Náttúruverndarþing 2014
- Staðsetning
- Mörkin 6
- Hefst
- Laugardagur 10. maí 2014 10:00
- Lýkur
- Laugardagur 10. maí 2014 18:00
Tengt efni
Blásið til Náttúruverndarþings
Náttúruverndarþing 2014 verður haldið laugardaginn 10. maí, kl. 10:00-17:00 í húsi Ferðafélags Íslands í Mörkinni og eru allir vekomnir á þingið.
Dagskrá:
10:00-10:10 Opnun: Guðmundur Ingi Guðbrandsson, framkvæmdastjóri Landverndar
10:10-11:00 Náttúruverndarupplýsingaveitur:
- María Ellingsen frá Framtíðarlandinu kynnir Náttúrukortið
- Guðrún Tryggvadóttir og Einar Bergmundur frá Náttúran.is kynna Græna kortið
- Guðmundur Hörður Guðmundsson formaður Landverndar kynnir Hjarta landsins
- Árni Finnsson formaður NSÍ stýrir.
11:00-12:00: Ungir umhverfissinnar kynna samtök sín og baráttumál:
- Hugrún Geirsdóttir kynnir Gaia
- Ólafur Heiðar Helgason kynnir Unga umhverfissinna
- Finnur Guðmundarson Olguson kynnir Grugg
- Árni Finnsson formaður NSÍ stýrir
12.00-13.00: Hádegisverður
13:00-14.45: Umræður um næstu skref í náttúruvernd með þátttöku allra sem sitja þingið.
- Kristín Vala Ragnarsdóttir stýrir.
14:45-15:00 Afhending Náttúruverndarans, viðurkenningar fyrir ötula náttúruverndarbaráttu á Íslandi
15:00-15:30 Kaffi
15:30-16:45 Aðgerðahyggja og aðkoma lögreglu:
- Andri Snær Magnason, rithöfundur og ritari stjónar Landverndar
- Lárus Vilhjálmsson, leikhússtjóri um aðgerðir og handtökur í Gálgahrauni
- Stefán Eiríksson, lögreglustjóri
16:15-16:45: Pallborðsumræður
16:45-17:00: Kosning um ályktanir Náttúrverndarþings og þingslit
17:00-18:00: Léttar veitingar
Ljósmynd: Dynkur í Þjórsá, Landvernd.
Birt:
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Blásið til Náttúruverndarþings“, Náttúran.is: 5. maí 2014 URL: http://nature.is/d/2014/05/05/blasid-til-natturuverndarthings/ [Skoðað:28. apríl 2026]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: 6. maí 2014


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: