Fimmtudaginn 22. maí nk. kl. 8:00 til 10:00 heldur Umhverfisráðuneytið og Landgræðsla ríkisins morgunverðarfund í tilefni Dags líffræðilegrar fjölbreytni en fundurinn verður haldinn á Grand Hóteli í Reykjavík,

Dagur líffræðilegrar fjölbreytni er í ár tileinkaður landbúnaði. Fjallað verður um mikilvægi líffræðilegrar fjölbreytni fyrir landbúnað, næringu og matvælaöryggi. Einnig verður ný stefnumörkun Íslands um líffræðilega fjölbreytni kynnt.

Dagskrá:

  • Ávarp Þórunnar Sveinbjarnardóttur umhverfisráðherra
  • Falin fjölbreytni - jarðvegur sem hluti vistkerfis. Kristín Svavarsdóttir og Guðmundur Halldórsson, Landgræðslunni.
  • Íslenskur landbúnaður og líffræðileg fjölbreytni. Bjarni Guðleifsson, prófessor við Landbúnaðarháskóla Íslands.
  • Stefnumörkun Íslands um framkvæmd Samningsins um líffræðilega fjölbreytni. Snorri Baldursson, Náttúrufræðistofnun Íslands.

Þátttaka tilkynnist með netpósti á postur@umhverfisraduneyti.is. Aðgangur er ókeypis.

Myndin er af fjölbreytilegum mýrlendisgróðri. Ljósmynd: Guðrún Tryggvadóttir.
Birt:
19. maí 2008
Tilvitnun:
Umhverfisráðuneytið „Morgunverðarfundur á degi líffræðilegrar fjölbreytni“, Náttúran.is: 19. maí 2008 URL: http://nature.is/d/2008/05/19/morgunveroarfundur-degi-liffraeoilegrar-fjolbreytn/ [Skoðað:19. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: