Á degi umhverfisins 25. apríl boða umhverfisráðuneytið, Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Félag umhverfisfræðinga til málþings um vistvæna nýsköpun og nýjar áherslur í atvinnuuppbyggingu. Málþingið fer fram í Iðnó frá kl. 13:00 til 15:00.

Margar þjóðir heims hafa nú mikinn áhuga á að leggja sig fram við að skapa atvinnutækifæri á sviði vistvænnar nýsköpunar, þróunar og þjónustu. Fyrirsjáanlegt er að umsvif á þessum vettvangi aukist mjög í nánustu framtíð og í nýrri skýrslu Umhverfisstofnunar Sameinuðu þjóðanna er því spáð að markaðir fyrir umhverfisvænar vörur og þjónustu muni tvöfaldast fram til 2020. Hér á landi eru margvísleg tækifæri á þessu sviði, sem skapað geta störf og aukið útflutning.

Á málþinginu munu sjö fyrirtæki kynna starfsemi sína og framtíðarsýn. Þá verður efnt til pallborðsumræðna um þau tækifæri sem bjóðast íslenskum fyrirtækjum á þessu sviði.

Dagskrá:

  • Ávarp Kolbrúnar Halldórsdóttur umhverfisráðerra.
Kynningar:
  • Marorka - þróar orkustjórnunarkerfi fyrir skip til að draga úr olíunotkun og mengun
  • Gavia Travel - sérhæfir sig í fuglaskoðunarferðum fyrir erlenda ferðamenn
  • Saga Medica – sérhæfir sig í rannsóknum og framleiðslu á hágæða náttúruvörum úr jurtum
  • Carbon Recycling International - breytir útblæstri frá jarðvarmavirkjunum í eldsneyti
  • HBT - þróar og framleiðir orkusparandi lausnir fyrir stórnotendur í orkufrekum iðnaði
  • Farmers Market – ný tir náttúruleg hráefni við framleiðslu tískufatnaðar
  • Prókatín - framleiðir prótínmjöl í dýrafóður úr aflofti frá jarðvarmavirkjunum
  • Umhverfisráðherra afhendir Kuðunginn og útnefnir Varðliða umhverfisins
  • Pallborðsumræður um vistvæna nýsköpun og fjölgun grænna starfa. Þorsteinn Ingi Sigfússon, forstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar, Baldur M. Helgason, sjóðstjóri hjá Auði Captial, Bryndís Skúladóttir, forstöðumaður umhverfismála hjá Samtökum Iðnaðarins og Anna G. Sverrisdóttir, formaður umhverfisnefndar Samtaka ferðaþjónustunnar. Björn H. Barkarson, frá Félagi umhverfisfræðinga, stýrir umræðum.

Fundarstjóri er Magnús Jóhanesson, ráðuneytisstjóri.

Græn störf eru tengd hreinni tækni eða stuðla að bættri umhverfisvitund og draga úr umhverfisáhrifum hefðbundinna starfa. Græn störf byggja á því að fjárfesta í aukinni framleiðni með betri nýtingu, t.d. orku og hráefna, og komast þannig hjá sóun á aðföngum og fjármagni. Áhersla er á skilvirkni framleiðsluferla, notagildi og skilvirkni í notkun, fjárfest er í lokuðum kerfum og búin eru til verðmæti úr úrgangi. Horft er til náttúrunnar sem byggir á hringrás og afurðir eins verða að aðföngum annars.
Birt:
15. apríl 2009
Tilvitnun:
Guðmundur Hörður Guðmundsson „Græn störf - málþing um vistvæna nýsköpun“, Náttúran.is: 15. apríl 2009 URL: http://nature.is/d/2009/04/15/graen-storf-malthing-um-vistvaena-nyskopun/ [Skoðað:20. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: 6. júlí 2010

Skilaboð: