Garðlistaveisla í Seljagarði
- Staðsetning
- Seljagarður Jöklaseli
- Hefst
- Sunnudagur 17. ágúst 2014 16:00
- Lýkur
- Sunnudagur 17. ágúst 2014 18:00
Tengt efni
Garðlistaveisla í Seljagarði
Í Seljahverfi hefur hópur fólks komið á laggirnar samfélagsreknu borgarbýli undir nafninu Seljagarður.
Seljagarður er skapaður í anda vistræktar og með þekkingu og getu samfélagsins má búast við miklu í framtíðinni. Verið er að reisa gróðurhús og garðræktin er komin vel á veg.
Í Seljagarði er einnig boðið upp á dagksrá en næstkomandi sunnudag þ. 17. ágúst kl 16:00 verður haldin garðlistaveisla og mun verða boðið upp á ókeypis súpu og námskeið.
Guðrún Tryggvadóttir myndlistamaður og framkvæmdastjóri Náttúran.is býður upp á ókeypis leiðbeinslu í málun með vatnslitum, með jurtir sem hugmynd, fyrirmynd eða efnivið.
Auður I. Ottesen garðyrkjufræðingur og ritstjóri tímaritsins Sumarhússins og garðsins mun einnig vera með ókeypis námskeið en hún mun kenna að vefa úr greinum og viði.
Sjá Seljagarð hér á Grænum síðum.
Meiri upplýsingar um Seljagarð borgarbýli á seljagardur.is.
Birt:
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir, Þórey Mjallhvít Ómarsdóttir „Garðlistaveisla í Seljagarði“, Náttúran.is: 12. ágúst 2014 URL: http://nature.is/d/2014/08/12/gardlistaveisla-i-seljagardi/ [Skoðað:15. apríl 2026]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: 27. janúar 2016


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: