Þjóðgarður í Jökulsárgljúfrum í 40 ár

Vatnajökulsþjóðgarður, Norðurþing, Landvernd, Umhverfis- og auðlindaráðuneytið, Atvinnuþróunarfélag Þingeyinga og Ferðamálstofa efna til málþings á Fosshótel Húsavík 3. apríl í tilefni af því að meira en 40 ár eru liðin síðan þjóðgarður var stofnaður í Jökulsárgljúfrum 1973.

Dagskrá:

10.30 - 10.40 Bergur Elías Ágústsson, bæjarstjóri Norðurþings, setur fundinn.

10.45 - 11.25 Kristveig Sigurðardóttir, skipulagsverkfræðingur, landvörður og fyrrum formaður stjórnar Vatnajökulsþjóðgarðs flytur inngangserindi.

11.30 -12.00 Sigurður Bergsteinsson, minjavörður Norðurlandi eystra, fjallar um tækifæri tengd menningarminjum og sögulegri arfleifð.

12.00 - 13.00 Léttur hádegisverður í boði ráðstefnuhaldara.

13.00 - 13.30 Páll Jakob Líndal, doktor í umhverfissálfræði, fjallar um tækifæri tengd heilsu og vellíðan.

13.35 - 14.05 Halldóra Gunnarssdóttir, verkefnastjóri ferðaþjónustuklasans Norðuhjara, fjallar um tækifæri tengd ferðamennsku og byggðaþróun.

14.10 - 14.40 Rögnvaldur Ólafsson, fyrrv. forstöðumaður rannsóknarsetra HÍ, fjallar um tækifæri tengd náttúruminjum og lífríki.

14.45 - 15.30 Pallborðsumræður.

Fundarstjóri: Ólöf Ýrr Atladóttir ferðamálastjóri. Allir velkomnir.

Skráning hjá jona@atthing.is eigi síðar en 2. apríl.

Ljósmynd: Dettifoss, Árni Tryggvason.


Birt:
2. apríl 2014
Höfundur:
Landvernd
Tilvitnun:
Landvernd „Vannýtt tækifæri eða vonlaus hugmynd?“, Náttúran.is: 2. apríl 2014 URL: http://nature.is/d/2014/04/02/vannytt-taekifaeri-eda-vonlaus-hugmynd/ [Skoðað:20. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: