Alls bárust 63 tilnefningar til Náttúru- og umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs í ár, þar af átta frá Íslandi. Í ár verða verðlaunin veitt norrænu fyrirtæki, samtökum eða einstaklingi sem á einstakan hátt hefur stuðlað að góðu fordæmi við að fá fólk til að stunda útivist og sem hefur aukið skilning á þýðingu náttúrunnar. Verðlaunin, sem eru 350.000 danskar krónur, verða nú veitt í fimmtánda sinn.

Eftirtaldar tilnefningar bárust frá Íslandi:

  • Ferðafélag Íslands
  • Landvernd
  • Landvarðafélagið
  • Ferðafélag Fljótsdalshéraðs
  • Ari Trausti Guðmundsson.
  • Ásta Arnardóttir
  • Ósk Vilhjálmsdóttir
  • Magnús Magnússon

Dómnefnd ákveður hver hlýtur verðlaunin og tilkynnir það á fundi sem haldinn verður á Íslandi í byrjun október. Verðlaunin verða síðan afhent á Norðurlandaráðsþinginu í Stokkhólmi í lok október. Kolbrún Halldórsdóttir er ný skipaður formaður dómnefndarinnar og Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, formaður SUNN, situr einnig í dómnefndinni.

Náttúru- og umhverfisverðlaunin eru ein af fjórum verðlaunum Norðurlandaráðs, önnur verðlaun eru veitt fyrir bókmenntir, kvikmyndir og tónlist. Íslenska fyrirtækið Marorka hlaut umhverfisverðlaunin í fyrra.

Frétt á norden.org.

Birt:
30. júní 2009
Tilvitnun:
Umhverfisráðuneytið „Tilnefningar til umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs“, Náttúran.is: 30. júní 2009 URL: http://nature.is/d/2009/06/30/tilnefningar-til-umhverfisverolauna-norourlandarao/ [Skoðað:28. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: