SurtseyHeimsminjanefnd UNESCO samþykkti á fundi sínum 7. júlí í Québec í Kanada að setja Surtsey á heimsminjalistann á grundvelli vöktunar og rannsókna á þróun eyjunnar. Samþykktin felur í sér viðurkenningu til íslenskra stjórnvalda á friðun Surtseyjar 1965 og varðveislu náttúrulegs ástands hennar. Í mati á umsókn Íslands var sérstaklega tekið fram mikilvægi rannsókna og vöktunar á landnámi dýra og plantna ásamt þróun eyjunnar og framvindu lífríkis Surtseyjar fyrir heiminn. Surtsey er annar íslenski staðurinn sem tekinn er á heimsminjalistann og er hún skráð sem náttúruminjar, en Þingvellir eru fyrir á listanum á grundvelli menningarminja.

Íslands tilnefndi Surtsey á heimsminjalistann á tveimur forsendum, þ.e. vegna jarðfræðilegs mikilvægis og jarðfræðilegra þróunarferla og einnig á grundvelli vöktunar á landnámi dýra og plantna og framvindu lífríkis á Surtsey og í hafinu umhverfis eyna. Mat alþjóðlegu náttúruverndarsamtakanna (IUCN) var að einstakt alþjólegt mikilvægi Surtseyjar byggðist á seinna atriðiinu og lögðu samtökin til að Surtsey yrði skráð á grundvelli þess. Heimsminjanefnd UNESCO samþykkti tillöguna einróma.

Skráningunni fylgir hvatning um að Ísland hugi að endurtilnefningu Surtseyjar á grundvelli jarðfræðilegs mikilvægis sem hluta af fjölþjóðlegri raðtilnefningu staða á Atlantshafshryggnum eða sem hluta íslenskrar raðtilnefningar íslenskra eldfjalla og rekbeltisins.

Heimsminjasamningur UNESCO frá árinu 1972 fjallar um verndun menningar- og náttúruarfleifðar heimsins. Menntamálaráðuneytið ber ábyrgð á framkvæmd samningsins fyrir Íslands hönd. Það hefur jafnframt umsjón með menningararfinum en umhverfisráðuneytið sér um náttúruminjar og náttúruvernd. Náið samstarf er á milli ráðuneytanna um framkvæmd samningsins.

Fulltrúar Íslands á fundi heimsminjanefndar UNESCO eru Ragnheiður H. Þórarinsdóttir frá menntamálaráðuneytinu og Sigurður Á. Þráinsson frá umhverfisráðuneytinu.

Ljósmynd á vef UNESCO: © UNESCO/Sigurdur Á. Thráinsson 

Birt:
9. júlí 2008
Tilvitnun:
Guðmundur Hörður Guðmundsson „Surtsey samþykkt á heimsminjalista UNESCO“, Náttúran.is: 9. júlí 2008 URL: http://nature.is/d/2008/07/09/surtsey-samthykkt-heimsminjalista-unesco/ [Skoðað:18. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: