Umboðsmaður Alþingis hefur sent frá sér álit í kjölfar kvörtunar Samtaka um náttúruvernd á Norðurlandi vegna tafa á úrskurði umhverfisráðuneytisins vegna stjórnsýslukæru samtakanna varðandi ákvörðun Skipulagsstofnunar um matskyldu vegna borunar rannsóknarhola og lagningar vegslóða vegna borunar kjarnholu á Þeistareykjum í Aðaldælahreppi.

Niðurstaða umboðsmanns er að afgreiðsla ráðuneytisins hafi ekki verið í samræmi við ákvæði laga um mat á umhverfisáhrifum hvað varðar tímafresti, en í þeim segir að úrskurði í kærumálum skuli kveða upp innan tveggja mánaða frá því að kærufrestur rennur út. Umboðsmaður Alþingis gerir í áliti sínu ekki athugasemd við efnislega niðurstöðu ráðuneytisins í málinu.

Ráðuneytið hyggst skoða með hvaða hætti það getur brugðist við áliti og tilmælum umboðsmanns Alþingis. Í því ljósi mun það m.a. meta í hverju tilviki hvort nauðsynlegt sé að leita umsagna sérfræðistofnana og leyfisveitenda við meðferð mála, án þess að það hafi áhrif á ríka rannsóknarskyldu stjórnvalda.

Frétt á heimasíðu umhverfisráðuneytisins:
www.umhverfisraduneyti.is/frettir/nr/1362
Birt:
16. janúar 2009
Tilvitnun:
Guðmundur Hörður Guðmundsson „Viðbrögð við áliti og tilmælum umboðsmanns Alþingis“, Náttúran.is: 16. janúar 2009 URL: http://nature.is/d/2009/01/16/viobrogo-vio-aliti-og-tilmaelum-umboosmanns-althin/ [Skoðað:25. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: