Umhverfis- og auðlindaráðuneytið og velferðarráðuneytið bjóða til málþings um loftgæði og lýðheilsu þ. 24. apríl kl. 10 -12 á Nauthóli í Öskjuhlíð í aðdraganda Dags umhverfisins.

Á málþinginu verður fylgt úr hlaði nýju riti starfs hóps ráðuneytanna tveggja um loftgæði og heilsufar á Íslandi þar sem einnig eru settar fram tillögur til úrbóta.

Dagskrá:

10:00  Opnun og ávarp umhverfis- og auðlindaráðherra - Svandís Svavarsdóttir.

10:15  Skiptir loft máli? - áhrif loftgæða á heilsufar - Sigurður Þór Sigurðarson, yfirlæknir hjá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.

10:30  Loftgæði innandyra - áhrif á vellíðan og heilsu - Árný Sigurðardóttir, framkv.stjóri Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur.

10:45  Loftgæði utandyra - þróun loftmengunar síðustu ár - Þorsteinn Jóhannsson, sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun.

11:00  Hvað höfum við lært? Hverju getum við breytt?- Guðrún Pétursdóttir, forstöðumaður Stofnunar Sæmundar fróða.

11:15  Pallborð þar sem framsögumenn sitja fyrir svörum.

11:45  Ávarp velferðarráðherra og fundarslit - Guðbjartur Hannesson.

Fundarstjóri er Stefán Thors, ráðuneytisstjóri í um hverfis- og auðlindaráðuneyti.

Málþingið er öllum opið meðan húsrúm leyfir.

Grafík: Jörðin í mengunarskýjum, Guðrún A. Tryggvadóttir og Signý Kolbeinsdóttir.

Birt:
17. apríl 2013
Tilvitnun:
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið „Hreint loft - betri heilsa “, Náttúran.is: 17. apríl 2013 URL: http://nature.is/d/2013/04/16/hreint-loft-betri-heilsa/ [Skoðað:23. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 16. apríl 2013
breytt: 17. apríl 2013

Skilaboð: