Hvernig metum við hið ómetanlega
- Staðsetning
- Hólar í Hjaltadal
- Hefst
- Fimmtudagur 16. apríl 2015 09:00
- Lýkur
- Föstudagur 17. apríl 2015 15:00
- sjá viðburð
Tengt efni
Hvernig metum við hið ómetanlega? Auðlindir og nýting þeirra
Guðbrandsstofnun í samstarfi við Ferðamálastofu, Landvernd og Orkustofnun standa að ráðstefnu um náttúruna og auðlindanýtingu. Ráðstefnan verður haldin á Hólum í Hjaltadal 16. - 17. apríl 2015.
Dagskrá:
16. apríl
9:00 Morgunverður
10:00 Setning ráðstefnunnar sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir, vígslubiskup
10:30 Sólveig Anna Bóasdóttir Hið ómetanlega: Er náttúran og auðlindirnar ómetanlegar? Hvers vegna ef svo er? Hvað merkir ómetanlegt? Hvernig metum við, virðum og lifum með hinu ómetanlega?
11:30 Umræður
12:00 Hádegisverður
13:00 Auðlindir og ábyrgð: Hvað gerir auðlind? Hvenær hættir landssvæði að vera bara til – og fer að vera til fyrir tiltekna hagsmuni? Hver er ábyrgð okkar í því ferli?
15:00 Umræður og kaffi
16:00 Auðlindanýting í hnattrænu samhengi: Nærumhverfi-þjóðarumhverfi-heimsumhverfi– hvaða skuldbindingar, réttindi og mögulegur ágreiningur tengjast misþröngri sýn á auðlindanýtingu?
18:30 Pétur Gunnarsson Hvernig metum við hið ómetanlega?
19:30 Kvöldverður úr matarkistu Skagafjarðar
17. apríl:
8:00 Morgunverður
9:00 Endurnýjanleiki og sjálfbærni: "Svört" eða "hvít" náttúruvernd; nýting og varðveisla auðlinda – mismunandi sjónarmið? Manngert umhverfi og náttúra – hvenær rennur þetta í eitt?
11:00 Umræður
11:45 Hádegisverður
13:00 Kerfisvöld-þjóðarhagur: Kerfi hverra, skipuð af hverjum og fyrir hverja? Árekstrar við þjóðarhag – í nútíð og framtíð? Takmörkun möguleika eða útvíkkun?
15:00 Samantekt og ráðstefnuslit, kaffi
Erindi flytja:
Anna Dóra Sæþórsdóttir Háskóla Íslands, Arnheiður Eyþórsdóttir Háskólanum á Akureyri, Ágúst Valfells Háskóla Reykjavíkur, Árni Einarsson Rannsóknastöðinni við Mývatn, Ásdís Hlökk Theodórsdóttir Skipulagsstofnun, Daði Már Kristófersson Háskóla Íslands, Georgette Leah Burns Háskólanum á Hólum, Guðbjörg R. Jóhannesdóttir Háskóla Íslands, Hilmar Malmquist Náttúruminjasafni Íslands, Hjalti Hugason Háskóla Íslands, Kristinn Einarsson Orkustofnun, Ólöf Ýrr Atladóttir ferðamálastjóri, Sólveig Anna Bóasdóttir Háskóla Íslands.
Skráning og nánari upplýsingar
Ráðstefnugjald er 4.000 kr. Innifalið í því er hádegisverður og kaffi, báða dagana.
Skráning á ráðstefnuna er á heimasíðunni:
http://goo.gl/forms/NjHACjJYdI
Allar nánari upplýsingar veita:
Erla B. Örnólfsdóttir erlabjork@holar.is og Hjalti Hugason hhugason@hi.is
Ráðstefnugestir greiða sjálfir fyrir þjónustu vegna þátttöku í ráðstefnunni. Ferðaþjónusta er á Hólum. Kostnaður við gistingu og mat er sem hér segir:
Gisting í tveggja manna herbergi er 6.000 kr. nóttin á mann en eins manns herbergi kostar kr. 7.500, morgunmatur innifalinn. Kvöldverður á fimmtudag kostar 5.500 kr.
Bókun fyrir gistingu og mat er hjá: Ferðaþjónustunni á Hólum booking@holar.is
Birt:
Tilvitnun:
Einar Bergmundur, Erla Björk Örnólfsdóttir „Hvernig metum við hið ómetanlega? Auðlindir og nýting þeirra“, Náttúran.is: 30. mars 2015 URL: http://nature.is/d/2014/11/09/hvernig-metum-vid-hid-ometanlega/ [Skoðað:1. maí 2026]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 9. nóvember 2014
breytt: 30. mars 2015


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: