Umhverfisráðuneytið og iðnaðarráðuneytið efna til fundar um náttúruvernd og ferðaþjónustu á Grand Hótel, fimmtudaginn 18. nóvember kl. 8:30-10:00. Á fundinum verður fjallað um nýlega úttekt Umhverfisstofnunar á álagi á friðlýstum svæðum vegna ferðamanna, úrræði til umbóta, fjármögnun þeirra og leiðir til að tryggja að ferðaþjónusta og náttúruvernd fari saman.

Dagskrá:

  • Ávarp Svandísar Svavarsdóttur umhverfisráðherra.
  • Ástand og umbætur á friðlýstum svæðum. Kristín Linda Árnadóttir, forstjóri Umhverfisstofnunar.
  • Ferðamannastaðir á Íslandi – uppbygging til framtíðar. Elías Gíslason, forstöðumaður ferðamálasviðs Ferðamálastofu.
  • Uppbygging ferðamannastaða. Fjármögnun, ábyrgð, sjálfbærni. Einar Torfi Finnsson, framleiðslustjóri hjá Íslenskum Fjallaleiðsögumönnum, handhafa umhverfisverðlauna Ferðamálastofu.
  • Rekstur og umsjá þjóðgarða og friðlýstra svæða. Ólafur Örn Haraldsson, þjóðgarðsvörður á Þingvöllum.
  • Ávarp Katrínar Júlíusdóttur iðnaðarráðherra.

Ljósmynd: Dettifoss, Árni Tryggvason.

Birt:
16. nóvember 2010
Tilvitnun:
Umhverfisráðuneytið „Fundur um náttúruvernd og ferðaþjónustu“, Náttúran.is: 16. nóvember 2010 URL: http://nature.is/d/2010/11/16/fundur-um-natturuvernd-og-ferdathjonustu/ [Skoðað:19. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: