Á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun var ákveðið að 16. september, fæðingardagur Ómars Ragnarssonar, verði héðan í frá dagur íslenskrar náttúru. Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra lagði fram tillögu þess efnis. Hún segir ákvörðun ríkisstjórnarinnar vera viðurkenningu á framlagi Ómars til náttúruverndar og almenningsfræðslu um mikilvægi íslenskrar náttúru sem og allra þeirra sem lagt hafa sitt af mörkum til að efla fræðslu um íslenska nátttúru.

Dagur íslenskrar náttúru verður fyrst haldinn hátíðlegur 16. september 2011. Þá mun umhverfisráðherra í fyrsta skipti veita viðurkenningu sem kennd verður við Ómar Ragnarsson. Viðurkenningin verður veitt fyrir vandaða og eftirtektarverða umfjöllun eða fræðslu um náttúru Íslands og hana má veita fjölmiðli jafnt sem einstökum blaða- og fréttamönnum, dagskárgerðarmönnum, textahöfundum, ljósmyndurum og kvikmyndagerðarmönnum.

Ómar Ragnarsson hefur á undanförnum áratugum unnið framúrskarandi og óeigingjarnt starf á fjölmörgum sviðum. Hann er landsþekktur fyrir störf sín í fjölmiðlum og hefur gert náttúru Íslands einstök skil í sjónvarpi. Ómar er fjölfróður á sviði íslenskrar landa- og náttúrufræði og hann hefur nýtt þessa þekkingu við framleiðslu fjölda sjónvarpsþátta sem hafa opnað augu Íslendinga fyrir stórbrotinni fegurð Íslands. Hann hefur sýnt þjóðinni afskekkta staði sem fáir þekktu fyrir og hann hefur greint frá náttúruundrum, jarðskjálftum og eldgosum í máli og myndum.

Birt:
1. október 2010
Tilvitnun:
Umhverfisráðuneytið „Ríkisstjórnin ákvað að 16. september verði dagur íslenskrar náttúru“, Náttúran.is: 1. október 2010 URL: http://nature.is/d/2010/10/01/rikisstjornin-akvad-ad-16-september-verdi-dagur-is/ [Skoðað:29. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: 15. september 2014

Skilaboð: