Plastpokar. Ljósm. Guðrún Tryggvadóttir.Umhverfis- og auðlindaráðherra hefur skipað starfshóp sem hefur það hlutverk að móta tillögur að aðgerðum um hvernig draga megi úr notkun plastpoka. Hópurinn mun í starfi sínu horfa til þingsályktunar Alþingis frá júlí sl. um að draga úr plastpokanotkun, breytinga á EES-samningnum vegna plastpokanotkunar og tillögu Umhverfisstofnunar um hvernig draga megi úr plastpokanotkun hér á landi.

Áætlað er að árlega noti Íslendingar um 70 milljónir plastpoka sem jafngildir rúmlega 200 plastpokum á mann. Starfshópurinn skal hafa að markmiði að dregið verði úr notkun burðarplastpoka í áföngum þannig að þeir verði 90 plastpokar á einstakling fyrir árslok 2019 og 40 plastpokar fyrir árslok 2025.

Hópurinn skal jafnframt leggja mat á hvort og þá hvaða stjórntæki gætu gagnast við að ná markmiðinu, s.s. notkun hagrænna hvata til grænnar nýsköpunar í plastiðnaði , skattlagning plastpoka, bann við notkun plastpoka að einhverju eða öllu leyti, niðurgreiðslur á umbúðum sem gætu komið í stað plastpoka, o.s.frv. Starfshópnum ber enn fremur að skoða hvað getur komið í staðinn fyrir plastpoka, aðgang almennings og atvinnulífs að leiðum sem geta bætt hringrásakerfi sem og að meta hugsanleg kostnaðaráhrif þeirra aðgerða sem lagðar verða til.

Starfshópnum er ætlað að hafa samráð við haghafa, s.s. Neytendasamtökin, fulltrúa lágvöruverslana, fulltrúa gámaþjónustuaðila og sorpsamlaga.

Starfshópinn skipa:

  • Sigurbjörg Sæmundsdóttir, formaður, umhverfis- og auðlindaráðuneyti.

  • Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri SVÞ

  • Eygerður Margrétardóttir, deildarstjóri hjá Reykjavíkurborg

  • Baldur Þorgeirsson, framkvæmdastjóri Odda

  • Hólmfríður Þorsteinsdóttir, sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun

Gert er ráð fyrir að starfshópurinn skili skýrslu til ráðherra með tillögum að aðgerðum eigi síðar en 15. júní 2016.

Birt:
1. febrúar 2016
Tilvitnun:
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið „Starfshópur vinnur tillögur um aðgerðir til að draga úr notkun plastpoka“, Náttúran.is: 1. febrúar 2016 URL: http://nature.is/d/2016/02/01/starfshopur-vinnur-tillogur-um-adgerdir-til-ad-dra/ [Skoðað:24. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: