskin er sett fram í kjölfar mælinga á díoxíni úr búfjárafurðum og fóðri sem tekin voru á Vestfjörðum og í ...

Landmælingar Íslands hafa samþykkt stefnumótun fyrir stofnunina til ársins 2015. Stefnumótunin er unnin í ljósi mikilla breytinga á starfsumhverfi stofnunarinnar og forystuhlutverks sem henni verður falið við uppbyggingu á grunngerð landupplýsinga á Íslandi samkvæmt frumvarpi umhverfisráðherra.

Miklar breytingar hafa orðið á starfsumhverfi Landmælinga Íslands undanfarin ár vegna aukinnar notkunar almennings á kortum og öðrum landupplýsingum auk örrar tækniþróunar á þessu ...

Almenningi gefst nú tækifæri til að koma á framfæri athugasemdum við drög að frumvörpum sem lögð eru fram vegna fullgildingar Árósasamningsins. Hægt er að senda athugasemdir með tölvupósti á postur@umhverfisraduneyti.is til og með 4. febrúar næstkomandi. Árósasamningurinn fjallar um aðgang að upplýsingum, þátttöku almennings í ákvarðanatöku og aðgang að réttlátri málsmeðferð í umhverfismálum.

Frumvörpunum er ætlað að tryggja ...

Boðað er til árlegrar verkefnasamkeppni um umhverfismál á meðal grunnskólabarna í 5. til 10. bekk. Keppnin kallast Varðliðar umhverfisins og það eru umhverfisráðuneytið, Landvernd og Náttúruskóli Reykjavíkur sem standa að henni. Markmið keppninnar er að hvetja ungt fólk til góðra verka í umhverfisvernd, vekja athygli á sýn ungs fólks á umhverfismál og kalla eftir leiðsögn yngri kynslóðarinnar á því sviði ...

Vegna fréttar í Fréttablaðinu í dag um afstöðu Skógræktarfélags Íslands til draga að lagafrumvarpi um breytingar á náttúruverndarlögum vill umhverfisráðuneytið vekja athygli á því samráði sem haft hefur verið við Skógræktarfélagið:

  • Þann 20. maí 2010 sendi þáverandi formaður nefndar sem vinnur að endurskoðun laganna Skógræktarfélagi Íslands erindi í tölvupósti þar sem félaginu var gefinn kostur á að koma ábendingum á ...

Sameinuðu þjóðirnar tileinka árið 2011 skógum að frumkvæði allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna. Markmið Sameinuðu þjóðanna með því er að auka vitund um sjálfbæra nýtingu, verndun og þróun í öllum gerðum skóglenda.

Sameinuðu þjóðirnar hafa úbúið sérstakt merki ársins sem hefur yfirskriftina Skógar fyrir fólk og á að endurspegla þá fjölþættu umhverfisþjónustu sem skógar veita.

Á alþjóðlegu ári skóga 2011 verða ýmsir ...

Frumvarpsdrög um breytingar á lögum um náttúruvernd eru nú opin öllum til umsagnar og hefur umsagnarfrestur verið framlengdur til og með 21. janúar 2011. Til stóð að umsagnarfrestur yrði til 7. janúar en vegna fjölda óska hefur ráðuneytið ákveðið að framlengja hann eins og að framan greinir.

Drögin voru unnin af nefnd sem Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra skipaði í nóvember 2009 ...

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra og forstöðumenn átta stofnana ráðuneytisins undirrituðu nýverið árangursstjórnunarsamninga milli umhverfisráðuneytisins og stofnana þess. Samningarnir festa í sessi samskiptaferli milli ráðuneytisins og stofnananna og eru grundvöllur áætlanagerðar, stefnumótunar og árangursmats. Markmiðið með gerð samninganna er að efla og formfesta samstarf ráðuneytisins og stofnana þess og auka gæði í starfi þeirra.

Samkvæmt samningnum eiga stofnanirnar meðal annars að gera ...

Ný reglugerð umhverfisráðuneytisins gerir auknar kröfur um menntun og starfsumhverfi bifvélavirkja, rafvirkja og starfsfólks í kæli- og frystiiðnaði. Markmið reglugerðarinnar er að draga úr losun flúoreraðra gróðurhúsalofttegunda sem Kýótó-bókunin við rammasamning Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar nær yfir og stuðla að öruggari meðhöndlun þeirra. Þessar lofttegundir eru öflugar gróðurhúsalofttegundir með háan hlýnunarstuðul og hafa margföld áhrif á umhverfið til upphitunar lofthjúpsins ...

Magnús Jóhannesson, ráðuneytisstjóri umhverfisráðuneytisins og Ian Whitting, sendirherra Bretlands á Íslandi, undirrituðu í dag viljayfirlýsingu umhverfisráðuneytis Íslands og viðskipta- og nýsköpunarráðuneytis Bretlands um samstarf þjóðanna á sviði rannsókna og eftirlits með með eldsumbrotum á Íslandi og umhverfisáhrifum og áhættu af völdum þeirra.

Yfirlýsingin er undirrituð í kjölfar vaxandi samstarfs íslenskra og breskra vísindamanna í tengslum við eldgosið í Eyjafjallajökli. Vísindamenn ...

Drög að frumvarpi til laga um breytingar á náttúruverndarlögum er nú opið til umsagnar. Drögin voru unnin af nefnd sem Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra skipaði í nóvember 2009 til að vinna að endurskoðun náttúruverndarlaga. Öllum er frjálst að senda umhverfisráðuneytinu athugasemdir við drögin með tölvupósti á postur@umhverfisraduneyti.is til og með 7. janúar næstkomandi.

Nefndin skilaði ráðherra áfangaskýrslu í mars ...

Stóraukin fjárframlög til þróunarríkja. Efldar rannsóknir og dreifing á loftslagsvænni tækni. Tillögur Íslands samþykktar og útfærðar. Enn óvissa um framhald Kýótó-bókunarinnar.

Samkomulag náðist í dag á loftslagsráðstefnunni í Cancún í Mexíkó um efldar alþjóðlegar aðgerðir og fjármögnun í loftslagsmálum. Eitt stærsta skrefið í samkomulaginu eru vilyrði um stóraukin framlög til þróunarríkja til að takast á við afleiðingar loftslagsbreytinga og draga ...

Þema náttúru- og umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs 2011 er sjálfbær ferðaþjónusta. Verðlaunin verða veitt í sautjánda sinn og nema 350.000 dönskum krónum. Þau verða veitt fyrirtæki, samtökum eða einstaklingi sem hefur verið í fararbroddi og stuðlað að því að draga úr umhverfisáhrifum ferðaþjónustu á Norðurlöndum.

Öllum er heimilt að senda inn tillögur um verðlaunahafa. Í tillögunum þarf eftirfarandi að koma fram ...

Velferð til framtíðar, stefnumótun Íslands um sjálfbæra þróun hefur nú verið uppfærð fyrir tímabilið 2010-2013 og hefur skýrslan verið gefin út á netinu. Stefnumörkun um sjálfbæra þróun var fyrst gefin út árið 2002 og hefur hún verið endurskoðuð á fjögurra ára fresti í tengslum við umhverfisþing, nú síðast á sjötta umhverfisþingi haustið 2009. Metþátttaka var á þinginu og endurspeglar hún ...

Umhverfisráðuneytið og iðnaðarráðuneytið efna til fundar um náttúruvernd og ferðaþjónustu á Grand Hótel, fimmtudaginn 18. nóvember kl. 8:30-10:00. Á fundinum verður fjallað um nýlega úttekt Umhverfisstofnunar á álagi á friðlýstum svæðum vegna ferðamanna, úrræði til umbóta, fjármögnun þeirra og leiðir til að tryggja að ferðaþjónusta og náttúruvernd fari saman.

Dagskrá:

  • Ávarp Svandísar Svavarsdóttur umhverfisráðherra.
  • Ástand og umbætur á ...

Ríkisstjórnin samþykkti nýverið aðgerðaáætlun í loftslagsmálum sem felur í sér að dregið verði úr nettólosun gróðurhúsalofttegunda um allt að 30% til ársins 2020 með tíu lykilaðgerðum. Fjármálaráðherra hefur þegar lagt fram frumvarp um eina af lykilaðgerðunum, sem er breyting á bifreiðasköttum og gjöldum.

Markmið áætlunarinnar er að draga úr nettólosun gróðurhúsalofttegunda hér á landi svo stjórnvöld fái staðið við stefnu ...

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra hefur skipað Kristveigu Sigurðardóttur formann stjórnar Vatnajökulsþjóðgarðs og Rósu Björk Halldórsdóttur varaformann.

Kristveig hefur starfað hjá Almennu verkfræðistofunni frá árinu 2007 og er formaður Vistbyggðarráðs. Hún vann áður við landvörslu í Jökulsárgljúfrum. Kristveig lauk B.Sc. í umhverfis- og byggingarverkfræði frá Háskóla Íslands 2004 og Civ.Ing. prófi frá Kungliga Tekniska Högskolan i Stokkhólmi 2007með áherslu á ...

Svandís SvavarsdóttirÁrangursríkum ársfundi aðildarríkja samningsins um líffræðilega fjölbreytni lauk á föstudag með sögulegu samkomulagi um réttláta skiptingu hagnaðar af nýtingu erfðaauðlinda og mikilvægu samkomulagi um framkvæmd samningsins til ársins 2020. 

Bókunin um erfðaauðlindir setur alþjóðlegar samræmdar reglur um það hvernig ríki veita fyrirtækjum, stofnunum og vísindamönnum aðgang að erfðaauðlindum. Einn af mikilvægustu þáttum bókunarinnar fjallar um að tryggja ríkjum sem veiti ...

Á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun var ákveðið að 16. september, fæðingardagur Ómars Ragnarssonar, verði héðan í frá dagur íslenskrar náttúru. Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra lagði fram tillögu þess efnis. Hún segir ákvörðun ríkisstjórnarinnar vera viðurkenningu á framlagi Ómars til náttúruverndar og almenningsfræðslu um mikilvægi íslenskrar náttúru sem og allra þeirra sem lagt hafa sitt af mörkum til að efla fræðslu um ...

Sex verndarsvæði hafa verið stofnuð í Norðaustur-Atlantshafi, meðal annars á Mið-Atlantshafshryggnum, samkvæmt ákvörðun ráðherrafundar Samningsins um vernd NA-Atlantshafsins (OSPAR) sem fram fór í Bergen í Noregi í liðinni viku. Þetta er í fyrsta sinn sem verndarsvæði af þessu tagi eru sett á fót fyrir utan efnahagslögsögu ríkja og er vonast til að þau geti orðið öðrum svæðisbundnum samningum fyrirmynd á ...

Fyrstu samgöngusamningar umhverfisráðuneytisins og starfsfólks þess voru undirritaðir í dag. Samkvæmt samningunum mun umhverfisráðuneytið kaupa strætisvagnakort fyrir starfsfólk sem að jafnaði notar almenningssamgöngur og komið verður til móts við þá sem ganga eða hjóla til og frá vinnu með þátttöku í útlögðum kostnaði, til dæmis vegna hlífðarfatnaðar.

Samningarnir eru hluti af nýlegri samgöngustefnu ráðuneytisins og í anda umhverfisstefnu þess. Í ...

Frumvarp umhverfisráðherra til nýrra skipulagslaga var samþykkt á Alþingi í gær. Lögin kveða á um fjölda nýmæla en markmið þeirra er að auka skilvirkni, sveigjanleika og gæði við gerð skipulags. Lögin gera ráð fyrir aukinni þátttöku almennings við gerð skipulagsáætlana og í þeim er kveðið á um landsskipulagsstefnu þar sem stjórnvöld móta heildstæða sýn í skipulagsmálum. 
Landsskipulagsstefna

Landsskipulagsstefnunni er ætlað ...

Vegna sjónvarpsfrétta Ríkisútvarpsins 26. ágúst 2010 kl. 19:00 og 22:00 um tafir við orkuöflun fyrir álver í Helguvík vill umhverfisráðuneytið koma eftirfarandi á framfæri:

Í fréttinni var látið að því liggja að skipulagsmál sveitarfélagsins Ölfuss hefðu ekki hlotið eðlilega meðferð í umhverfisráðuneytinu vegna persónulegra skoðana umhverfisráðherra. Sagði m.a. í fréttinni: ,,Aðalskipulag sem gerir ráð fyrir Hverahlíðavirkjun hefur ...

Áherslur stjórnvalda til sjálfbærrar þróunar árin 2010 til 2013 voru samþykktar á fundi ríkisstjórnarinnar í gær að tillögu Svandísar Svavarsdóttur umhverfisráðherra. Áherslurnar byggja á stefnumörkun Íslands um sjálfbæra þróun sem ber yfirskriftina Velferð til framtíðar og var fyrst samþykkt í ríkisstjórn árið 2002.

Í upphaflegri stefnumörkun voru sett fram 17 markmið um umhverfisvernd og nýtingu auðlinda fram til ársins 2020 ...

Evrópska efnahagssvæðiðFramkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur ákveðið að hefja endurskoðun á tilskipun um mat á umhverfisáhrifum. Íslensk löggjöf á þessu sviði er byggð á tilskipuninni í samræmi við EES-samninginn. Ákveðið hefur verið að gefa öllum tækifæri til að koma á framfæri athugasemdum og ábendingum um lykilatriði tilskipunarinnar, svo sem um matsáætlanir, árangur við framkvæmd umhverfismats, samhæfingu milli landa, hlutverk umhverfisyfirvalda og tengsl við ...

Skotinn fálkiSvandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra hefur sett af stað vinnu til að bregðast við rannsóknum Náttúrufræðistofnunar Íslands sem sýna fram á að skothögl finnast í fimmta hverjum erni og fjórða hverjum fálka sem fundist hafa dauðir hér á landi. Báðar tegundirnar eru friðaðar og skráðar á válista vegna þess hve fáliðaðir stofnarnir eru. Talið er að 65 varppör séu í íslenska arnarstofninum ...

GMO tilraunaglösAlþingi samþykkti nýverið breytingar á lögum um erfðabreyttar lífverur sem kveða meðal annars á um aukinn aðgang almennings að upplýsingum og aukinn rétt til að gera athugasemdir vegna umsókna um ræktun og notkun erfðabreyttra lífvera.

Breytingarnar á lögunum byggja á tilskipun Evrópusambandsins. Markmið tilskipunarinnar er að samræma lög og stjórnsýslufyrirmæli aðildarríkjanna sem og að vernda heilsu manna og umhverfi við ...

Losun C02 1990-2012Útstreymi gróðurhúsalofttegunda hér á landi jókst um 8% milli áranna 2007 og 2008 og hefur aukist um 43% frá 1990. Þetta kemur fram í skýrslu sem Umhverfisstofnun hefur skilað til Loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna.

Langstærstan hluta aukningarinnar milli 2007 og 2008 má rekja til Fjarðaráls sem var gangsett árið 2007 en komst í fulla framleiðslu árið 2008. Umhverfisstofnun spáir því að ...

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra hefur sett reglugerð um leyfilegan styrk brennisteinsvetnis í andrúmslofti. Markmið reglugerðarinnar er að draga úr mengun brennisteinsvetnis frá jarðhitavirkjunum og mögulegum neikvæðum áhrifum hennar á heilsu fólks.

Eftir að nýting jarðhita var aukin á Hellisheiðarsvæðinu fyrir fáum árum hefur mælst mun meiri styrkur brennisteinsvetnis á höfuðborgarsvæðinu og í sveitarfélögum í nágrenni virkjunarinnar. Brennisteinsvetni getur haft áhrif á ...

Á heimsráðstefnunni um umhverfi og þróun í Ríó de Janeiro árið 1992, ákváðu ríki heims að sporna við neikvæðum áhrifum mannsins á umhverfi og lífríki jarðar - með öðrum orðum að stuðla að sjálfbærri þróun. Meginregla sjálfbærrar þróunar er að mæta þörfum samtímans en um leið draga ekki úr möguleikum komandi kynslóða til þess að mæta þörfum sínum. Skuldbindingar Ríó-ráðstefnunnar voru ...

VatnshellirSvandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra opnaði Undirheima Vatnshellis í gær og staðfesti um leið verndaráætlun fyrir þjóðgarðinn Snæfellsjökul.

Vatnshellir
Vatnshellir er í suðurhlíðum Purkhólahrauns. Þjóðgarðurinn hefur unnið að því í samstarfi við sjálfboðaliða að bæta aðgengi að hellinum síðastliðinn vetur. Skýli hefur verið byggt yfir opið niður í hellinn og hringstigi lagður niður. Með skýlinu er komið í veg fyrir að snjór ...

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra hefur sett reglugerð um kjölfestuvatn. Markmið reglugerðarinnar er að takmarka losun kjölfestuvatns til að koma í veg fyrir að framandi lífverur, svo sem þörungar, krabbadýr og sýklar, berist með kjölfestuvatni til hafsvæða og stranda umhverfis Ísland.

Flutningur framandi lífvera milli hafsvæða með kjölfestuvatni er vaxandi vandamál og áhyggjuefni, meðal annars vegna aukinnar skipaumferðar og hlýnunar sjávar. Alþjóða ...

Svandís SvavarsdóttirKæru félagar og velunnarar Landverndar

Öll gerum við okkur grein fyrir mikilvægi frjálsra félagasamtaka í lýðræðisríkjum ekki síst á sviði umhverfis- og náttúruverndarmála. Þau eru mikilvæg til að halda uppi gagnrýnni umræðu um athafnir stjórnvalda og atvinnurekenda og til að hafa áhrif á ákvarðanatöku þeirra. Þetta mikilvæga hlutverk félagasamtaka birtist m.a. í íslenskri löggjöf sbr. kæruheimild samtaka samkvæmt lögum ...

Í Parísaryfirlýsingunni felst m.a. fjölþjóðlegt átak til að tryggja samræmi milli starfsaðferða og reglna þróunarstofnana, tvíhliða sem marghliða, við starfsaðferðir og stjórnkerfi þróunarlandanna. Í hverju ríki starfa fjölmargir aðilar að þróunaraðstoð. Þannig vinna margir að því að leysa sömu vandamálin og verkefnavinna skarast. Stjórnkerfi þróunarríkja þurfa að sinna mörgum samstarfsaðilum með ólíar kröfur um t.d. aðferðafræði og skýrslugerð ...

Vinnu við að kortleggja og skilgreina vegi á hálendinu hefur miðað vel að undanförnu og hefur starfshópur umhverfisráðuneytisins, Landmælinga, Umhverfisstofnunar og Vegagerðarinnar átt fundi með fulltrúum allra sveitarfélaga sem fara með skipulagsvald á hálendinu.

Að sögn Sesselju Bjarnadóttur, formanns starfshópsins, er markmið hópsins að skilgreina vegi á hálendinu. Hluti af því vandamáli sem stjórnvöld hafa glímt við varðandi akstur utan ...

Með Monterrey samþykktinni frá því 2002, um fjármögnun þróunar, skuldbinda þróunarríki sig til að vinna að efnahagslegum og félagslegum umbótum, að bæta stjórnarfar og viðhalda lögum og reglum. Á móti stefna iðnríkin að því að auka framlög til þróunarsamvinnu, vinna frekar að opnu og sanngjörnu aljþjóðaviðskipta- og fjármálakerfi og draga úr skuldabyrði fátækra landa.

Sjá nánar um Montterey samþykktina á ...

Þúsaldarmarkmið Sameinuðu þjóðanna voru samþykkt á 55. allsherjarþingi S.þ. í september 2000. Þúsaldarmarkmiðin leggja áherslu á að ríkar þjóðir og snauðar verði að taka höndum saman í baráttunni gegn fátækt og stefni að því markmiði að helminga fátækt í heiminum fyrir árið 2015.

Átta helstu áhersluatriði yfirlýsingarinnar eru kölluð Þúsaldarmarkmið um þróun:

  1. Eyða fátækt og hungri
  2. Öll börn njóti ...

Akstur utan vega virðist vera vaxandi vandamál á Íslandi. Margbrotin náttúra Íslands, sem er lítt snortin miðað við mörg þéttbýlli ríki, er eitt helsta aðdráttarafl þeirra sem ferðast um landið. Landið er víða viðkvæmt fyrir ágangi og gáleysislegur akstur getur valdið skemmdum á náttúrunni sem eru ár eða jafnvel áratugi að jafna sig.

Umhverfisráðuneytið hefur unnið aðgerðaráætlun gegn akstri utan ...

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra tilnefndi Guðlaugstungur og Snæfells- og Eyjabakkasvæðið á lista Ramsarsamningsins yfir alþjóðlega mikilvæg votlendissvæði á ráðstefnu um votlendissvæði á Hvanneyri í dag. Umhverfisráðherra og landeigendur undirrituðu einnig viljayfirlýsingu um að friðlýsa votlendissvæði við Hvanneyri og að tilnefna svæðið á lista Ramsarsamningsins.

Markmið Ramsarsamningsins er að stuðla að verndun og skynsamlegri nýtingu votlendissvæða í heiminum, sérstaklega alþjóðlega mikilvæg svæði ...

Ár er liðið frá því ég tók við embætti umhverfisráðherra á miklum umrótstímum. Á fyrstu mánuðum í embætti var ég oft spurð hvort umhverfis- og náttúruverndarmál væru ekki lúxusmál sem þjóðin hefði ekki efni á að sinna á samdráttartímum. Ég fæ ekki slíka spurningu lengur enda flestir sem gera sér orðið grein fyrir mikilvægi þess að hagsmunum náttúru og umhverfis ...

Að frumkvæði umhverfisráðuneytisins verður efnt til ráðstefnu í samstarfi við Landbúnaðarháskóla Íslands um votlendi og endurheimt þess. Titill ráðstefnunnar er Endurheimt votlendis - hvað þarf til? Ráðstefnan er haldin í tilefni alþjóðlegs árs líffræðilegrar fjölbreytni og í ljósi vaxandi umræðu um mikilvægi votlendis í loftslagsbreytingum. 

Meðal fyrirlesara er Hans Joosten, prófessor við Greifswaldháskóla í Þýskalandi, sem er mjög virtur sérfræðingur ...

Sex milljónum króna verður varið til kaupa og uppsetningar á sjálfvirkum mæli til að mæla svifryk á áhrifasvæði eldgossins í Eyjafjallajökli. Tillaga Svandísar Svavarsdóttur umhverfisráðherra þess efnis var samþykkt á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun.

Umhverfisstofnun hefur að undanförnu lagt áherslu á að mæla eftir fremsta megni styrk svifryks á svæðum sem orðið hafa fyrir öskufalli í nágrenni Eyjafjallajökuls. Einnig hefur ...

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra hefur sett af stað vinnu í umhverfisráðuneytinu til að fara yfir skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis og skoða hvort niðurstöður hennar kalli á breytingar á starfsháttum ráðuneytisins. Fulltrúar allra skrifstofa ráðuneytisins munu taka þátt í vinnunni auk aðstoðarmanns ráðherra. Hópnum er ætlað að rýna skýrslu rannsóknarnefndarinnar á næstu vikum og meta hvort þörf sé úrbóta og gera þá í ...

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra afhenti Sigrúnu Helgadóttur náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti við athöfn í Þjóðmenningarhúsinu í dag. Haldið var upp á dag umhverfisins í dag með afhendingu viðurkenninga og ýmsum viðburðum. Við sama tækifæri fékk prentsmiðjan Oddi afhentan Kuðunginn, umhverfisviðurkenningu umhverfisráðuneytisins og nemendur Hvolsskóla voru útnefndir varðliðar umhverfisins.

Sigrún Helgadóttir hlaut náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti

Sigrún Helgadóttir og föruneytiSvandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra afhenti Sigrún Helgadóttur ...

Dagur umhverfisins er tileinkaður líffræðilegri fjölbreytni í ár

Dagur umhverfisins er haldinn 25. apríl ár hvert en þann dag árið 1762 fæddist Sveinn Pálsson, fyrsti íslenski náttúrufræðingurinn. Hann var einna fyrstur til að hvetja til aðgerða gegn skógareyðingu á Íslandi og orðaði þá hugsun sem nú kallast sjálfbær þróun. Í ár verður dagurinn tileinkaður líffræðilegri fjölbreytni.

Viðburðir í tengslum við ...

Gígjökull

Aukin sjálftavirkni í morgun. Fjórir skjálftar frá því rétt fyrir klukkan 9. Þeir eru 1 til 1,5 á stærð. Þá hafði skjálfti ekki mælst síðan rétt fyrir kl. 19 í gærkvöldi.

Gosstrókar fóru upp fyrir 8 km hæð þrisvar í morgun en er að jafnaði í um 5 kílómetra hæð. Óróatoppar komu fram á svipuðum tíma á skjálftamælum. Þeir ...

Vatnshæð í Markarfljóti hækkaði aftur milli kl. 2 og 3 í nótt og varð svipuð því sem var í hámarki flóðs í gærkvöldi. Hefur farið lækkandi síðan. Hugsanlega á það hlut að máli að aur og sandur hafi hækkað botn árinnar.

Enginn skjálfti hefur mælst á svæðinu síðan fyrir klukkan sjö í gærkvöldi.

Nú er ákveðin vestanátt yfir Eyjafjallajökli. Öskufall ...

Vinna er hafin hjá umhverfisráðuneytinu við að semja frumvarp til innleiðingar Árósasamningsins. Samningurinn tryggir aðgang að upplýsingum, þátttöku almennings í ákvarðanatöku og aðgang að réttlátri málsmeðferð í umhverfismálum. Umhverfisráðherra hefur skipað nefnd til að semja lagafrumvarp til innleiðingar samningsins, sem stefnt er á að leggja fyrir Alþingi næstkomandi haust. Gert er ráð fyrir að drög að frumvarpi liggi fyrir 1 ...

Vegna frétta af bókun sveitarstjórnar Skeiða- og Gnúpverjahrepps, þar sem meintum ærumeiðingum umhverfisráðherra í ákvörðun um breytingu á aðalskipulagi hreppsins er mótmælt, vill umhverfisráðuneytið koma eftirfarandi leiðréttingu á framfæri.

Bókun sveitarstjórnarinnar byggir að mati ráðuneytisins á misskilningi á einni efnisgrein í bréfi umhverfisráðherra. Má ef til vill rekja misskilninginn til þess að sveitarstjórnarmönnum hafi yfirsést að síðasta sögn efnisgreinarinnar er ...

Föstudaginn 5. febrúar verður málþingið Kyn og loftslagsbreytingar haldið í Háskóla Íslands, stofu 101 Lögbergi, kl. 14.:0-16:45. Samstarfsaðilar um málþingið eru Rannsóknastofa í kvenna- og kynjafræðum, EDDA - öndvegissetur, Jafnréttisstofa og Stofnun Vilhjálms Stefánssonar. Sjá nánar á heimasíðu RIKK.

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra mun flytja ávarp við upphaf málþingsins, en hún tók við verðlaunum fyrir Íslands hönd á loftslagsráðstefnunni í ...

Umhverfisráðherra hefur synjað staðfestingar skipulagsbreytingum sem snúa að virkjunum í neðri Þjórsá, þar sem þátttaka Landsvirkjunar í kostnaði sveitarfélaga við skipulagsvinnu hafi stangast á við skipulags- og byggingarlög. Annars vegar er um að ræða tillögu að breytingu á aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps, sem ráðuneytið telur sér ekki heimilt að staðfesta. Hins vegar er um að ræða aðalskipulag Flóahrepps 2006-2018, sem ...

Umhverfisráðuneytið hefur staðfest ákvörðun Skipulagsstofnunar frá 30. október 2009 um að ekki skuli fara fram sameiginlegt mat á umhverfisáhrifum framkvæmdarinnar Suðvesturlínur, styrking raforkuflutningskerfis á Suðvesturlandi, og öðrum framkvæmdum sem henni eru háðar og/eða eru á sama svæði. Ráðuneytinu bárust kærur frá Landvernd, Náttúruverndarsamtökum Íslands og Græna netinu vegna ákvörðunar Skipulagsstofnunar.

Umhverfisráðherra vísaði með úrskurði sínum 29. september 2009 fyrri ...

Vinna er hafin við að endurskoða byggingarreglugerð, sem ætlað er að standast samanburð við það sem best gerist hvað varðar sjálfbæra þróun þar sem opin stjórnsýsla, gegnsæi og lýðræðisumbætur eru höfð að leiðarljósi. Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra skipaði nefnd til endurskoðunar reglugerðarinnar í dag.

Nefndin mun í starfi sínu hafa hliðsjón af nýju frumvarpi um mannvirkjalög, sem lagt verður fyrir Alþingi ...

Þriðjudaginn 12. janúar kl. 12.00-13.30 verður haldið 16. stefnumót umhverfisráðuneytisins og Stofnunar Sæmundar fróða. Fundurinn er haldinn í fundarsala Þjóðminjasafnsins. Fjallað verður um niðurstöður loftslagsráðstefnunnar í Kaupmannahöfn og þau atriði sem sendinefnd Íslands lagði áherslu á. Þá verður vikið að mögulegum næstu skrefum í átt til alþjóðlegs samkomulags um úrbætur í loftslagsmálum, sem og þeim aðgerðum sem framundan ...

Hið íslenska náttúrufræðifélag hélt í dag afmælisfund í tilefni af 120 ára afmæli sínu. Yfirskrift hennar var „Náttúruminjasafn Íslands: Hvernig safn viljum við eignast?“ Fjölluðu ræðumenn um það ástand sem lengi hefði ríkt í húsnæðismálum Náttúruminjasafnsins, sem áratugum saman hefur verið á hrakhólum. Í lok fundarins voru pallborðsumræður þar sem Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra og Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra voru meðal gesta ...

Svandís Svavarsdóttir undirritaði í dag nýtt aðalskipulag Fljótsdalshéraðs fyrir árin 2008-2028, sem sveitarfélagið vann í samstarfi við ráðgjafarfyrirtækið Alta. Eiríkur Björn Björgvinsson, bæjarstjóri Fljótsdalshéraðs, segir undirbúning aðalskipulagsins hafa tekið langan tíma, enda hefðu lýðræðisleg vinnubrögð verið í hávegum höfð í skipulagsferlinu. Með ríku samráði við íbúa sveitarfélagsins hefði náðst skynsamleg lending í skipulagsmálum, sem vonandi muni tryggja að skipulagið lifi ...

Yfirlit yfir niðurstöður loftslagsráðstefnunnar

Niðurstöður loftslagsráðstefnunnar í Kaupmannahöfn eru jákvæðar í baráttunni gegn loftslagsbreytingum þótt skrefið sé lítið, að mati Svandísar Svavarsdóttur umhverfisráðherra, sem sótti fundinn fyrir Íslands hönd. Með Kaupmannahafnar-samkomulaginu er opnað á að Bandaríkin og Kína og öll helstu ríki sem losa gróðurhúsalofttegundir í andrúmsloftið grípi til aðgerða til að draga úr losun.

Með því er komið til ...

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra hélt í nótt ræðu fyrir Íslands hönd á loftslagsráðstefnunni í Kaupmannahöfn. Hún sagði að lausn loftslagsmála þyrfti á hnattrænu samkomulagi að halda, sem væri lagalega bindandi fyrir alla. Ísland væri tilbúið að taka á sig umtalsverðan niðurskurð á losun gróðurhúsalofttegunda á komandi árum í samvinnu við önnur ríki. Í samvinnu við Evrópusambandið myndi Ísland vinna að markmiði ...

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra sagði á loftslagsráðstefnunni í Kaupmannahöfn í gær að súrnun hafanna væri dulinn vandi innan loftslagsvandans, sem ógnaði lífi í höfunum og afkomu ríkja sem byggðu á lífríki hafsins. Svandís var meðal framsögumanna á fundi sem fjallaði um áhrif loftslagsbreytinga á hafið, sem var stýrt af Kaj Leo Johannessen, lögmanni Færeyja. Auk þeirra héldu erindi á fundinum ráðherrar ...

„Ekki má eingöngu líta á konur sem þolendur loftslagsbreytinga, heldur sem mikilvæga gerendur við lausn vandans,“ sagði Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra í opnunarávarpi sem hún hélt fyrr í dag á málstofu sem haldin var á loftslagsráðstefnunni í Kaupmannahöfn, sem bar yfirskriftina „Konur sem afl til breytinga.“

Við þetta tilefni afhentu regnhlífarsamtök kvenna, „Women and Gender Constituency,“ stjórnvöldum á Íslandi og í ...

Gylfi Arnbjörnsson, forseti Alþýðusambands Íslands, hefur send Svandísi Svavarsdóttur umhverfisráðherra hvatningarbréf á loftslagsráðstefnuna í Kaupmannahöfn, þar sem áréttað er hversu brýnt ASÍ telji það vera að ná samkomulagi um loftslagsbreytingar fyrir árslok 2009. Í bréfinu eru stjórnvöld hvött til að styðja tillögur Alþjóðasambands verkalþðsfélaga í tengslum við loftslagsráðstefnuna.

Tillögurnar eru þríþættar:

  • Að metnaðarfullur, bindandi og sanngjarn samningur náist í Kaupmannahöfn ...

Ráðherraráð Evrópusambandsins ákvað á fundi sínum í dag að ganga til samninga við Ísland um fulla þátttöku Íslands í aðgerðum ESB til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda eftir 2012, en þá lýkur fyrsta skuldbindingartímabili Kýótóbókunarinnar. Með bréfi dagsettu 3. júní sl. til formennskuríkis og framkvæmdastjórnar ESB óskaði Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra eftir því að grundvöllur slíks samkomulags yrði kannaður.

Með samþykkt ...

  • Átta meginaðgerðir eiga að leiða til 19-32% minni losunar 2020
  • Minnka á losun frá samgöngum og sjávarútvegi og auka bindingu kolefnis
  • Ísland á að geta staðið við líklegar skuldbindingar til 2020

Verkefnisstjórn um aðgerðaáætlun í loftslagsmálum, sem umhverfisráðherra skipaði í júlí 2009, hefur gert fyrstu drög að áætlun, sem eru birt hér opinberlega til kynningar. Verkefnisstjórnin á að skila fullbúnum ...

Samkvæmt 3. mgr. 11. gr. laga nr. 64/1994, um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum, eins og henni var breytt með 39. gr. laga nr. 164/2002, úthlutar umhverfisráðherra fé til rannsókna af tekjum vegna sölu veiðikorta.

Umhverfisráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki til rannsókna á stofnum villtra dýra sem undir áðurnefnd lög falla og ...

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra og starfsfólk Landmælinga kynntu í dag niðurstöður CORINE-verkefnisins. Meðal þess sem fram kemur í niðurstöðunum er að byggingarsvæði stækkuðu um 1055% árin 2000 til 2006 og jöklar minnkuðu um 1,63%. Niðurstöðurnar eru birtar í heild sinní skýrslu sem gefin hefur verið út (http://atlas.lmi.is/corine/) og á vefsjá Landmælinga (http://atlas.lmi.is/corine ...

Vernd náttúru og umhverfis er aukin til mikilla muna með nýju frumvarpi umhverfisráðherra um ábyrgð þess sem veldur umhverfisstjóni frá ákveðinni starfsemi. Frumvarpið er byggt á mengunarbótareglunni og felur í sér að þeim sem veldur tjóni á umhverfinu ber að bæta það, án tillits til þess hvort rekja megi tjónið til ásetnings eða gáleysis og þess hvort mengunin valdi einkaaðilum ...

Vegna umfjöllunar fjölmiðla um mælingar á brennisteinsvetnismengun í Hveragerði vill umhverfisráðuneytið taka fram að nú er unnið að gerð reglugerðar um losun brennisteinsvetnis. Vegna ríkra hagsmuna íbúa á Suðvesturhorni landsins hefur Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra lagt áherslu á að vinnu við gerð reglugerðarinnar verði flýtt eins og kostur er.

Markmið með gerð reglugerðarinnar eru þrenns konar:

  • Tryggja viðunandi mælingar á styrk ...

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra hefur ákveðið að hefja endurskoðun á lögum um náttúruvernd með það fyrir augum að styrkja stöðu náttúruverndar í landinu. Ráðist er í endurskoðunina vegna brýnnar þarfar á að styrkja stöðu náttúrunnar og umhverfissjónarmiða í íslenskum rétti. Kveðið er á um endurskoðun laganna í samstarfsyfirlýsingu ríkisstjórnar Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs og Samfylkingar. Þar er sérstaklega tekið fram að verndarákvæði ...

Nýr kennsluvefur um loftslagsbreytingar verður opnaður í Sjálandsskóla í Garðabæ á morgun, miðvikudaginn 11. nóvember kl. 12:00. Fjölmiðlar eru hvattir til að mæta. Norræni loftslagsdagurinn verður haldinn hátíðlegur þennan dag, en hann er hluti af undirbúningi fyrir loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Kaupmannahöfn í desember. Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra mun opna kennsluvefinn, sem er hluti af námsefni um loftslagsbreytingar sem Námsgagnastofnun ...

Landið er okkar dýrmætasta auðlind og tilgangslaus skemmdarverk á því eru óþolandi. Þetta er meðal þess sem segir í meðfylgjandi grein Svandísar Svavarsdóttur umhverfisráðherra um átak gegn akstri utan vega. Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 6. nóvember síðastliðinn. Hún segist ætla að herða róðurinn í baráttu gegn akstri utan vega og vilja vinna að því máli með öllum ábyrgum samtökum ...

Í umfjöllun fjölmiðla í dag um umræðu á Alþingi í gær um álversuppbyggingu á Bakka er því haldið fram að umboðsmaður Alþingis hafi í áliti talið úrskurð umhverfisráðherra um sameiginlegt mat á umhverfisáhrifum framkvæmda tengdum álverinu á Bakka ólöglegan. Samkvæmt bestu vitneskju umhverfisráðuneytisins hefur umboðsmaður Alþingis ekki fjallað um þennan úrskurð umhverfisráðherra eða gefið álit sitt um hann. Staðhæfingar um ...

Umhverfisráðuneytið hefur vakið athygli Landsnets og Skipulagsstofnunar á röngum fullyrðingum um fyrirhugaða orkuþörf álvers Norðuráls í Helguvík sem fram koma í matsáætlunum Landsnets um Suðvesturlínu og ákvörðun Skipulagsstofnunar um sameiginlegt umhverfismat. Í gögnum frá Landsneti kemur fram að Norðurál hafi hafið framkvæmdir við allt að 360.000 tonna álver í Helguvík og sé aflþörf þess 435 MW. Þessi ranga fullyrðing ...

Umhverfisráðuneytið, Landvernd og Náttúruskóli Reykjavíkur buðu nemendum í Hjólaríi Snælandsskóla í hjólreiðaferð í liðinni viku. Nemendurnir voru útnefndir Varðliðar umhverfisins á Degi umhverfisins í ár og var ferðin viðurkenning fyrir þann árangur.

Hjólreiðaferðin hófst á ferð í klúbbhús Hjólafélags Reykjavíkur í Nauthólsvík þar sem Pétur Þór Ragnarsson tók á móti hópnum. Pétur sýndi Varðliðunum m.a. nýtt keppnishjól sem er ...

Nú er unnið að endurskoðun á stefnu stjórnvalda um sjálfbæra þróun. Stefnumótunin ber yfirskriftina Velferð til framtíðar 2010-2013. Fyrstu drög voru kynnt á Umhverfisþingi 9. og 10. október þar sem þinggestir tóku virkan þátt í umræðum um sjálfbæra þróun í íslensku samfélagi. Í drögunum er að finna yfirlit yfir helstu lykilverkefni á sviði sjálfbærrar þróunar hér á landi.

Umhverfisráðuneytið óskar ...

Á 15. Stefnumóti umhverfisráðuneytisin og Stofnunar Sæmunar fróða verður fjallað um tengsl milli hnattrænna loftslagsbreytinga, sjálfbærrar þróunar og öryggismála. Einnig verður rætt um alþjóðlegar samningaviðræður um loftslagsmál í aðdraganda Kaupmannahafnarfundarins.

Það er dr. Adil Najam, framkvæmdastjóri Pardee Center við Boston University, sem flytur erindið Loftslagsbreytingar, þróun og öryggi. Dr. Adil Najam er einn af aðalhöfundum 3. og 4. skýrslu Vísindanefndar ...

Vegna umræða í fjölmiðlum um að umhverfisráðherra hafi brotið lög með úrskurði sínum um Suðvesturlínu vill umhverfisráðuneytið koma eftirfarandi á framfæri:

Fullyrðingar þess efnis að úrskurðurinn sé ólögmætur vegna þess að málshraðareglur hafi verið brotnar eiga ekki við rök að styðjast. Samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum er frestur ráðherra til að úrskurða vegna mats á umhverfisáhrifum tveir mánuðir frá ...

Vegna fréttar á Visi.is með fyrirsögninni Afþakkar 15 milljarða loftslagskvóta vill umhverfisráðuneytið koma eftirfarandi á framfæri:

Ísland er þegar aðili að viðskiptakerfi ESB og frá og með 1. janúar 2013 mun nærri helmingur losunar Íslands falla undir það samkvæmt ákvæðum EES-samningsins, þar á meðal öll losun frá stóriðju. Það liggur því fyrir að stóriðja á Íslandi á að búa ...

Umhverfisþing hefst á morgun á Hótel Nordica í Reykjavík. Rúmlega 400 hafa skráð sig til þátttöku á þinginu og verður það því fjölmennasta Umhverfisþing sem haldið hefur verið. Sjálfbær þróun verður meginefni þingsins að þessu sinni. Lögð verður áhersla á virka þátttöku þinggesta og því verður efnt til umræðna í heimskaffistíl sem nýtast svo við gerð stefnumörkunar stjórnvalda um sjálfbæra ...

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra og Gunnar Einarsson, bæjarstjóri Garðabæjar, hafa undirritað friðlýsingar Gálgahrauns í Garðabæ og Skerjafjarðar innan lögsögu Garðabæjar.

Markmiðið með friðlýsingu Gálgahrauns er að vernda nyrsta hluta Búrfellshrauns, þann hluta hraunsins sem runnið hefur í sjó fram, bæði vegna jarðmyndana og lífríkis. Verndargildi hraunsins byggir m.a. á því að Gálgahraunið er að mestu ósnortið á þessu svæði. Þar ...

Sænska verkefnið I ur og skur hlaut náttúru- og umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs í ár. Dómnefnd verðlaunanna ákvað þetta á fundi, sem haldinn var hér á landi í gær.

Í rökstuðningi dómnefndar segir að aðferðir I Ur og skur hvetji til til útivistar og séu frábært dæmi um verkefni sem stuðlar að velferð barna og auki skilning þeirra á náttúrunni. Verkefnið er ...

Umhverfisráðuneytið hefur gefið út skýrsluna Umhverfi og auðlindir sem fjallar um stöðu umhverfismála hér á landi. Skýrslan verður til umfjöllunar á Umhverfisþingi sem hefst næstkomandi föstudag, 9. október. Þar mun Hugi Ólafsson, skrifstofustjóri í umhverfisráðuneytinu, kynna skýrsluna og Magnús Tumi Guðmundsson, prófessor við Háskóla Íslands mun flytja sínar hugleiðingar um umhverfismál með hliðsjón af skýrslunni.

Eitt af helstu verkefnum umhverfisráðuneytisins ...

Umhverfisfræðsluráð og Landvernd efndu til málþings um þjóðaráætlun um menntun til sjálfbærni í liðinni viku. Þingið var fjölmennt og voru Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra og Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra meðal framsögumanna. Nú er hægt að skoða upptöku af erindum sem flutt voru á þinginu með því að smella hér.

Í ávarpi sínu sagði umhverfisráðherra m.a. að stjórnvöld ynnu nú að ...

Umhverfisráðherra hefur fellt úr gildi ákvörðun Skipulagsstofnunar um að ekki skuli fara fram sameiginlegt mat á umhverfisáhrifum framkvæmda vegna Suðvesturlínu og öðrum tengdum framkvæmdum. Málinu hefur verið vísað aftur til Skipulagsstofnunar til efnilegrar meðferðar og úrlausnar.

Ráðuneytinu bárust þann 24. apríl 2009 tvær kærur, annars vegar frá Landvernd og hins vegar frá Náttúruverndarsamtökum Íslands, vegna ákvörðunar Skipulagsstofnunar frá 25. mars ...

Montrealbókunin um vernd ósonlagsins er fyrsti alþjóðasamningur á sviði umhverfismála sem öll 196 ríki heims hafa staðfest. Austur-Tímor undirritaði samninginn, síðust þjóða, á degi ósonlagsins 16. september síðastliðinn.

Montrealbókunin var gerð 1987 við Vínarsáttmálann um verndun ósonlagsins frá 1985 og er því 22 ár síðan bindandi samkomulag var gert til varnar rþrnun ósonlagsins. Á þessum ríflega 20 árum hefur notkun ...

Dagskrá Umhverfisþings dagana 9. og 10. október liggur nú fyrir og er sjálfbær þróun meginefni þingsins að þessu sinni. Á þinginu verður m.a. kynnt ný skýrsla umhverfisráðherra um umhverfi og auðlindir og drög að nýjum áherslum í stefnumótun stjórnvalda um sjálfbæra þróun.

Í málstofum á þinginu verður fjallað um umhverfismál í sveitarfélögum og atvinnulífinu. Einnig er lögð áhersla á ...

Umhverfisráðherra hefur ákveðið að fyrirkomulag rjúpnaveiða í haust verði með nokkuð breyttu sniði frá fyrra ári. Tveimur helgum verður bætt við tímabilið en á móti kemur að veiðihelgar verða styttar úr fjórum dögum í þrjá. Því verða veiðidagar átján eins og í fyrra. Nú verður veiði heimil á föstudögum, laugardögum og sunnudögum og tímabilið hefst frá og með 27. október ...

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra hefur óskað eftir áliti Umhverfisstofnunar og Náttúrufræðistofnunar á tillögum Samtaka um náttúruvernd á Norðurlandi um friðlýsingu Gjástykkis. Umhverfisráðherra skoðaði Gjástykki í liðinni viku í fylgd Árna Einarssonar, forstöðumanns Náttúrurannsóknastöðvarinnar við Mývatn, og Bergþóru Kristjánsdóttur, starfsmanns Umhverfisstofnunar við Mývatn.

Í kjölfar þess að Samtök um náttúruvernd á Norðurlandi (SUNN) sendu umhverfisráðherra tillögu þess efnis að hafinn verði undirbúningur ...

Ósk Vilhjálmsdóttir og Ásta Arnardóttir eru komnar áfram í aðra umferð í vali um það hver hlýtur Náttúru- og umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs í ár. Níu af þeim 63 sem tilnefndir voru í upphafi komust áfram í aðra umferð.

Verðlaunin eru að þessu sinni veitt norrænu fyrirtæki, samtökum eða einstaklingi sem hefur á einstakan hátt skapað gott fordæmi við að fá fólk ...

Dagana 17.-19. september 2009 verður efnt til alþjóðlegrar ráðstefnu á Grand Hótel Reykjavík sem einkum hefur það að markmiði að varpa ljósi á þátt skóga og skógræktar í því að efla útivist og lþðheilsu almennings í þéttbýli.

Áherslan er á löndin við norðvestanvert Atlantshaf sem eru flest, líkt og Ísland, fremur fátæk af skógum. Engin tilviljun ræður því að ...

Umhverfisráðuneytið, Stofnun Sæmundar fróða um sjálfbæra þróun, Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands og utanríkisráðuneytið efna til opins fundar um alþjóðlegar samningaviðræður í aðdraganda Loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna sem fram fer í Kaupmannahöfn í desember. Fundurinn fer fram í fundarsal Þjóðminjasafnsins fimmtudaginn 10. september 2009 kl. 12:00 til 13:30.

Richard B. Howarth, prófessor við Dartmouth College í New Hampshire í Bandaríkjunum og ...

Umhverfisráðherra mun á næstu dögum óska eftir frekari upplýsingum vegna skipulagstillögu Skeiða- og Gnjúpverjahrepps. Það er gert í ljósi úrskurðar samgönguráðuneytisins um að Flóahreppi hafi ekki verið heimilt að semja við Landsvirkjun um greiðslu kostnaðar vegna skipulagsvinnu sveitarfélagsins.

Umhverfisráðuneytið hefur til skoðunar skipulagstillögu vegna breytinga á aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps sem sveitarfélagið hefur óskað staðfestingar umhverfisráherra á. Í rammasamkomulagi milli ...

Umhverfisráðherra boðar til VI. Umhverfisþings dagana 9.-10. október 2009. Þingið fer fram á Hótel Hilton Reykjavík Nordica. Sjáflbær þróun verður aðalumfjöllunarefni þingsins að þessu sinni. Kynntar verða tillögur að nýjum aherslum stjórnnvalda í á sviði sjálfbærrar þróunar næstu árin. Einnnig verður kynnt ný skýrsla umhverifsráðherra um stöðu og þróun umhverfismála. Umhverfismál í sveitarfélögum og atvinnulífinu verða í brennidepli í ...

Umhverfisfræðsluráð og Landvernd boða til málþings um þjóðaráætlun um menntun til sjálfbærni. Málþingið fer fram á Grand Hótel þriðjudaginn 15. september kl. 13:00 til 16:00. Þátttaka tilkynnist með tölvupósti á postur@umhverfisraduneyti.is. Aðgangur er ókeypis.

Dagskrá málþingsins:

  • Ávarp Svandísar Svavarsdóttur umhverfisráðherra.
  • Niðurstöður úttektar á menntun til sjálfbærni á Íslandi sem unnin er fyrir umhverfisfræðsluráð. Stefán Gíslason, Environice ...

Náttúrufræðistofnun Íslands hefur opnað sérstakt vefsvæði á heimasíðu stofnunarinnar með fróðleik um pöddur. Stofnunin reynir með þessu að mæta auknum áhuga landsmanna á náttúru landsins. Á heimasíðu stofnunarinnar verður fjallað um pöddur af ýmsu tagi, tegundir sem lifa í íslenskri náttúru og görðum landsmanna, híbýlum og gripahúsum, útlendar tegundir sem flækjast til landsins með vindum, svo og tegundir sem slæðast ...

Undirbúningur að stækkun friðlandsins í Þjórsárverum hefst nú þegar samkvæmt tillögu Svandísar Svavarsdóttur umhverfisráðherra sem var samþykkt á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun. Umhverfisráðherra vill ljúka stækkun friðlandsins eigi síðar en snemma árs 2010.

Í samstarfsyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar segir að friðlandið í Þjórsárverum verði stækkað og friðun þess lokið hið fyrsta.

Stækkunin verður unnin í samræmi við ákvæði náttúruverndarlaga og undirbúningurinn verður ...

Ríkisstjórnin samþykkti á fundi í morgun að hefja gerð áætlunar um sjálfbærar samgöngur með það að markmiði að draga úr þörf fyrir einkabílinn. Áætluninn verður unnin á vegum Svandísar Svavarsdóttur umhverfisráðherra og Kristjáns Möller samgönguráðherra en auk þess verður haft náið samstarf við fulltrúa fjármálaráðherra vegna breytinga sem lúta t.d. að skatta- og gjaldamálum. Þeir sem vilja ná tali ...

  • 10 skilti með fræðslu um bann við akstri utan vega sett upp á leiðum inn á hálendið.
  • Afrakstur samráðshóps sem umhverfisráðherra skipaði til að efla fræðslu.
  • Áróðri dreift með bæklingum og stýrisspjöldum í bílaleigubílum.
  • Öflugt hálendiseftirlit í sumar.
  • Sérstakt átak á Reykjanesi og unnið að því að eyða óvissu um hvaða slóða megi aka á hálendinu.

Vegagerðin, tryggingafélög og bílaleigur ...

Landgræðsla ríkisins veitti hin árlegu landgræðsluverðlaun við hátíðlega athöfn á Kirkjubæjarklaustri í liðinni viku. Umhverfisráðherra, Svandís Svavarsdóttir, afhenti verðlaunin. Verðlaunahafar eru hjónin Drífa Hjartardóttir og Skúli Lýðsson á Keldum á Rangárvöllum, Óskar Þór Sigurðsson, fyrrverandi formaður Skógræktarfélags Árnesinga og Landgræðslufélag Skaftárhrepps. Verðlaunin voru afhent í tengslum við landgræðsludag, sem Landgræðslufélag Skaftárhrepps hélt í samstarfi við Landgræðsluna.

Við afhendingu verðlaunanna sagði ...

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra hefur skipað verkefnisstjórn til að vinna aðgerðaáætlun í loftslagsmálum. Við gerð áætlunarinnar verður stefnuyfirlýsing ríkisstjórnarinnar um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda höfð að leiðarljósi.

Nýútkomin skýrsla sérfræðinefndar frá júní 2009, sem ber heitið Möguleikar til að draga úr nettóútstreymi gróðurhúsalofttegunda á Íslandi, liggur einnig til grundvallar við störf verkefnisstjórnarinnar.

Verkefnastjórnin á að vinna í nánu samráði við alla ...

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra og eigendur Hoffells og Miðfells í sveitarfélaginu Hornafirðir undirrituðu í gær samning um friðlýsingu fjalllendis á jörðunum við Hoffellsjökul. Svæðið eru um 50 ferkílómetrar að stærð og verður hluti af Vatnajökulsþjóðgarði.

Landslag á svæðinu er stórbrotið og einkennist af lítt grónum fjöllum og grónum dölum. Birkiskógur með sérstæðu gróðurfari og mörgum sjaldgæfum fléttum og háplöntutegundum vex á ...

Alls bárust 63 tilnefningar til Náttúru- og umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs í ár, þar af átta frá Íslandi. Í ár verða verðlaunin veitt norrænu fyrirtæki, samtökum eða einstaklingi sem á einstakan hátt hefur stuðlað að góðu fordæmi við að fá fólk til að stunda útivist og sem hefur aukið skilning á þýðingu náttúrunnar. Verðlaunin, sem eru 350.000 danskar krónur, verða nú ...

Umhverfisráðherrar Norðurlandanna komu saman til fundar í Lúxemborg til að undirbúa umhverfisráðherrafund Evrópusambandsins. Stærsta mál þess fundar að þessu sinni var loftslagsmál og staða samningaviðræðna í aðdraganda loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Kaupmannahöfn í desember. Lögð var áhersla á forystu ESB í viðræðunum og það mun koma í hlut Svíþjóðar að leiða viðræðurnar af hálfu ESB.

Ísland verði hluti af heildarfyrirkomulagi ...

Nýr vefur um vistvæn innkaup hefur verið opnaður á slóðinni vinn.is. Á vefnum eru hagnýtar upplýsingar sem gagnast kaupendum og útboðsaðilum, um það hvernig best er að kaupa inn og bjóða út á vistvænan hátt. Þar er einnig að finna ráðleggingar til seljenda.

Vefurinn styður við auknar áherslur opinberra aðila á því að taka tilltit umhverfissjónarmiða jafnt sem kostnaðar ...

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra hefur skipað aðgerðateymi til að koma á átaki til að verja viðkvæma náttúru Reykjanesfólkvangs fyrir skemmdum af völdum aksturs utan vega og lagfæra þær skemmdir sem þegar hafa orðið. Yfirskrift átaksins er Á réttri leið á Reykjanesi.

Aðgerðateymið á að efla og samræma störf ýmissa aðila en í teyminu sitja fulltrúar frá umhverfisráðuneytinu, Reykjanesfólkvangi, Grindavíkurbæ, Sveitarfélaginu Vogum ...

Á vordögum 2007 skipaði umhverfisráðherra sérfræðinganefnd til að fjalla um tæknilega möguleika á að draga úr nettóútstreymi gróðurhúsalofttegunda í mismunandi geirum samfélagsins: orkuframleiðslu; samgöngum; iðnaðarferlum; sjávarútvegi; landbúnaði; og meðferð úrgangs. Einnig skyldi nefndin kanna möguleika á að beita öðrum mótvægisaðgerðum þ.e. bindingu kolefnis og notkun sveigjanleikaákvæða Kyoto bókunarinnar til að minnka nettóútstreymi. Þessi skýrsla er heildstæð samantekt á ...

Umhverfisráðuneytið og Landgræðsla ríkisins standa fyrir morgunverðarfundi þriðjudaginn 16. júní á Grand Hótel í tilefni af alþjóðlega jarðvegsverndardeginum, sem er 17. Júní. Boðið verður upp á morgunmat frá kl. 8:00 en fundurinn hefst kl. 8:30 og stendur til kl. 10:00.

Dagskrá:

  • Setning: Sveinn Runólfsson, landgræðslustjóri.
  • Ávarp: Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra.
  • Hlutverk og framkvæmd jarðvegsverndarstefnu Evrópusambandsins. Dr. Luca Montanarella ...
Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra mælti fyrir þingsályktunartillögu um náttúruverndaráætlun 2009-2013 á Alþingi í dag. Lagt er til að þrettán svæði verði friðlýst á tímabilinu. Þar á meðal er gert ráð fyrir að friðlandið í Þjórsárverum verði stækkað og friðun þess lokið sem fyrst. Lagt er til að mörk friðlandsins í Þjórsárverum verði færð út þannig að það nái yfir allt votlendi ...
Íslensk stjórnvöld vilja draga úr losun gróðurhúsalofttegunda um að minnsta kosti 15% til 2020, miðað við árið 1990. Ríkisstjórnin samþykkti tillögu Svandísar Svavarsdóttur umhverfisráðherra þess efnis á fundi í dag. Þessi tölulegu markmið verða tilkynnt á næsta samningafundi um loftslagsmál sem hefst í Bonn í næstu viku og verður það í fyrsta sinn sem íslensk stjórnvöld tilkynna á alþjóðavettvangi að ...

Aðildarríki Stokkhólmssamningsins hafa fallist á þýðingarmikið samkomulag um að banna níu þrávirk lífræn efni til viðbótar við þau tólf efni sem þegar hafa verið bönnuð. Þetta var niðurstaða fjórða aðildarríkjafundar samningsins sem haldinn var í Genf fyrir skömmu.

Stokkhólmssamningurinn var undirritaður árið 2001 og var mikilvægur áfangi í baráttunni gegn mengun hafsins. Ísland átti stóran þátt í gerð samningsins. Samningurinn ...

Norðurlöndin munu styrkja stöðu sína sem brautryðjendur á sviði umhverfistækni. Þetta ítrekuðu norrænu umhverfisráðherrarnir á fundi sínum í Svartsengi sem lauk í dag. Íslendingar fara með formennsku í Norrænu ráðherranefndinni í ár og því var Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra gestgjafi fundarins.

Samkvæmt yfirlýsingu fundarins munu Norðurlöndin styrkja stöðu sína sem brautryðjendur á sviði umhverfistækni. Mikil þörf er á tækni til að ...

Norræna umhverfisfjármögnunarfélagið (NEFCO) og norræni verkefnaútflutningssjóðurinn (NOPEF) efna til kynningar á starfsemi sjóðanna miðvikudaginn 27. maí kl. 08.15–10.00 á Grand Hótel Reykjavík. Að fundinum loknum verða fulltrúar frá sjóðunum með viðtalstíma á Grand Hótel. Vinsamlegast skráið þátttöku í fundinum í síðasta lagi mánudaginn 25. maí á netfangið: postur@umh.stjr.is

NEFCO
Norræna umhverfisfjármögnunarfélagið (NEFCO) er alþjóðleg ...
Umhverfisráðuneytið og Náttúrufræðistofnun Íslands boða til morgunverðarfundar á degi líffræðilegrar fjölbreytni, 22. maí, kl. 8:00 til 10:00 í Sunnusal Hótel Sögu. Fjallað verður um ágengar framandi tegundir. Boðið verður upp á morgunverð frá kl. 8:00 en dagskrá hefst á ávarpi Svandísar Svavarsdóttur umhverfisráðherra kl. 8:30. Flutt verða fjögur erindi og opnað verður fyrir umræður að þeim ...
Umhverfisráðuneytið hefur tilkynnt sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps að ekki sé unnt að staðfesta tillögu að breytingu á aðalskipulagi sveitarfélagsins er varðar virkjun Þjórsár fyrr en kröfum skipulags- og byggingarlaga um forkynningu hefur verið fullnægt.

Af hálfu Skipulagsstofnunar, sem yfirfór umrædda breytingartillögu sveitarstjórnar, var viðurkennt að málsmeðferð sveitarstjórnar væri haldin þeim ágalla að fyrirmælum 17. gr. skipulags- og byggingarlaga um forkynningu ...

Loftslagsbreytingar á Norðurslóðum eru enn hraðari en talið hefur verið til þessa. Þetta er meðal þess sem kom fram á ráðstefnu sem haldin var í tengslum við ráðherrafund Norðurskautsráðsins í Tromsö í Noregi fyrir skömmu.

Ráðherrafundurinn í Tromsö var 7. ráðherrafundur Norðurskautsráðsins, en þeir eru haldnir á tveggja ára fresti. Átta ríki eiga sæti í Norðurskautsráðinu, auk fulltrúa samtaka frumbyggja ...

Svandís Svavarsdóttir tók við embætti umhverfisráðherra í dag, sunnudaginn 10. maí 2009, af Kolbrúnu Halldórsdóttur sem gegnt hefur embættinu síðan 1. febrúar 2009.
Svandís var kosin alþingismaður fyrir Vinstrihreyfinguna grænt framboð í Reykjavíkurkjördæmi Suður 25. apríl 2009.

Svandís er fædd 24. ágúst 1964. Eiginmaður Svandísar er Torfi Hjartarson lektor og eiga þau fjögur börn. Hún lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum við ...
Ísland tók við formennsku í vinnuhóp Norðurskautsráðsins um vernd lífríkisins (CAFF) á ráðherrafundi Norðurskautsráðsins, sem haldinn var í Tromsö í Noregi 29. apríl sl. Ævar Petersen, fuglafræðingur hjá Náttúrufræðistofnun Íslands, er ný r formaður vinnuhópsins.

Að sögn Ævars verður unnið að tveimur stórum verkefnum innan CAFF í formennskutíð Íslands 2009-2011. Annars vegar vöktun á líffræðilegum fjölbreytileika á norðurslóðum (Circumpolar Biodiversity ...

Stofnun Sæmundar fróða og umhverfisráðuneytið bjóða til „Stefnumóts um sjálfbærni jarðvarmavirkjana“ miðvikudaginn 6.maí 2009 kl 12:00-13:30 en Stefnumót Sæmundar Fróða og umhverfisráðuneytisins eru að jafnaði haldin í fundarsal Þjóðminjasafns Íslands.

  • Stefán Arnórsson prófessor nefnir erindi sitt Háhitasvæði, umhverfisáhrif eða sjálfbær nýting.
  • Þorsteinn Jóhannsson sérfræðingur á Umhverfisstofnun talar um Jarðhitavirkjanir og brennisteinsvetni. Á eftir eru almennar umræður.

Fundarstjóri ...

Vegna fréttar Ríkisútvarpsins um að heilbrigðisnefnd Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis hafi vakið athygli umhverfisráðuneytisins á því að hún telji að mengun frá Hellisheiðavirkjun sé farin að valda óþægindum á höfuðborgarsvæðinu vill umhverfisráðuneytið koma eftirfarandi á framfæri.

Umhverfisráðuneytið lítur málið alvarlegum augum og hefur haft það til sérstakrar skoðunar undanfarna mánuði. Í kjölfar frétta í vetur af auknum styrk brennisteinsvetnis á höfuðborgarsvæðinu ...

Vegna umfjöllunar fjölmiðla um úrskurð umhverfisráðuneytisins varðandi kæru vegna útgáfu starfsleyfis til Lýsis hf. í Þorlákshöfn vill ráðuneytið koma eftirfarandi á framfæri.

Samkvæmt úrskurði umhverfisráðuneytisins er hert mjög á starfsskilyrðum verksmiðjunnar og starfsleyfistími styttur úr tólf árum í átta. Auk þess voru sett ný skilyrði í starfsleyfið. Það var gert til að koma til móts við kröfu kærenda og til ...

Kolbrún Halldórsdóttir umhverfisráðherra tekur fyrstu skóflustunguna að Gestastofu Vatnajökulsþjóðgarðs á Skriðuklaustri í dag um kl. 16:45.

Gestastofan verður fyrsta byggingin hér á landi sem verður byggð samkvæmt vottuðum vistvænum byggingarstöðlum (Sjá frétt).

Við þetta tækifæri mun umhverfisráðherra jafnframt undirrita reglugerð um stækkun Vatnajökulsþjóðgarðs til norðurs og verður þá Trölladyngja í heild, Askja og stór hluti Ódáðahrauns hluti af þjóðgarðinum ...

Á degi umhverfisins 25. apríl boða umhverfisráðuneytið, Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Félag umhverfisfræðinga til málþings um vistvæna nýsköpun og nýjar áherslur í atvinnuuppbyggingu. Málþingið fer fram í Iðnó frá kl. 13:00 til 15:00.

Margar þjóðir heims hafa nú mikinn áhuga á að leggja sig fram við að skapa atvinnutækifæri á sviði vistvænnar nýsköpunar, þróunar og þjónustu. Fyrirsjáanlegt er að ...

Framkvæmdasýsla ríkisins hefur auglýst eftir tilboðum í byggingu Gestastofu Vatnajökulsþjóðgarðs á Skriðuklaustri, en hún verður fyrsta byggingin hér á landi sem verður byggð samkvæmt vottuðum vistvænum byggingarstöðlum. Útboðið er unnið samkvæmt ný samþykktri stefnu ríkisstjórnarinnar um vistvæn innkaup.

Í stefnu ríkisstjórnarinnar er sagt fyrir um hvernig samþætta eigi umhverfissjónarmið í innkaupum hjá ríkinu. Íslenska ríkið kaupir vörur, þjónustu og verk ...

Umhverfisráðuneytið mun styðja uppbyggingu og rekstur upplýsingamiðstöðvar og gestastofu á Álftanesi samkvæmt viljayfirlýsingu sem Kolbrún Halldórsdóttir umhverfisráðherra skrifað undir í dag.

Sveitarfélagið Álftanes hyggst í tengslum við friðlýsingu Skerjafjarðar setja á stofn upplýsingamiðstöð sem verður hluti af fyrirhuguðu menningar- og náttúrufræðasetri á Álftanesi. Markmið með rekstri upplýsingamiðstöðvarinnar er að samflétta kynningu á náttúru Álftaness og Skerjafjarðar, svo og sögu Bessastaða ...

Norræna ráðherranefndin hefur gefið út framkvæmdaáætlun í umhverfismálum 2009-2012. Í áætluninni er stefnumótun í norrænu umhverfisstarfi tíunduð og m.a. fjallað um loftslagsmál, hafið, líffræðilega fjölbreytni og sjálfbæra neyslu og framleiðslu.

Norrænu umhverfisráðherrarnir bera meginábyrgð á pólitískum þáttum umhverfissamstarfsins en embættismannanefnd skipuð af ráðherrunum ber ábyrgð á framkvæmd umhverfisáætlunarinnar. Framkvæmdaáætlun í umhverfismálum 2009-2012.

Þá hefur einnig verið gefin út norræn ...

Kolbrún Halldórsdóttir umhverfisráðherra og Lúðvík Geirsson bæjarstjóri Hafnarfjarðar munu friðlýsa fimm svæði innan marka Hafnarfjarðar kl. 13:00 á morgun, föstudaginn 3. apríl. Athöfn fer fram við Hleina, skammt frá Hrafnistu í Hafnarfirði. Aldrei hafa svo mörg svæði verið friðlýst í sama sveitarfélaginu í einum vettvangi.

Þrír fólkvangar og tvö náttúruvætti verða friðlýst til útivistar og verndunar á lífríki og ...

Kolbrún Halldórsdóttir umhverfisráðherra og Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra undirrituðu stefnu um vistvæn innkaup í dag. Ríkisstjórnin samþykkti stefnuna á fundi sínum í morgun. Í stefnuninni er sagt fyrir um hvernig samþætta á umhverfissjónarmið innkaupum hjá ríkinu.

Margs konar ávinningur
Íslenska ríkið kaupir vörur, þjónustu og verk fyrir meira en 100 milljarða króna á ári sem er um fjórðungur af útgjöldum ...

Ellefta landsráðstefna Staðardagskrár 21 á Íslandi var sett í Stykkishólmi í gær. Hundrað þátttakendur voru skráðir til þátttöku á ráðstefnunni og er hún því sú fjölmennasta hingað til.

Kolbrún Halldórsdóttir umhverfisráðherra sagði í setningarávarpi að mikið hefði áunnist á þeim tíu árum sem liðin eru frá því að Staðardagskrárstarfið á Íslandi hófst fyrir alvöru með ráðningu verkefnisstjóra á vegum umhverfisráðuneytisins ...

Kolbrún Halldórsdóttir umhverfisráðherra hefur skipað starfshóp til að kanna rekstrargrundvöll félagasamtaka á sviði umhverfismála við breyttar efnahagsaðstæður og til að leggja fram tillögur um hvernig efla megi starfsemi og fjárhag félaganna til frambúðar.

Starfshópurinn á að skoða á hvern hátt félagasamtök á sviði umhverfismála eru í stakk búin til að gegna sífellt mikilvægara hlutverki. Þau veita stjórnvöldum og atvinnurekendum mikilvægt ...

Kolbrún Halldórsdóttir umhverfisráðherra hefur skipað starfshóp til að undirbúa fullgildingu Árósasamningsins hér á landi. Verkefni starfshópsins er að gera tillögu um hvernig best sé að tryggja almenningi aðgang að réttlátri málsmeðferð við fullgildingu Árósasamningsins hér á landi. Auk þess er starfshópnum falið að gera tillögu um frekari vinnslu málsins í kjölfarið, þ.e. samningu nauðsynlegra lagafrumvarpa.

Nefnd sem falið var ...

Á 12. stefnumóti umhverfisráðuneytisins og Stofnunar Sæmundar fróða um sjálfbæra þróun verður fjallað um umhverfis- og auðlindaákvæði í stjórnarskrám. Á fundinum mun Aðalheiður Jóhannsdóttir, dósent við lagadeild Háskóla Íslands og sérfræðingur í umhverfisrétti, svara spurningunni hverju stjórnarskrárvernd umhverfisins breyti. Ellý Katrín Guðmundsdóttir, sviðsstýra umhverfis- og samgöngusviðs Reykjavíkurborgar, flytur erindi undir yfirskriftinni: ,,Í hvaða sæti setjum við umhverfið?"
Frumvarp til ...

,,Norrænu ríkin gegna mikilvægu hlutverki við að knýja fram alþjóðlegar lausnir í loftslagsmálum". Þetta er meðal þess sem segir í sameiginlegri grein forsætisráðherra Norðurlandanna sem sátu norrænt hnattvæðingarþing á Íslandi 26. - 27. febrúar sl.

Í greininni segir að norrænu ríkin geti sýnt fram á að sameina megi hagvöxt og vistvæna framleiðslu. Takast megi á við viðfangsefni í umhverfismálum með því ...

Kolbrún Halldórsdóttir umhverfisráðherra sat sinn fyrsta samráðsfund með félagasamtökum á sviði umhverfismála í Þjóðmenningarhúsinu á þriðjudag.

Á fundinum sagði umhverfisráðherra að í ljósi ástandsins í þjóðfélaginu yrðu efnahagsmál í forgangi hjá ríkisstjórninni. Engu að síður ætlaði hún að beita sér fyrir ákveðnum málum á verksviði síns ráðuneytis sem hún telur að hægt sé að koma á rekspöl á þeim stutta ...

Stórt skref var stigið í átt að alþjóðlegum samningi um kvikasilfur á árlegum ráðherrafundi Umhverfisstofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNEP) sem haldinn var í Nairobi í Kenía í liðinni viku. Samkomulag náðist um að hefja samningaviðræður um bindandi samkomulagi árið 2013.

Norðurlöndin hafa lengi unnið að því að komið yrði á alþjóðlegu samkomulagi sem fæli í sér takmörkun á nýtingu á kvikasilfri ...

Úthlutunarnefnd á vegum umhverfisráðuneytisins óskar eftir tilnefningum um fyrirtæki eða stofnanir, sem vegna verka sinna og athafna á síðasta ári, er þess verðugt að hljóta umhverfisviðurkenningu umhverfisráðuneytisins, Kuðunginn fyrir árið 2008. Kuðungurinn verður afhentur á degi umhverfisins 25. apríl.

Óskað er eftir því að stutt greinargerð fylgi með tilnefningunum. Fyrirtæki og stofnanir geta hvort heldur sem er tilnefnt sig sjálf ...

Ríkisstjórn ÍslandsRíkisstjórn Íslands hefur samþykkt tillögu Kolbrúnar Halldórsdóttur umhverfisráðherra um að Árósasamningurinn verði fullgiltur hér á landi. Samningurinn fjallar um aðgang að upplýsingum, þátttöku almennings í ákvarðanatöku og aðgang að réttlátri málsmeðferð í umhverfismálum.

Samningurinn var gerður árið 1998 og öðlaðist gildi í október árið 2001. Þrjátíu og átta ríki undirrituðu hann auk Evrópubandalagsins, þ.á m. Ísland. Fjörutíu og eitt ...

Kolbrún Halldórsdóttir er ný skipaður umhverfisráðherra í ríkisstjórn en síðdegis í dag tók minnihlutastjórn Samfylkingar og Vinstrihreyfingarinnar Græns framboðs við stjórn landsins.

Kolbrún útskrifaðist sem leikari frá Leiklistaskóla Íslands árið 1978. Kolbrún hefur starfað bæði sem leikstjóri og leikari við Þjóðleikhúsið og önnur leikhús, starfað sem framkvæmdastjóri Bandalags Íslenskra leikara og Kramhússins, verið dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, verið fulltrúi og í ...

Tillaga að náttúruverndaráætlun 2009-2013 verður til umfjöllunar á 11. Stefnumóti umhverfisráðuneytisins og Stofnunar Sæmundar fróða um sjálfbæra þróun. Á fundinum mun Sigurður Á. Þráinsson úr umhverfisráðuneytinu fjalla um áherslur í áætluninni og dr. Hilmar J. Malmquist fjallar um náttúruverndaráætlun 2009-2013, kosti hennar, galla og efndir.

Fundurinn fer fram í fundarsal Þjóðminjasafnsins miðvikudaginn 4. febrúar kl. 12:00 til 13:30 ...

Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra hefur undirritað friðlýsingu Vatnshornsskógar í Skorradal sem friðlands í samræmi við þingsályktun um náttúruverndaráætlun. Friðlýsingin var unnin í samvinnu við Skorradalshrepp og Skógrækt ríkisins.

Markmið friðlýsingarinnar er að vernda náttúrulegan, lítt snortinn og hávaxinn birkiskóg með gróskumiklum botngróðri og erfðafjölbreytileika birkisins á svæðinu. Á svæðinu er líffræðileg fjölbreytni mikil og þar vaxa sjaldgæfar tegundir. Með friðlýsingu skógarins ...

Umboðsmaður Alþingis hefur sent frá sér álit í kjölfar kvörtunar Samtaka um náttúruvernd á Norðurlandi vegna tafa á úrskurði umhverfisráðuneytisins vegna stjórnsýslukæru samtakanna varðandi ákvörðun Skipulagsstofnunar um matskyldu vegna borunar rannsóknarhola og lagningar vegslóða vegna borunar kjarnholu á Þeistareykjum í Aðaldælahreppi.

Niðurstaða umboðsmanns er að afgreiðsla ráðuneytisins hafi ekki verið í samræmi við ákvæði laga um mat á umhverfisáhrifum hvað ...

Ný stofnun, Veðurstofa Íslands, tók til starfa um áramótin. Stofnunin starfar samkvæmt lögum sem voru samþykkt á Alþingi síðastliðið sumar. Viðfangsefni nýrrar stofnunar snúa að eðlisþáttum jarðarinnar, þ.e. lofti, vatni, snjó og jöklum, jörð og hafi. Helsta hlutverk stofnunarinnar er að: afla, varðveita, vinna úr upplýsingum og stunda rannsóknir og að miðla upplýsingum til og þjónusta notendur um þá ...

Löggjöf Evrópusambandsins hefur átt stóran þátt í því að flýta fyrir framförum á ýmsum sviðum umhverfismála hér á landi. Megnið af löggjöf Evrópusambandsins á sviði umhverfismála hefur verið tekið upp í íslenska löggjöf vegna EES samningsins og ýmis íslensk lög á þessu sviði eru nær einvörðungu byggð á reglugerðum og tilskipunum Evrópusambandsins. Má þar m.a. nefna lög um mengunarvarnir ...

Boðað er í þriðja sinn til verkefnasamkeppni um umhverfismál á meðal grunnskólabarna í 5. til 10. bekk. Keppnin kallast Varðliðar umhverfisins en umhverfisráðuneytið, Landvernd og Náttúruskóli Reykjavíkur standa að henni.

Markmið keppninnar er að hvetja ungt fólk til góðra verka í umhverfisvernd, vekja athygli á sýn ungs fólks á umhverfismál og kalla eftir leiðsögn yngri kynslóðarinnar á því sviði. Á ...

Umhverfisstofnun Evrópu hefur gefið út skýrslu um átta mikilvæg verkefni á vettvangi umhverfismála í Evrópu um þessar mundir (EEA Signals 2009: Eight Environmental Stories for Europe). Í skýrslunni er m.a. fjallað um framrás Spánarsnigilsins og áhrif hans á líffræðilega fjölbreytni, hugmyndir um strangari takmarkanir af hálfu Evrópusambandsins á losun loftmengandi efna og vakin er athygli á aðferðum sem beitt ...

Norrænu ríkin skiptast á um að fara með formennsku í Norrænu ráðherranefndinni og leiða starfsemina eitt ár í senn. Nú á árinu 2009 kemur það í hlut Íslendinga að gegna formennsku í nefndinni.

Yfirskrift formennskuáætlunar Íslands er „Norrænn áttaviti“. Í fjórum undirköflum er gerð grein fyrir helstu áherslumálum, en rauður þráður er að stórefla skuli rannsóknir og nýsköpun, ekki síst ...

Ósonlagið yfir SuðurskutionuUmhverfisráðuneytið vekur athygli útgerðarmanna og eigenda báta og skipa á að frá 31. desember 2008 er óheimilt að hafa og nota halón 1301 slökkvikerfi um borð í skipum og bátum. Þá vekur umhverfisráðuneytið athygli innflytjenda og notenda ósoneyðandi kælimiðla (vetnisklórflúorkolefna) að árið 2009 er síðasta árið sem heimilt verður að flytja þessi efni inn til landsins.

Ósoneyðandi slökkvimiðlar

Notendur slökkvikerfa ...

Búið er að opna heimasíðu Vatnajökulsþjóðgarðs á slóðinni vatnajokulsthjodgardur.is. Á vefnum er m.a. fjallað um markverða staði innan þjóðgarðsins, samgöngur, gististaði og starfsemi stofnunarinnar.

Þjóðgarðurinn var formlega opnaður í sumar. Markmiðið með stofnun og rekstri þjóðgarðsins er að vernda Vatnajökul og landsvæði honum tengd.

Sjá vef Vatnajökulsþjóðgarðs.

Tilskipun Evrópusambandsins um notkun og miðlun landupplýsinga (INSPIRE) tók gildi í maí á liðnu ári. Tilskipunin mun taka gildi hér á landi á grundvelli samningsins um Evrópska efnahagssvæðið og nú er unnið að því í umhverfisráðuneytinu að undirbúa nauðsynlegar lagabreytingar vegna þess. Áskilið er að tilskipunin verði innleidd í íslenska löggjöf fyrir 15. maí 2009.  

Markmið tilskipunarinnar er að samræma ...

Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra flutti í dag ræðu á 14. aðildarríkjaþingi Loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna í Poznan í Póllandi. Á þinginu var fram haldið samningaviðræðum um hertar aðgerðir í loftslagsmálum, sem hófust fyrir rúmum tveimur árum og á að ljúka með samkomulagi á 15. aðildarríkjaþinginu í Kaupmannahöfn í lok árs 2009.

Umhverfisráðherra sagði að Ísland vildi reyna að halda hlýnun andrúmsloftsins innan ...

Í tillögu til þingsályktunar um náttúruverndaráætlun 2009-2013 sem Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra hefur lagt fram á Alþingi, er lagt til að þrettán svæði verði friðlýst. Markmið áætlunarinnar er að halda áfram að byggja upp net verndarsvæða til þess að tryggja verndun tegunda, líffræðilegrar fjölbreytni, landslags og náttúru.

Samkvæmt áæltuninni verður eitt svæði friðað vegna jarðfræði, en það er Langisjór og nágrenni ...

Loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna hófst í dag í Poznan í Póllandi. Markmið fundarins er að færast nær samkomulagi um aðgerðir til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda þegar Kýótó-sáttmáli rennur sitt skeið á enda árið 2012. Stefnt er að því að ljúka samningaviðræðunum á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Kaupmannahöfn á næsta ári.

Um 8.000 fulltrúar frá 190 ríkjum sækja fundinn í ...

Samkvæmt nýrri spá Umhverfisstofnunar verður losun gróðurhúsalofttegunda hér á landi innan marka Kýótó-bókunarinnar, að því gefnu að losun flúorkolefna (PFC) frá áliðnaði haldist lág.

Heildarlosun gróðurhúsalofttegunda hér á landi jókst úr 3,4 milljónum tonna árið 1990 – sem er viðmiðunarár Kýótó-bókunarinnar – í 4,3 milljónir árið 2006, eða um 24%. Aukning losunar milli áranna 2005 og 2006 var 14%, sem ...

Umhverfisráðuneytið boðar til opins fundar um viðskiptakerfi Evrópusambandsins með losunarheimildir gróðurhúsalofttegunda og fyrirhugaðar breytingar á því. Fundurinn verður mánudaginn 3. nóvember nk. kl. 14:00-16:00 í Sal B á Hótel Sögu.

Hér á landi er nú unnið að innleiðingu tilskipunar Evrópusambandsins um viðskiptakerfið. Flug mun falla undir gildissvið tilskipunarinnar frá og með 1. janúar 2012 og gert er ráð ...

Stjórn Vatnajökulsþjóðgarðs hefur ákveðið að gestastofa garðsins á Skriðuklaustri verði byggð samkvæmt vistvænum stöðlum. Talið er að gestastofan verði fyrsta húsið hér á landi sem fengi slíka vottun samkvæmt viðurkenndum stöðlum.

Notast verður við breska staðalinn BREEAM, sem tekur til hönnunar, byggingar og reksturs hússins. Staðallinn byggir á evrópskum byggingarreglum. Talið er að aukalegur kostnaður við að byggja samkvæmt staðlinum ...

Úthlutunarnefnd losunarheimilda lauk í dag fyrstu árlegu endurskoðun áætlunar um úthlutun heimilda til að losa gróðurhúsalofttegundir.

Fyrirtækin sem fá úthlutað losunarheimildum að þessu sinni eru: RioTinto Alcan í Straumsvík (152.255 losunarheimildir), Norðurál í Helguvík (539.000 losunarheimildir) og Alcoa Fjarðaál á Reyðarfirði (29.200 losunarheimildir). Samtals gera þetta 720.455 losunarheimildir.

Aðeins er úthlutað til atvinnurekstrar sem hyggur á ...

Umhverfisráðherra hefur ákveðið að fyrirkomulag rjúpnaveiða í haust verði með óbreyttu sniði frá fyrra ári og standi frá 1. til 30. nóvember. Veiðar verða heimilaðar fimmtudaga, föstudaga, laugardaga og sunnudaga. Mælst er til þess að hver veiðimaður skjóti ekki fleiri en tíu fugla. Sölubann á rjúpum og rjúpnaafurðum verður áfram í gildi. Ákvörðunin byggir á mati Náttúrufræðistofnunar Íslands á veiðiþoli ...

8. stefnumót umhverfisráðuneytisins og Stofnunar Sæmundar fróða.

Erindi:

  • „Umfang utanvegaaksturs og aðgerðir stjórnvalda“ - Ólafur Arnar Jónsson hjá Umhverfisstofnun.
  • „Hvernig tökum við á utanvegaakstri?“ - Þorsteinn Víglundsson, umhverfisnefnd Ferðaklúbbsins 4x4.

Umræður að erindum loknum.

Fundurinn verður í fundarsal Þjóðminjasafnsins miðvikudaginn 24. september 2008 kl. 12:00-13:30. Stefnumótin eru opnir fundir um umhverfismál sem efst eru á baugi hverju sinni. Allir velkomnir.

Ríkisstjórn Íslands hefur að tillögu Þórunnar Sveinbjarnardóttur umhverfisráðherra samþykkt stefnumörkun Íslands um framkvæmd Samningsins um líffræðilega fjölbreytni. Með gerð stefnumörkunarinnar er unnið að því að innleiða markmið samningsins í íslenska stjórnsýslu og vera heildarrammi um stefnumótun stjórnvalda sem lþtur að verndun og sjálfbærri nýtingu líffræðilegrar fjölbreytni landsins.

Í stefnumörkuninni er lögð áhersla á 10 meginmarkmið og 27 aðgerðir í þeim ...

Norrænni ráðherraráðstefnu um skógarmál lauk í dag með undirritun Selfossyfirlýsingarinnar um sjálfbæra skógrækt. Ráðstefnan fór fram á Hótel Selfossi og yfirskrift hennar var ,,Samkeppnishæf skógrækt á Norðurlöndum – Hvernig tökum við á loftslagsbreytingum og kröfu um vatnsgæði?“.
Þetta er í annað sinn sem norrænir skógarmálaráðherrar efna til fundar til að ræða skógarmál. Gestgjafar ráðstefnunnar voru Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra og Einar K ...
Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra hefur boðað til opins fundar í Borgarhólsskóla á Húsavík annað kvöld klukkan 20:00. Kristján Möller samgönguráðherra og oddviti Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi mun einnig ávarpa fundinn. Þau munu ræða málefni kjördæmisins, þar á meðal nýlegan úrskurð umhverfisráherra um sameiginlegt mat á umhverfisáhrifum.
Í dag boðaði umhverfisráðherra Þórunn Sveinbjarnardóttir til blaðamannafundar til að kynna niðurstöður vísindanefndar um loftslagsbreytingar en nefndin hefur skilað ráðherra skýrslu um áhrif hnattrænna loftslagsbreytinga á Íslandi. Megin niðurstaða vísindanefndarinnar er að áhrifa loftslagsbreytinga gæti þegar í náttúru landsins og að fyrirsjáanlegar loftslagsbreytingar munu einnig hafa veruleg áhrif á náttúrufar hér á landi.
Sjá skýrsluna í heild sinni.
Sjá kynningarmyndband ...

Umhverfisráðherra hefur úrskurðað að samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum beri að meta sameiginlega umhverfisáhrif álvers á Bakka við Húsavík, Þeistareykjavirkunar, Kröfluvirkjunar II og háspennulínu frá Kröflu og Þeistareykjum til Húsavíkur.

Hinn 31. júlí 2008, er kveðinn upp í umhverfisráðuneytinu svohljóðandi úrskurður:

Ráðuneytinu barst þann 18. mars 2008 kæra Landverndar vegna ákvörðunar Skipulagsstofnunar frá 13. febrúar 2008 um að ekki ...

Umhverfisráðherra Þórunn Sveinbjarnardóttir hefur sett reglugerð nr. 750/2008 um skráningu, mat, leyfisveitingu og takmarkanir á efnum. Reglugerðin er sett til að innleiða nýja efnavörulöggjöf Evrópusambandsins, svokallaða REACH reglugerð (Registration, Evaluation, Authorisation and Restriction of Chemicals, REACH). Hún leysir af hólmi í áföngum u.þ.b. tuttugu gildandi reglugerðir er varða framleiðslu, markaðssetningu, notkun og takmarkanir ...

SurtseyHeimsminjanefnd UNESCO samþykkti á fundi sínum 7. júlí í Québec í Kanada að setja Surtsey á heimsminjalistann á grundvelli vöktunar og rannsókna á þróun eyjunnar. Samþykktin felur í sér viðurkenningu til íslenskra stjórnvalda á friðun Surtseyjar 1965 og varðveislu náttúrulegs ástands hennar. Í mati á umsókn Íslands var sérstaklega tekið fram mikilvægi rannsókna og vöktunar á landnámi dýra og plantna ...

Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra tók í dag fyrstu skóflustunguna að nýju húsi Náttúrufræðistofnunar Íslands í Urriðaholti í Garðabæ.

Hús Náttúrufræðistofnunar verður 3.500 fermetrar að stærð og mun standa við Jónasartorg, vestast á Urriðaholti. Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkti að gefa torginu þetta nafn til að heiðra minningu Jónasar Hallgrímssonar, sem oft er kallaður fyrsti íslenski náttúrufræðingurinn. Náttúrufræðistofnun flytur í hin nýju húsakynni ...

Vegna misvísandi frétta um ferðalög umhverfisráðherra í tengslum við björgun hvítabjarnarins á Skaga vill umhverfisráðuneytið koma eftirfarandi á framfæri:

Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra fór til útlanda í einkaerindum um liðna helgi. Á mánudag hafði ráðuneytisstjóri umhverfisráðuneytisins samband við umhverfisráðherra og tilkynnti honum um landtöku hvítabjarnar í Skagafirði. Umhverfisráðherra var í stöðugu sambandi við ráðuneytið og Umhverfisstofnun í kjölfarið og hafði meðal ...
  • Starfshópur hefur verið skipaður til að vinna að viðbragðsáætlun.
  • Landhelgisgæslan hefur eftirlit með hvítabjörnum í samstarfi við Umhverfisstofnun.
  • Unnið að því að taka saman kostnað sem féll til vegna tilrauna við að bjarga hvítabirninum.

Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra átti fund með Carsten Gröndal, yfirdýralækni dýragarðsins í Kaupmannahöfn, í umhverfisráðuneytinu í dag. Á fundinum var rætt um aðgerðir Umhverfisstofnunar við að bjarga ...

Umhverfisráðuneytið og Umhverfisstofnun vilja vekja athygli fjölmiðla á tímaáætlun dagsins við björgun hvítabjarnarins á Skaga.

- Carsten Gröndal kemur frá Kaupmannahöfn og lendir á Akureyrarflugvelli um kl. 14:30. Þaðan mun Landhelgisgæslan fljúga með hann að Hrauni á Skaga.

- Hjalti Guðmundsson og Bjarni Pálsson frá Umhverfisstofnun eru á leið til Akureyrar og verða þar um hádegi. Þaðan verður ekið með búr ...

Vatnajökulsþjóðgarður mun við stofnun ná yfir um 12.000 ferkílómetra svæði eða um 12 prósent af flatarmáli landsins. Vatnajökulsþjóðgarður verður stærsti þjóðgarður Evrópu. Landssvæði þjóðgarðsins er einstakt á heimsvísu. Þar er að finna síkvikt samspil jökla og eldvirkni, jökulhlaupa, eldgosa og jarðhita. Jarðfræðileg fjölbreytni er óvenjulega mikil og innan væntanlegra þjóðgarðsmarka er að finna afar sjaldgæfar landslagsheildir, m.a ósnortin ...

Vatnajökulsþjóðgarður var stofnaður í dag. Ræða umhverfisráðherra við stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs var svohljóðandi:

Ágætu hátíðargestir.

Það er mér mikill heiður sem umhverfisráðherra að vera viðstödd þennan merka viðburð í sögu okkar Íslendinga. Í dag stofnum við Vatnajökulsþjóðgarð, stærsta þjóðgarð í Evrópu og þjóðgarð sem er einstakur á heimsvísu. Með stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs eru Íslendingar að ráðast í stærsta náttúruverndarverkefni frá upphafi. Vatnajökulsþjóðgarður ...

Ráðherrar, sveitarstjórnarmenn, góðir gestir.

Ég bþð ykkur öll velkomin til þessa merkilega viðburðar í sögu íslensku þjóðarinnar: stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs, stærsta þjóðgarðs í Evrópu. Eins og ykkur er væntanlega kunnugt er stofnhátíðin haldin samtímis á fjórum rekstrarsvæðum garðsins – í Gljúfrastofu í Jökulsárgljúfrum, á Skriðuklaustri í Fljótsdal, í Kirkjuhvoli á Kirkjubæjarklaustri og hér í Skaftafellsstofu. Dagskráin verður í fyrstu sameiginleg, og verður ...

Í dag er haldið upp á dag umhverfisins hjá Sameinuðu þjóðunum, sjá vef Sameinuðu þjóðanna um daginn.

Að því tilefni er vel við hæfi að benda á að umhverfisráðuneytið hefur gefið út fræðslubækling um loftslagsmál.

Í bæklingnum er sagt frá orsökum og afleiðingum loftslagsbreytinga. Þá er einnig greint frá aðgerðum sem grípa verður til svo koma megi í veg fyrir ...

Í morgun bárust þær fréttir til umhverfisráðuneytisins og Umhverfisstofnunar að sést hefði til hvítabjarnar við Þverárfjallsveg, milli Sauðárkróks og Skagastrandar. Umhverfisráðherra kom þeim skilaboðum strax til lögreglu á staðnum að leitað yrði allra leiða til að fanga björninn og flytja hann á stað þar sem honum yrði óhætt og ekki stafaði hætta af honum.

Í kjölfarið leitaði starfsfólk umhverfisráðuneytisins og ...

Umhverfisráðuneytið hefur gefið út fræðslubækling um loftslagsmál. Í bæklingnum er sagt frá orsökum og afleiðingum loftslagsbreytinga. Þá er einnig greint frá aðgerðum sem grípa verður til svo koma megi í veg fyrir hamfarir sem kunna að verða af völdum loftslagsbreytinga.

Hér má nálgast bæklinginn sem pdf-skjal. Þeir sem vilja fá send eintök af bæklingnum geta sent tölvupóst þess efnis á ...

Fimmtudaginn 22. maí nk. kl. 8:00 til 10:00 heldur Umhverfisráðuneytið og Landgræðsla ríkisins morgunverðarfund í tilefni Dags líffræðilegrar fjölbreytni en fundurinn verður haldinn á Grand Hóteli í Reykjavík,

Dagur líffræðilegrar fjölbreytni er í ár tileinkaður landbúnaði. Fjallað verður um mikilvægi líffræðilegrar fjölbreytni fyrir landbúnað, næringu og matvælaöryggi. Einnig verður ný stefnumörkun Íslands um líffræðilega fjölbreytni kynnt.

Dagskrá:

  • Ávarp ...

Sólarræsting hlaut Kuðunginn, umhverfisviðurkenningu umhverfisráðuneytisins, við athöfn í Perlunni í dag, á Degi umhverfisins. Við sama tækifæri voru nemendur úr Lþsuhólsskóla og Fossvogsskóla útnefndir varðliðar umhverfisins.

Kuðungurinn
Sólarræsting hlaut Kuðunginn, umhverfisviðurkenningu umhverfisráðuneytisins, við athöfn í Perlunni í dag. Kuðungurinn er viðurkenning á því framlagi sem viðkomandi fyrirtæki hefur veitt til umhverfismála og öðrum fyrirtækjum hvatning til að leggja enn meira ...

Á morgun, á Degi umhverfisins, verða kynntar vinningstillögur úr arkitektasamkeppni sem efnt var til vegna byggingar gestastofa í Vatnajökulsþjóðgarði. Sýningin er haldin á Háskólatorgi Háskóla Íslands og hefst klukkan 16:00 en eftir verðlaunaafhendingu verða tillögurnar sem bárust til sýningar fram til 10. maí.

Gestastofur í Vatnajökulsþjóðgarði verða alls sex, þar af hafa tvær þegar verið byggðar í Skaftafelli og ...

Umhverfisráðherra óskar eftir nýrri losunarspá og fundi með álfyrirtækjum

Heildarlosun gróðurhúsalofttegunda (ghl) jókst úr 3.710 þús. tonnum árið 2005 í 4.235 þús. tonn árið 2006. Það er aukning um 525.000 tonn, eða 14,2%. Þetta kemur fram í nýjum tölum sem Umhverfisstofnun hefur tekið saman fyrir skrifstofu Loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna í Bonn. Þetta er mun meiri aukning ...

Markmiðið með sýningunni er að skapa vettvang þar sem almenningur fær tækifæri til þess að kynna sér vistvænar vörur og þjónustu sem í boði eru. Með þessu er vonast til að áhugi neytenda á að skipta við vistvæn fyrirtæki og að láta sig umhverfissjónarmið varða í innkaupum og daglegu lífi aukist. Með því að huga að umhverfissjónarmiðum í innkaupum og ...

Sjöunda stefnumót umhverfisráðuneytisins og stofnunar Sæmundar Fróða verður haldið föstudaginn 18. apríl kl 12:00 í fundarsal Þjóðminjasafnsins og stendur til 13:00. Stefnumótin eru opnir fundir um ýmis umhverfismál sem efst eru á baugi hverju sinni.

Fjallað verður um vistvænar byggingar og áhrif þeirra á byggingariðnað hér á landi.

Björn Marteinsson, dósent við Háskóla Íslands og verkfræðingur hjá Nýsköpunarmiðstöð ...

Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra boðaði til blaðamannafundar í dag kl. 16:00 þar sem tilkynnt yrði um úrskurða ráðuneytisins varðandi kæru sem Landvernd lagði fram v. álits Skipulagsstofnunar á umhverfismati v. álvers í Helguvík. Því er skemmst frá að segja að ráðherra úrskurðaði á þann veg að kæru Landverndar er vísað frá. Það þýðir með öðrum orðum að ekki verði gerð ...

Umhverfisráðuneytið, Úrvinnslusjóður og SORPA standa fyrir sýningunni Vistvænn lífsstíll í Perlunni 25. og 26. apríl næstkomandi. Þar verður fyrirtækjum, stofnunum og félögum gefinn kostur á að kynna vörur, starf og þjónustu er stuðla að vistvænum lífsstíl almennings. Sýningin á að vekja athygli fólks á þeim fjölmörgu vistvænu vörum og þeirri þjónustu sem nú þegar er hægt að nálgast til að ...
Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra lýsir furðu sinni á ákvörðun sveitarstjórna Reykjanesbæjar og Garðs um að veita álveri Norðuráls sf. í Helguvík framkvæmda- og byggingarleyfi. Í ljósi þess að málið er enn til umfjöllunar í umhverfisráðuneytinu og vegna þeirra álitaefna sem Skipulagsstofnun vakti athygli á í áliti sínu um mat á umverfisáhrifum verksmiðjunnar, þá telur umhverfisráðherra að efast megi um réttmæti slíkrar ...

Úthlutunarnefnd á vegum umhverfisráðuneytisins óskar eftir tilnefningum um fyrirtæki, sem vegna verka sinna og athafna á síðasta ári, er þess verðugt að hljóta umhverfisviðurkenningu umhverfisráðuneytisins, Kuðunginn fyrir árið 2007. Óskað er eftir því að stutt greinargerð fylgi með tilnefningunum.

Tillögur skulu berast umhverfisráðuneytinu eigi síðar en föstudaginn 4. apríl næstkomandi, merktar ,,Kuðungurinn 2007", á póstfangið postur@umhverfisraduneyti.is eða með ...

Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra og Rejoice Mabudafhasi, aðstoðarumhverfisráðherra Suður-Afríku, hafa sameiginlega tekið við formennsku í Samtökum kvenleiðtoga í umhverfismálum. Á fundi samtakanna í Mónakó í gær var m.a. rætt um hvernig fjármögnun aðgerða í loftslagsmálum gæti komið konum í þróunarlöndunum til góða, en ákvarðanir um orkugjafa fyrir heimili hafa mikil áhrif á líf og heilsu kvenna, sem sjá um flest ...

Ísland er eitt af fjórum ríkjum sem taka þátt í átaki á vegum Umhverfisstofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNEP) um að stefna að kolefnishlutleysi. Átakinu var hleypt af stokkunum á ráðherrafundi UNEP í Mónakó í dag. Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra sagði við það tækifæri að þótt loftslagsbreytingar væru alvarleg ógn væri mikilvægt að ganga bjartsýn til verks við að finna lausn á vandanum ...

Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra mælir fyrir þremur frumvörpum til laga á Alþingi í dag; frumvarpi til laga um mannvirki, frumvarpi til skipulagslaga og frumvarpi um breytingu á lögum um brunavarnir. Í frumvarpi til skipulagslaga er m.a. lögð áhersla á að auka þátttöku almennings að gerð skipulagsáætlana og að ríkisvaldið geti lagt fram heildstæða sýn í skipulagsmálum sem varða almannahagsmuni. Í ...

Umhverfismál skipa veigamikinn sess í skýrslu um Ísland og Evrópusambandið sem Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra flutti á Alþingi þ. 31. janúar sl. Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra sagði við það tilefni að umhverfismál væru verulega þýðingarmikil í EES samstarfinu. Í skýrslu utanríkisráðherra segir að vægi umhverfismála hafi aukist innan Evrópusambandsins á undanförnum árum. ESB hafi myndi jafnan mikilvæga blokk í alþóðasamstarfi á ...
Umhverfisráðherra hefur ákveðið að skipa Kristínu Lindu Árnadóttur sem forstjóra Umhverfisstofnunar til næstu fimm ára. Kristín hefur starfað sem lögfræðingur hjá Umhverfisstofnun frá 1. september 2007 og gegnir nú starfi sviðsstjóra lögfræði- og stjórnsýslusviðs stofnunarinnar og er staðgengill forstjóra.

Kristín Linda lauk embættisprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 1998, meistaranámi í umhverfisfræðum frá Háskólanum í Lundi árið 2002 og ...

6. stefnumót Umhverfisráðuneytisins og Stofnunar Ara fróða.

Umferð skipa með ströndum Íslands er í örum vexti, ekki síst siglingar olíuskipa. Fjallað verður um spár um aukna umferð, hvaða vandamál geta fylgt og viðbrögð við þeim.

Erindi:

  • Kristján Geirsson, fagstjóri á stjórnsýslusviði Umhverfisstofnunar.
  • Ásgrímur L. Ásgrímsson, yfirmaður vaktstöðvar siglinga hjá Landhelgisgæslu Íslands.

Fundurinn hefst kl. 12:00, fimmtudaginn 31. janúar, í ...

Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra hefur mælt fyrir frumvarpi um breytingu á lögum um meðhöndlun úrgangs. Megin markmið frumvarpsins er að draga úr magni raftækjaúrgangs, auka endurnýtingu og endurnotkun á slíkum úrgangi og vinna að aukinni umhverfisvitund allra sem höndla með vöruna.

Frumvarpið byggir á svokallaðri framleiðendaábyrgð og samkvæmt henni eru settar skyldur á framleiðendur og innflytjendur til að fjármagna, safna, meðhöndla ...

Félagasamtök á sviði umhverfisverndar fá 12 milljónir króna í rekstrar- og verkefnastyrki á þessu ári frá umhverfisráðuneytinu, en það er tveimur milljónum króna meira en á liðnu ári. Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra tilkynnti þetta á samráðsfundi umhverfisráðuneytisins og félagasamtaka í dag. Samráðsfundir sem þessir fara fram með reglulegu millibili og þar er fjallað um þau mál sem fulltrúar félagasamtaka vilja bera ...

Umhverfisráðherra hefur skipað nefnd sem á að gera tillögu til ráðherra um aðgerðir til að minnka úrgang og auka endurvinnslu á dagblöðum, tímaritum og öðrum óumbeðnum prentpappír. Nefndin á að kanna mögulegar lausnir, þar á meðal framleiðendaábyrgð.

Í skipunarbréfi nefndarinnar segir að mikilvægt sé að auka ábyrgð þeirra sem framleiða og flytja inn blöð, tímarit, bækur og auglýsingabæklinga, þannig að ...
Nú um áramótin fluttust Skógrækt ríkisins, Landgræðsla ríkisins og Vatnamælingar Orkustofnunar til umhverfisráðuneytins í samræmi við breytingar sem gerðar voru á verkefnaskiptingu innan stjórnarráðsins með breytingu á lögum frá Alþingi skömmu fyrir jól. Frá sama tíma fluttist matvælasvið Umhverfisstofnunar til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins.

Með þessum breytingum verður umtalsverð aukning á umsvifum umhverfisráðuneytisins. Þannig fjölgar stofnunum ráðuneytisins um þrjár. Þær voru ...

Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra hefur beint þeim tilmælum til umhverfisráðherra Norðurlandanna og fleiri ríkja að ráðherraráð Evrópusambandsins taki tillit til sérstöðu Íslands þegar það fjallar um tillögur um að fella flugsamgöngur undir viðskiptakerfi Evrópusambandsins með losunarheimildir á gróðurhúsalofttegundum. Í bréfi sem umhverfisráðherra hefur sent umhverfisráðherrum ríkja innan Evrópska efnahagssvæðisins segir að málið varði Íslendinga mjög miklu vegna landfræðilegrar legu landsins.

Í ...
Samkomulag náðist á Balí eftir næturlanga fundi um að hefja víðtækar samningaviðræður um aðgerðir í loftslagsmálum, sem taki mið af niðurstöðum Vísindanefndar S.þ. um þörf á samdrætti í losun gróðurhúsalofttegunda.

,,Þetta er sögulegt samkomulag,” sagði Þórunn Sveinbjarnardóttir, umhverfisráðherra. ,,Öll ríki heims taka þátt í nýjum viðræðum , líka stóru þróunarríkin sem eru að auka losun sína mikið og Bandaríkin, sem ...

Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra flutti í dag ávarp á ráðherrafundi Loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna sem fram fer á Bali í Indónesíu. Í ávarpinu fjallaði umhverfisráðherra m.a. um áherslu ríkisstjórnar Íslands á að iðnríkin minnki losun sína um 25-40% fyrir árið 2020 svo að koma megi í veg fyrir að hlýnun lofthjúps jarðar fari yfir 2°C.

Áherslur ríkisstjórnarinnar vegna samningaviðræðna á ...

Óskað eftir athugasemdum við drög að stefnumörkun um líffræðilega fjölbreytni

Almenningi, félagasamtökum og stofnunum gefst tækifæri til að senda inn athugasemdir við drög að stefnumörkun um líffræðilega fjölbreytni, sem kynnt voru á Umhverfisþingi 12.-13. október sl. Athugasemdirnar má senda í tölvupósti á netfangið umhverfisthing@umhverfisraduneyti.is fyrir 15. desember 2007.

Sjá drög að stefnumörkun um líffræðilega fjölbreytni.

Myndin er ...

Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra afhenti forsvarsmönnum Alnæmisbarna og Alnæmissamtakanna styrki í dag, hvorn að andvirði 200.000 kr. Umhverfisráðherra ákvað að senda ekki út jólakort með kveðjum ráðherra og starfsfólks en verja andvirði kortanna þess í stað til góðgerðamála.

Félagið Alnæmisbörn var stofnað árið 2004 til að styðja starf Candle Light Foundation í Kampala í Úganda. Candle Light Foundation var stofnað ...

Fimmta stefnumót Umhverfisráðuneytisins og Stofnunar Sæmundar fróða

Fjallað verður um áhættuna sem fylgir því þegar erlendar plöntur eða dýr eru flutt inn til landsins.

Erindi:

  • Snorri Baldursson, Náttúrufræðistofnun Íslands
  • Þröstur Eysteinsson, Skógrægt ríkisins
Fundurinn hefst kl. 12:00, föstudaginn 7. desembr í fundarsal Þjóðminjasafnsins og stendur til 13:00. Stefnumótin eru stuttir, snarpir og skemmtilegir fundir sem eru öllum opnir.

Íslensk stjórnvöld leggja höfuðáherslu á að samstaða náist á fundi aðildarríkja loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna í Balí í Indónesíu um gerð ný s samkomulags sem feli í sér skuldbindingar fyrir öll helstu losunarríki heims. Þetta kemur fram í minnisblaði sem ríkisstjórnin samþykkti á fundi í dag að tillögu ráðherrahóps um loftslagsmál sem í sitja Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra, Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra, Árni ...

Umhverfisráðuneytið hefur að tillögu Umhverfisstofnunar ákveðið að heimilt verði að veiða allt að 1.333 hreindýr á veiðitímabili komandi árs sem stendur frá 1. ágúst til 15. september. Að mati Náttúrustofu Austurlands mun veiði á þessum fjölda hreindýra ekki hafa áhrif á stærð hreindýrastofnsins. Náttúrustofan annast vöktun á stærð stofnsins. Tillagan hefur einnig hlotið umfjöllun hreindýraráðs.

Heimildin er veitt með ...

Þrettánda Loftslagsþing aðildarríkja Rammasamnings Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar hófst á Balí í Indónesíu í dag og stendur til 14. desember. Fulltrúar 180 ríkja sitja fundinn ásamt fulltrúum alþjóðastofnana, félagasamtaka og fjölmiðla. Hægt er að fylgjast með vefútsendingum frá þinginu og nálgast upplýsingar um gang þess á heimasíðu rammasamningsins á slóðinni: www.unfccc.int. Hægt er að ná tali af Huga ...
Jón Gunnar OttóssonJón Gunnar Ottósson, forstjóri Náttúrufræðistofnunar Íslands, var í dag kosinn forseti Bernarsamningsins á aðildarríkjafundi samningsins í Strasborg í Frakklandi. Bernarsamningurinn fjallar um verndun villtra plantna, dýra og lífsvæða í Evrópu og er einn af grundvallar samningum Evrópu á sviði umhverfisverndar. Tæplega fimmtíu ríki Evrópu og Norður-Afríku eru aðilar að samningnum. Forseti Bernarsamningsins stýrir starfsemi hans og aðildarríkjafundum. Jón Gunnar var ...
Umhverfisráðuneytið efndi til upplýsingafunda um loftslagsmál fyrir alþingismenn og frétta- og blaðamenn í dag. Efnt var til fundanna vegna þess hversu mikið er um að vera á þessu sviði um þessar mundir. Í næstu viku hefst loftslagsráðstefna í Balí þar sem samningar hefjast um hvað taki við þegar Kyoto-bókunin rennur út og fyrr í þessum mánuði gaf Vísindanefnd Sameinuðu þjóðanna ...

Vísindanefnd Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar (IPCC) hefur samþykkt samantekt á 4. yfirlitsskýrslu sinni um loftslagsbreytingar. Viku löngum fundi nefndarinnar lauk í Valencia á Spáni í dag. Samantektin er ætluð stefnumótendum og í henni eru dregnar saman helstu upplýsingar um stöðu vísindalegrar þekkingar á loftslagsbreytingum – orsökum þeirra, umfangi og afleiðingum, en einnig varðandi aðgerðir til að draga úr loftslagsbreytingum og aðlagast ...

Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra hefur ákveðið að skipa starfshóp til að skoða möguleika á að koma á framleiðendaábyrgð á pentpappír, t.d. pappír sem er notaður í dagblöð, tímarit, bæklinga og bækur.

Inn á söfnunarstöðvar sveitarfélaga, í grenndargáma og með heimahirðu almenns heimilisúrgangs kemur verulega mikið af óumbeðnum pósti, s.s. dagblöðum og auglýsingarbæklingum. Magn fjölpósts hefur aukist um 76% frá ...

Fréttatilkynning frá Umhverfisráðuneyti:

Umhverfisráðherrar Norðurlanda samþykktu á fundi sínum í Ósló í dag yfirlýsingu, þar sem lýst er yfir áhyggjum vegna hraðrar bráðnunar hafíss á Norðurslóðum. Útbreiðsla hafíss á norðurheimskautssvæðinu hefur aldrei mælst minni en í september sl., en þá var hún 23% minni en árið 2005, þegar fyrra met var sett. Bráðnun hafíssins á þessu ári er mun meiri ...

Umhverfisráðherra hefur sent frá sér þessa tilkynningu til skráðra veiðimanna:

Ágæti veiðimaður!

Í haust verða veiðar á rjúpu eingöngu leyfðar í nóvembermánuði, fjóra daga vikunnar. Þetta er gert í ljósi niðurstöðu rjúpnatalningar Náttúrufræðistofnunar Íslands sem sýndi að fækkað hefur í varpstofni rjúpunnar um 70.000 fugla frá því í fyrra. Við aðstæður sem þessar ber stjórnvöldum að gæta ítrustu varfærni ...

Umhverfisþing verður haldið að Hótel Nordica dagana 13.-14. október nk. Dagskrá Umhverfisþings 2007 er sem hér segir:

Föstudagur 12. okt.

09.00 - 10.40 Þingsetning

09.00 - 09.25 Ávarp: Þórunn Sveinbjarnardóttir, umhverfisráðherra

09.25 - 10.00 Ávarp: Achim Steiner, framkvæmdastjóri UNEP

10.00 - 10.10 Ávarp: Kristín Helga Gunnarsdóttir, rithöfundur, fulltrúi umhverfisverndarsamtaka

10.10 - 10.20 Ávarp: Þórður ...

Umhverfisráðherra hefur ákveðið að rjúpnaveiðitímabilið í ár standi frá 1. til 30. nóvember. Mælt er með því að veiddir verði að hámarki 38.000 fuglar. Áfram mun ríkja sölubann á rjúpum og rjúpnaafurðum. Ákvörðunin byggir á mati Náttúrufræðistofnunar Íslands á veiðiþoli rjúpnastofnsins og mati Umhverfisstofnunar á heildarveiði árið 2006.

Rjúpum fækkar nú annað árið í röð frá síðasta uppsveifluskeiði, en ...

Fulltrúi Alþjóða náttúruverndarsamtakanna metur tilnefningu Surtseyjar og hittir umhverfisráðherra

Chris Wood, fulltrúi Alþjóða náttúruverndarsamtakanna (IUCN), er nú staddur hér á landi vegna tilnefningar Surtseyjar á Heimsminjaskrá UNESCO. IUCN gegna því hlutverki að leggja mat á umsóknir og verndun náttúruminja sem tilnefndar eru á heimsminjaskrána. Chris Wood fór til Surtseyjar í gær í fylgd fulltrúa umhverfisráðuneytisins, Umhverfisstofnunar, Náttúrufræðistofnunar Íslands og bæjarstjórnar ...

Anna Kristín Ólafsdóttir hefur verið ráðin aðstoðarmaður ný s umhverfisráðherra Þórunnar Sveinbjarnardóttur. Anna Kristín sinnti starfi forstöðumanns háskólaskrifstofu Listaháskóla Íslands frá 2004. Hún lauk BA prófi í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands 1995 og meistaraprófi í stjórnsýslu og stefnumótun (MPA) frá Háskólanum í Wisconsin í Bandaríkjunum vorið 2000. Hún starfaði sem fulltrúi í sendiráði Bandaríkjanna á Íslandi 1990 - 96, sem sérfræðingur ...

Í gær var 5 grunnskólum veitt viðurkenningin „Varðliðar umhverfisins“ á degi umhverfisins sem haldin var hátíðlegur í gær. Þeir grunnskólar sem hlutu viðurkenninguna voru Grunnskóli Tálknafjarðar fyrir umhverfissáttmála, Foldaskóli fyrir ljósmyndaverkefni sem fjallaði um mengun og sorphirðu, bekkur 53 í Hólabrekkuskóla fyrir verkefnið ruslpóstur, 9. bekkur Álftamýraskóla fyrir verkefnið „Við eigum aðeins eina jörð“ og Lýsuhólsskóli fyrir stikun gönguleiða um ...

Ríkisstjórnin samþykkt í vikubyrjun lagafrumvarp, sem ætlað er að hvetja til aukinnar notkunar á vistvænum ökutækjum. Þar er m.a. gert ráð fyrir að vörugjöld af metanbílum verði felld niður tímabundið (til ársloka 2008). Þá samþykkti ríkisstjórnin að mælast til þess við ríkisstofnanir að þær kaupi vistvæna bíla þegar þær endurnýja bílakost sinn. Markmiðið er að í lok árs 2008 ...

Umhverfisráðuneytið, Landvernd og Náttúruskóli Reykjavíkur boða til verkefnasamkeppni grunnskólabarna.
Keppnin er ætluð ungu fólki í 5. til 10. bekk. Keppnin á að hvetja ungt fólk til góðra verka í umhverfisvernd, vekja athygli á sýn ungs fólks á umhverfismál og kalla eftir leiðsögn yngri kynslóðarinnar á því sviði. Mikil vakning er nú að eiga sér stað varðandi nátturukennslu og útikennslu en ...

Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra hefur í hyggju að setja reglugerð um merkingu erfðabreyttra matvæla. Markmið hennar er að tryggja neytendum réttar og greinargóðar upplýsingar um þau matvæli sem á boðstólnum eru. Þannig verður komið til móts við vilja almennings um að matvæli sem innihalda erfðabreytt matvæli séu merkt auk þess sem matvælalög mæla fyrir um að neytendur fái upplýsingar um innihald ...

Í fréttatilkynningu frá Berg Sigurðssyni framkvæmdastjóra Landverndar kemur fram að samtökin hafa sent umhverfisráðherra áskorun þar sem ráðherra er hvattur til þess að taka kæru Guðrúnar S. Gísladóttur til efnislegrar meðhöndlunar. Umhverfisráðherra er í sjálfsvald sett að túlka ákvæði stjórnsýslulaga um kæruaðild þröngt eða hvort rýmri túlkun, í anda Árósarsamningsins, eigi betur við í málinu.

Áður en lögum um mat ...
Rjúpnaveiðitímabilið hefur verið ákveðið af umhverfisráðherra og mun það vera, eins og í fyrra á tímabilinu 15.10. - 30.11. Rjúpnaveiðimenn virðast almennt vera ánægðir með ákvörðun ráðherra enda skotleyfi gefið út á 45 þús. fugla í ár. Reiknað er með að 10-15 rjúpur komi í hlut hvers veiðimanns, verði reglum framfylgt. Veiðbann er frá mánudögum til miðvikudaga og því ...
Jónína Bjartmarz, hinn ný ji umhverfisráðherra og Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra, lýstu því bæði yfir í dag að þau vilji stækka friðland Þjórsárvera og hætta við gerð Norðlingaölduveitu. Ástæðan sem Guðni nefnir er sú að mikilvægt sé að skapa samstöðu um náttúruna og að nauðsynlegt sé fyrir Framsóknarflokkinn að endurskoða stefnuna í stóriðju- og umhverfismálum.
Ummæli ráðherranna fylgja í kjölfar úrskurðar ...

Sigríður Anna Þórðardóttir gekk frá ýmsum mikilvægum málum í gær, en eins og kunnugt er tekur ný r umhverfisráðherra Jónína Bjartmarz við starfi umhverfisráðherra í dag. Meðal síðustu embættisverka Sigríðar Önnu var að friða blesgæsina og kúluskít, sérstakt afbrigði græný örungsins vatnaskúfs. Sjá frétt á vef umhverfisráðuneytisins. Einnig ákvað ráðherra í gær að styrkja verkefnið Náttúran.is/Nature.is enda ...

Mánudaginn 24. apríl verður haldið málþing á vegum Umhverfisráðuneytisins um svifryksmengunina í Reykjavík. Eins og kunnugt er hefur aukin svifryksmengun í höfuðborginni verið mikið í umræðunni að undanförnu enda hefur magn þess iðulega mælst yfir þeim mörkum sem talist geta heilsusamleg. Málþingið er haldið í Norræna húsinu og hefst kl. 13:15 og stendur til kl. 16:45.

Dagskrá: Setning ...

Á Umhverfsiþingi dagana 18.-19. nóvember 2005 voru kynntar tillögur Umhverfisráðuneytisins um „Stefnumörkun um sjálfbæra þróun á Íslandi til ársins 2020“. Þar var einnig tilkynnt að íbúar landsins hefðu tækifæri á að kynna sér stefnumörkunina og gera tillögur um úrbætur þar að lútandi. Grasgudda vill benda á að frestur til að skila inn athugasemdum rennur út þann 15. janúar svo ...

Dagana 18. og 19. nóvember var haldið Umhverfisþing 2005 á Hótel Nordica.
Málefni þingsins voru „endurskoðun á stefnu um sjálfbæra þróun“. Umhverfisþing er haldið annað hvert ár skv. ákvæðum í 10.gr. laga um náttúruvernd nr. 44/1999. Umhverfisþingið í ár var helgað endurskoðun á stefnu ríkisstjórnarinnar um sjálfbæra þróun sem samþykkt var árið 2002 og gefin út í ritinu ...

Nýtt efni:

Skilaboð: