Ný stofnun, Veðurstofa Íslands, tók til starfa um áramótin. Stofnunin starfar samkvæmt lögum sem voru samþykkt á Alþingi síðastliðið sumar. Viðfangsefni nýrrar stofnunar snúa að eðlisþáttum jarðarinnar, þ.e. lofti, vatni, snjó og jöklum, jörð og hafi. Helsta hlutverk stofnunarinnar er að: afla, varðveita, vinna úr upplýsingum og stunda rannsóknir og að miðla upplýsingum til og þjónusta notendur um þá eðlisþætti jarðar sem varða íslenska hagsmuni og samfélagslegt öryggi gagnvart náttúruvá. Stofnunin mun því sinna afar mikilvægum verkefnum fyrir íslenskt samfélag, bæði fyrir atvinnurekstur í landinu og daglegt líf.

Hjá nýrri stofnun Veðurstofu Íslands starfar öflugur hópur fagmanna og vísindamanna og er starfsmannafjöldi um 120.

Magnús Jónsson, sem verið hefur veðurstofustjóri frá 1994, hefur látið af störfum en við starfi forstjóra Veðurstofu Íslands tók Árni Snorrason, sem áður var forstöðumaður Vatnamælinga, en Vatnamælingar sameinuðust Veðurstofunni um áramót. 

Heimasíða Veðurstofu Íslands.

Náttúran.is er í samvinnu við Veðurstofuna um stöðuga birtingu veðurkorta hér undir natturan.is/veður enda er veðrið ekki lítils verð náttúrunnar verkan.

Birt:
15. janúar 2009
Tilvitnun:
Umhverfisráðuneytið „Ný Veðurstofa Íslands tekin til starfa“, Náttúran.is: 15. janúar 2009 URL: http://nature.is/d/2009/01/15/ny-veourstofa-islands-tekin-til-starfa/ [Skoðað:26. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: