Evrópska efnahagssvæðiðFramkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur ákveðið að hefja endurskoðun á tilskipun um mat á umhverfisáhrifum. Íslensk löggjöf á þessu sviði er byggð á tilskipuninni í samræmi við EES-samninginn. Ákveðið hefur verið að gefa öllum tækifæri til að koma á framfæri athugasemdum og ábendingum um lykilatriði tilskipunarinnar, svo sem um matsáætlanir, árangur við framkvæmd umhverfismats, samhæfingu milli landa, hlutverk umhverfisyfirvalda og tengsl við loftslagsbreytingar og líffræðilegan fjölbreytileika. Athugasemdir og ábendingar eiga að berast eigi síðar en 24. september næstkomandi. Að því loknu hefst endurskoðunin á vegum framkvæmdastjórnarinnar.

Sjá nánar á heimasíðu Evrópusambandsins.

Lög um mat á umhverfisáhrifum.

Grafík: EES - Evrópska efnahagssvæðið

Birt:
11. júlí 2010
Tilvitnun:
Umhverfisráðuneytið „Tilskipun um mat á umhverfisáhrifum endurskoðuð“, Náttúran.is: 11. júlí 2010 URL: http://nature.is/d/2010/07/10/tilskipun-um-mat-umhverfisahrifum-endurskodud/ [Skoðað:27. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 10. júlí 2010

Skilaboð: