BreiðafjörðurNorrænn vinnuhópur um verndun hafsins (HAV-hópurinn) auglýsir eftir umsóknum um styrki vegna verkefna sem miða að því að bæta umhverfismál í hafi og á ströndum. Umsóknarfrestur er til 10. júlí 2013.

HAV-hópurinn, sem starfar á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar, úthlutar árlega slíkum styrkjum. Sett er það skilyrði að a.m.k. þrjú norræn lönd taki þátt í verkefninu og að það gagnist Norðurlöndunum með augljósum hætti. Mikilvægt er að markmið verkefnisins sé í samræmi við forgangsmál HAV-hópsins, umhverfisáætlun Norrænu ráðherranefndarinnar og/eða dagskrá þess lands sem fer með formennsku í Norðurlandaráði hverju sinni. 

Markmiðið fyrir 2014 er að byggja upp þekkingu á áhrifum súrnun sjávar á umhverfi og lífríki þess. Sömuleiðis að stuðla að verndun hafsins og sjálfbærri nýtingu. HAV-hópurinn leggur einnig áherslu á þverfagleg verkefni sem lýsa samspili loftslags, loftgæða, sjávar og lands á Norðurlöndunum sem og á Norðurpólnum.  Er þá sóst eftir því að verkefnið sé einnig fjármagnað eftir öðrum leiðum en eingöngu með styrk HAV-hópsins.

Þá vill HAV-hópurinn stuðla að aukinni þekkingu á hugtakinu „græna hagkerfið" eða „grænn hagvöxtur" í tengslum við málefni hafsins.

Verkefni sem ekki falla undir þessa forgangsröðum eru ólíkleg til að hljóta styrki frá HAV-hópnum.

Umsóknir skal senda í gegn um rafræna umsóknargátt Norrænu ráðherranefndarinnar og til maritag@tinganes.fo. Nánari upplýsingar má finna í frétt Norrænu ráðherranefndarinnar.

Birt:
6. júní 2013
Tilvitnun:
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið „Styrkir til verkefna um málefni hafs og stranda“, Náttúran.is: 6. júní 2013 URL: http://nature.is/d/2013/06/06/styrkir-til-verkefna-um-malefni-hafs-og-stranda/ [Skoðað:28. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: