Ólafsdalshátíðin 2014
- Staðsetning
- Ólafsdalur
- Hefst
- Sunnudagur 10. ágúst 2014 10:00
- Lýkur
- Sunnudagur 10. ágúst 2014 17:00
Tengt efni
Ólafsdalshátíðin 2014
Ólafsdalur við Gilsfjörð er meðal merkustu menningarminjastaða á Vesturlandi og við Breiðafjörð. Þar stofnaði Torfi Bjarnason fyrsta búnaðarskóla á Íslandi árið 1880 og var hann rekinn til 1907.
Á undanförnum árum hefur farið fram mikil uppbygging á staðnum undir handleiðslu Rögnvaldar Guðmundssonar, bæði hefur skólahúsið verið gert upp og þar haldnar sýningar, námskeið og aðrar menningarlegar uppákomur.
Ólafsdalsfélagið hefur haft það á stefnuskrá sinni að Ólafsdalur verði nýsköpunarsetur 21. aldar líkt og það var til forna þegar að fyrsti búnaðarskólinn var þar rekinn með miklum myndarskap. Það er ekki hægt að segja annað en að sú uppbygging hafi gengið vonum framar og ekki sér fyrir endann á þeirri jákvæðu þróun sem á sér stað í Ólafsdal. Árlega heldur félagið hátið þar sem fjáröflun fyrir félagið er á dagskrá í forma happdrættis auk skemmtiatriða, námskeiða og erinda fyrir alla fjölskylduna.
Ólafsdalshátíðin verður haldin sunnudaginn 10. ágúst í ár. Ókeypis er á allt nema tóvinnunámskeiðið um morguninn.
Dagskrá:
10.00-13.00 Frábært tóvinnunámskeið fyrir börn og ungmenni í samstarfi v/Heimilisiðnaðarfélagið
Kennari: Marianne Guckelsberger.
- 10.30-12.00 Gönguferð um fræðslustíginn í Ólafsdal með leiðsögn. Um 3 km ganga við allra hæfi.
- 11.00 Sala á miðum í Ólafsdalshappdrættinu hefst:
- 12.00-17.00 Ólafsdalsmarkaður og sýningar í skólahúsinu. Lífrænt vottað Ólafsdalsgrænmeti til sölu, Erpsstaðaís o.fl.
Fjölbreyttur matar- og handverksmarkaður.
Ólafsdalsskólinn 1880-1907: fastasýning á 1. hæð
Guðlaug og konurnar í Ólafsdal: sýning á 1. hæð
Dalir og Hólar - LITUR: Listsýning á 2. hæð í samvinnu við Nýpurhyrnu
- 13.00 Hátíðardagskrá
Setning: Stjórnarmaður í Ólafsdalsfélaginu
Ræða: Haraldur Benediktsson alþingismaður
Tónlist: Alda Dís Arnardóttir söngkona og Bragi Þór Ólafsson gítarleikari
Erindi: Hvers vegna Ólafsdalur? Sólveig Ólafsdóttir staðarhaldari í Ólafsdal
Erindi: Sjálfbærni í gær og í dag Dominique Plédel Jónsson, formaður Slow Food samtakanna á Íslandi
Tónlist: Alda Dís Arnardóttir og Bragi Þór Ólafsson
Kynnir: Jóhannes Haukur Hauksson oddviti Dalabyggðar
- 15.00 Leikhópurinn Lotta sýnir Hróa hött
- 16.30 Dregið í Ólafsdalshappdrættinu
Hestar teymdir undir börnum í boði bænda í Hvítadal
Kaffi, djús, kleinur og flatkökur á sanngjörnu verði.
Ljósmyndir: Frá Ólafsdalshátiðinni 2013, ljósm. Guðrún Tryggvadóttir.
Birt:
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Ólafsdalshátíðin 2014“, Náttúran.is: 8. ágúst 2014 URL: http://nature.is/d/2014/08/08/olafsdalshatidin-2014/ [Skoðað:14. apríl 2026]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: