Umhverfisráðuneytið hefur úthlutað styrkum til verkefna er stuðla að faglegri uppbyggingu á sviði umhverfismála.Úthlutunin er í samræmi við breytt fyrirkomulag úthlutunar styrkja til félaga, samtaka og lögaðila en Alþingi hefur hætt úthlutun á styrkjum til ýmissa verkefna eins og verið hefur. Alþingi ákvarðar áfram umfang fjárframlaga en úthlutun er í höndum mismunandi ráðuneyta eftir málefnasviðum þeirra.  Í úthlutun umhverfisráðuneytisins var áhersla lögð á verkefni á sviði umhverfis- og náttúruverndar en 37 milljónir króna voru til ráðstöfunar. Tók umhverfisráðuneytið afstöðu til 57 umsókna að upphæð tæplega 143 milljóna króna.

Eftirfarandi  umsækjendur og verkefni hlutu styrki fyrir árið 2012:

  • Arkitektafélag Íslands - Útgáfa fjögurra smárita um vistvænni byggð - 250.000
  • Blái herinn,umhverfissamtök - Hreinn ávinningur 2011-2013 - 500.000
  • Eldvötn - samtök um náttúruvernd í Skaftárhreppi - Einstök náttúra Eldsveitanna - 100.000
  • Eyjafjarðarsveit - Eyðing skógarkerfils í Eyjafjarðarsveit - 750.000
  • Fenúr - Fagráð um endurnýtingu og úrgang - Aðalfundur ISWA 2012 - 150.000
  • Ferðaklúbburinn 4x4 - Forvarnir, stikun leiða og smávegagerð - 450.000
  • Fjórðungssamband Vestfirðinga - Undirbúningur vegna vottaðra Vestfjarða - 3.000.000
  • Framkvæmdaráð Snæfellsness - Umhverfisvottun Snæfellsness - 1.000.000
  • Framtíðarlandið - Náttúrukortið - 800.000
  • Fuglaathugunarstöð Suðausturlands - Fuglaathugunarstöð Suðausturlands - merkingar og talningar fugla o.fl. - 1.000.000
  • Fuglavernd - Koma á fót IBA skrá fyrir hafsvæði - IBA Marine - 600.000
  • Fuglavernd - Ferðastyrkur á EU bird and Habitats Directive Task Force fundi - 300.000
  • Garðarshólmur ses - Garðarshólmur ses - 3.700.000
  • Gróður fyrir fólk,áhugasamtök - Nýting lífræns úrgangs af Suðurnesjum til uppgræðslu og ræktunar - 1.250.000
  • Hið íslenska náttúrufræðifélag - Netvæðing á fræðslufundum Hín - 200.000
  • Katla Jarðvangur ses - Katla Jarðvangur í alþjóðlegu samstarfi - 500.000
  • Landgræðslufélag Héraðsbúa - Landgræðslustörf á Fljótdalshéraði- stöðvun jarðvegsrofs og uppgræðsla - 800.000
  • Landvarðafélag Íslands - Alþjóðaráðstefna landvarða - 250.000
  • Landvernd - Bláfáni - 1.000.000
  • Landvernd - Ráðstefna fyrir starfsfólk leik-, grunn-, og framhaldsskóla á grænni grein - 350.000
  • Melrakkasetur Íslands - Melrakkasetur Íslands - refarannsóknir á Hornströndum - 1.500.000
  • Náttúran er ehf - Þróun þriggja grænna appa fyrir snjallsíma og spjaldtölvur - 2.500.000
  • Náttúrufræðistofa Kópavogs - Vöktun á lífríki og vatnsgæðum Þingvallavatns - 3.700.000
  • Náttúrusetrið á Húsabakka ses - Náttúrusetrið á Húsabakka - 1.000.000
  • Náttúruverndarsamtök Íslands - Umsagnir og miðlun upplýsinga á vef samtakanna v/ Rio +20 - 500.000
  • Rannsóknasetur Háskóla Íslands á Hornafirði - Norræn ráðstefna um umhverfishugvísindi - 400.000
  • Samtökin Grænn apríl - Grænn apríl 2012 - 250.000
  • Skjálftafélagið-félag áhugafólks - Undirbúningur jarðvangs við heimskautsjaðar (Geopark at the Edge) - 350.000
  • Skorradalshreppur - Gerð hættumats og viðbragðsáætlana vegna gróðurelda i Skorradal - 700.000
  • Skotveiðifélag Íslands - Veiðistjórnun á Íslandi - stefnumótun til framtíðar - 800.000
  • Skógræktarfélag Borgarfjarðar - Votlendisstígar í fólkvangnum Einkunnum - 1.000.000
  • Skógræktarfélag Hafnarfjarðar - Viðbragðsáætlun og varnir vegna hættu á skógareldum á ræktunarsvæði Skógræktarf. Haf. - 1.250.000
  • Skógræktarfélag Íslands - Yfirfærsla Skógræktarritsins á stafrænt form og miðlun á vef - 500.000
  • Skógræktarfélag Íslands - Opinn skógur - 2.000.000
  • Surtseyjarfélagið - Rekstur og undirbúningur 50 ára afmælisráðstefna 2013 - 650.000
  • Umhverfishópur Stykkishólms - Málþing um vistvænni samgöngur - 350.000
  • Ungmannafélagið Úlfljótur (USÚ) - Merking hjóla- og göngustíga innan og umhverfis Höfn - 150.000
  • Útilífsmiðstöð skáta Úlfljótsvatni - SCENES - alþjóðleg umhverfisvottun skátamiðstöðva - 850.000
  • Vistbyggðarráð - Handbók um vistvænt skipulag - 600.000
  • Vistbyggðarráð - Íslenskt umhverfisvottunarkerfi fyrir byggingar - 1.000.000

Ljósmynd: Hófsóleyjar og grávíðir í mýri, Guðrún Tryggvadóttir.

Birt:
14. mars 2012
Tilvitnun:
Umhverfisráðuneytið „Úthlutun styrkja til verkefna 2012“, Náttúran.is: 14. mars 2012 URL: http://nature.is/d/2012/03/14/uthlutun-styrkja-til-verkefna-2012/ [Skoðað:19. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: