Stórt skref var stigið í átt að alþjóðlegum samningi um kvikasilfur á árlegum ráðherrafundi Umhverfisstofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNEP) sem haldinn var í Nairobi í Kenía í liðinni viku. Samkomulag náðist um að hefja samningaviðræður um bindandi samkomulagi árið 2013.

Norðurlöndin hafa lengi unnið að því að komið yrði á alþjóðlegu samkomulagi sem fæli í sér takmörkun á nýtingu á kvikasilfri. Norræna ráðherranefndin hefur meðal annars staðið fyrir upplýsingaherferðum til að hafa áhrif á ákvarðanir á fundum umhverfisstofnunarinnar UNEP, og auk þess hefur hún staðið fyrir fjölda funda fyrir háttsetta stjórnendur undanfarin ár.

Frétt á heimasíðu Norrænu ráðherranefndarinnar.

Frétt á heimasíður Umhverfisstofnunar S.þ.

Heimasíða fundarins.

Viðtal við Achim Steiner, framkvæmdastjóra UNEP, og fleiri um samkomulagið.

Mynd: Frá ráðherrafundi UNEP í Kenía. Fulltrúar 140 landa sátu ráðherrafund Umhverfisstofnunar Sameinuðu þjóðanna í ár.
Birt:
25. febrúar 2009
Tilvitnun:
Umhverfisráðuneytið „Unnið að bindandi samkomulagi um kvikasilfur“, Náttúran.is: 25. febrúar 2009 URL: http://nature.is/d/2009/02/25/unnio-ao-bindandi-samkomulagi-um-kvikasilfur/ [Skoðað:16. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: