Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra hefur skipað verkefnisstjórn til að vinna aðgerðaáætlun í loftslagsmálum. Við gerð áætlunarinnar verður stefnuyfirlýsing ríkisstjórnarinnar um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda höfð að leiðarljósi.

Nýútkomin skýrsla sérfræðinefndar frá júní 2009, sem ber heitið Möguleikar til að draga úr nettóútstreymi gróðurhúsalofttegunda á Íslandi, liggur einnig til grundvallar við störf verkefnisstjórnarinnar.

Verkefnastjórnin á að vinna í nánu samráði við alla hagsmunaaðila utan stjórnsýslunnar, svo sem Samtök atvinnulífsins, fulltrúa atvinnugreina, umhverfisverndarsamtök og viðkomandi sérfræðistofnanir. Verkefnastjórnin á að skila tillögum að aðgerðaáætlun til umhverfisráðherra eigi síðar en 1. apríl 2010.

Verkefnastjórnin er þannig skipuð:

Hugi Ólafsson, tilnefndur af umhverfisráðuneyti, formaður.
Sigrún Ólafsdóttir, tilnefnd af forsætisráðuneyti.
Sigurður Guðmundsson, tilnefndur af fjármálaráðuneyti.
Sveinn Þorgrímsson, tilnefndur af iðnaðarráðuneyti.
Karl Alvarsson, tilnefndur af samgönguráðuneyti.
Erna Bjarnadóttir, tilnefnd af sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti.
Ellý Katrín Guðmundsdóttir, tilnefnd af Sambandi íslenskra sveitarfélaga.

Ljósmynd: Sól á Hvannadalshnúk, Árni Tryggvason.

Birt:
3. júlí 2009
Tilvitnun:
Umhverfisráðuneytið „Unnið að aðgerðaáætlun í loftslagsmálum“, Náttúran.is: 3. júlí 2009 URL: http://nature.is/d/2009/07/03/unnio-ao-aogeroaaaetlun-i-loftslagsmalum/ [Skoðað:23. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: