Sigríður Jónsdóttir, ráðuneytisstjóri umhverfis- og auðlindaráðuneytisins.Umhverfis- og auðlindaráðherra tilkynnti í dag þá ákvörðun sína að skipa Sigríði Auði Arnardóttur í embætti ráðuneytisstjóra frá og með 1. mars næstkomandi. Þetta er gert með vísan til 36. greinar laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.

Sigríður Auður er með embættispróf í lögfræði frá Háskóla Íslands. Hún hefur starfað í ráðuneytinu frá árinu 1998 og gegnt embætti skrifstofustjóra frá árinu 2003, á skrifstofu laga og upplýsingamála, skrifstofu laga og stjórnsýslu og á skrifstofu umhverfis og skipulags. Sigríður Auður var staðgengill ráðuneytisstjóra frá 2007 til 1. mars 2014 þegar hún var settur ráðuneytisstjóri til eins árs.

Stefán Thors, fráfarandi ráðuneytisstjóri, fer til starfa í forsætisráðuneytinu.

Með skipun Sigríðar Auðar gegna í fyrsta sinn fleiri konur en karlar embætti ráðuneytisstjóra í Stjórnarráði Íslands. Sigríður Auður er gift Vilhjálmi Erni Sigurhjartarsyni viðskiptafræðingi og eiga þau dótturina Unni Svölu.

Birt:
25. febrúar 2015
Tilvitnun:
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið „Sigríður Auður Arnardóttir skipuð ráðuneytisstjóri“, Náttúran.is: 25. febrúar 2015 URL: http://nature.is/d/2015/02/25/sigridur-audur-arnardottir-skipud-raduneytisstjori/ [Skoðað:28. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: