Umhverfisráðuneytið efndi til upplýsingafunda um loftslagsmál fyrir alþingismenn og frétta- og blaðamenn í dag. Efnt var til fundanna vegna þess hversu mikið er um að vera á þessu sviði um þessar mundir. Í næstu viku hefst loftslagsráðstefna í Balí þar sem samningar hefjast um hvað taki við þegar Kyoto-bókunin rennur út og fyrr í þessum mánuði gaf Vísindanefnd Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar út fjórðu yfirlitsskýrslu sína. Upplýsingafundirnir voru skipulagðir í samvinnu við Landvernd og Náttúruverndarsamtök Íslands.

Hér má nálgast glærur sem fylgdu erindum sem flutt voru á fundunum:

 

Frá fundinum í umhverfisráðuneytinu með fréttamönnum í morgun. Frétt og mynd af vef umhverfisráðuneytisins.

Birt:
28. nóvember 2007
Tilvitnun:
Umhverfisráðuneytið „Upplýsingafundur um lofslagsmál“, Náttúran.is: 28. nóvember 2007 URL: http://nature.is/d/2007/11/28/upplysingafundur-um-lofslagsmal/ [Skoðað:26. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: