Stofnun Sæmundar fróða og umhverfisráðuneytið bjóða til „Stefnumóts um sjálfbærni jarðvarmavirkjana“ miðvikudaginn 6.maí 2009 kl 12:00-13:30 en Stefnumót Sæmundar Fróða og umhverfisráðuneytisins eru að jafnaði haldin í fundarsal Þjóðminjasafns Íslands.

  • Stefán Arnórsson prófessor nefnir erindi sitt Háhitasvæði, umhverfisáhrif eða sjálfbær nýting.
  • Þorsteinn Jóhannsson sérfræðingur á Umhverfisstofnun talar um Jarðhitavirkjanir og brennisteinsvetni. Á eftir eru almennar umræður.

Fundarstjóri er Guðrún Pétursdóttir.

Stefnumótin eru opnir fundir um mál sem efst eru á baugi.

Allir eru velkomnir.

Birt:
May 4, 2009
Höfundur:
Tilvitnun:
NA „Er virkjun jarðvarma sjálfbær?“, Náttúran.is: May 4, 2009 URL: http://nature.is/d/2009/05/04/er-virkjun-jarovarma-sjalfbaer/ [Skoðað:Oct. 14, 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Messages: