Umhverfisráðherra mun á næstu dögum óska eftir frekari upplýsingum vegna skipulagstillögu Skeiða- og Gnjúpverjahrepps. Það er gert í ljósi úrskurðar samgönguráðuneytisins um að Flóahreppi hafi ekki verið heimilt að semja við Landsvirkjun um greiðslu kostnaðar vegna skipulagsvinnu sveitarfélagsins.

Umhverfisráðuneytið hefur til skoðunar skipulagstillögu vegna breytinga á aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps sem sveitarfélagið hefur óskað staðfestingar umhverfisráherra á. Í rammasamkomulagi milli sveitarstjórnar Skeiða- og Gnjúpverjahrepps og Landsvirkjunar varðandi undirbúning, byggingu og rekstur Hvamms-, Holta- og Urriðafossvirkjunar segir:

„Landsvirkjun mun greiða allan sameiginlegan útlagðan kostnað sveitarfélagsins vegna undirbúnings virkjana s.s. kostnað vegna skipulagsbreytinga og vinnu við útgáfu framkvæmdaleyfisins. Komi til ófyrirséða atvika á verktímum virkjananna, sem leiða munu til útgjaldaauka sveitarfélagsins munu aðilar hafa samráð um greiðslu þess kostnaðar.“


Að vissu leyti er um sambærilegt tilvik að ræða og í úrskurði samgönguráðuneytisins í dag og því þykir ástæða til að skoða málið nánar.
Birt:
4. september 2009
Tilvitnun:
Umhverfisráðuneytið „Umhverfisráðherra mun kalla eftir frekari upplýsingum “, Náttúran.is: 4. september 2009 URL: http://nature.is/d/2009/09/04/umhverfisraoherra-mun-kalla-eftir-frekari-upplysin/ [Skoðað:16. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: