Framkvæmdasýsla ríkisins hefur auglýst eftir tilboðum í byggingu Gestastofu Vatnajökulsþjóðgarðs á Skriðuklaustri, en hún verður fyrsta byggingin hér á landi sem verður byggð samkvæmt vottuðum vistvænum byggingarstöðlum. Útboðið er unnið samkvæmt ný samþykktri stefnu ríkisstjórnarinnar um vistvæn innkaup.

Í stefnu ríkisstjórnarinnar er sagt fyrir um hvernig samþætta eigi umhverfissjónarmið í innkaupum hjá ríkinu. Íslenska ríkið kaupir vörur, þjónustu og verk fyrir meira en 100 milljarða króna á ári sem er um fjórðungur af útgjöldum ríkisins. Vistvæn innkaup taka meðal annars til bygginga.

Við hönnun tveggja verkefna á vegum umhverfisráðuneytisins var ákveðið að hafa vistvænar aðferðir að leiðarljósi og leitast við að votta byggingarnar sem vistvænar. Þær byggingar sem um ræðir eru gestastofa Vatnajökulsþjóðgarðs á Skriðuklaustri og þjóðgarðsmiðstöð á Hellissandi. Meðal markmiða við hönnun bygginganna er að takmarka neikvæð umhverfisáhrif, skapa heilnæman vinnustað, minnka rekstrarkostnað og stuðla að góðri ímynd. Stefnt er að því að byggingarnar verði vottaðar sem vistvæn mannvirki samkvæmt vottunarkerfi BREEAM (British Building Research Establishment Environmental Assessment Method).

Vottun byggingarinnar samkvæmt BREEAM gerir ákveðnar kröfur til verktaka, m.a. varðandi verklag á vinnustað og innkaup á byggingarefnum. Þetta þýðir að verktaki skuldbindur sig til þess að vinna samkvæmt virku umhverfis- og öryggisstjórnunarkerfi. Verktaki skal móta umhverfis- og öryggisstefnu fyrir vinnusvæðið, fylgja henni og tryggja að allir á vinnusvæði (bæði starfsmenn og gestir) þekki og fylgi. Verktaki skal einnig útnefna ábyrgðaraðila umhverfis- og öryggismála á vinnusvæðinu. Gerðar eru kröfur um að verktaki skilgreini markmið, vakti, skrái og stýri ákveðnum umhverfisþáttum, s.s. orkunotkun og myndun úrgangs.

Arkitektar Gestastofunnar á Skriðuklaustri eru Arkís efh. en Efla efh. hefur annast umhverfisráðgjöf í samstarfi við Mott MacDonald.

Vistvæn innkaup fela í sér margs konar ávinning fyrir kaupendur, birgja og samfélagið allt. T.d. draga vistvæn innkaup úr umhverfisáhrifum, þau geta minnkað kostnað og aukið gæði og síðast en ekki síst auka vistvæn innkaup framboð á vistvænum vörum og þjónustu sem ný tist samfélaginu í heild og hvetja til nýsköpunar.

Heimasíða Vatnajökulsþjóðgarðs.

Mynd:Fyrirhuguð Gestastofa á Skriðuklaustri
Birt:
9. apríl 2009
Tilvitnun:
Umhverfisráðuneytið „Fyrsta umhverfisvottaða byggingin á Íslandi fyrirhuguð á Skriðuklaustri“, Náttúran.is: 9. apríl 2009 URL: http://nature.is/d/2009/04/15/fyrsta-umhverfisvottaoa-byggingin-islandi-fyrirhug/ [Skoðað:20. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 15. apríl 2009

Skilaboð: