Opinn dagur í Skaftholti
- Staðsetning
- Skaftholt
- Hefst
- Laugardagur 23. ágúst 2014 14:00
- Lýkur
- Laugardagur 23. ágúst 2014 17:00
Tengt efni
Opinn dagur í Skaftholti
Hinn árlegi opni dagur í Skaftholti verður á laugardaginn 23. ágúst frá kl. 14:00 til 17:00 í ár.
Að Skaftholti í Gnúpverjahreppi hefur verið stundaður lífrænn og lífefldur (bio-dynamic) búskapur undir stjórn Guðfinns Jakobssonar í yfir 30 ár. Þar hefur ennfremur verið unnið mikið og merkilegt meðferðarstarf en um 20-25 heimilismenn eru að jafnaði búsettir í Skaftholti þar sem þeir búa og vinna í nánum tengslum við náttúruna. Skaftholt er sjálfum sér nægt með búsafurðir allar.
Í kúabúi Skaftholts, þar sem mjólkin er gerilsneydd á staðnum, er einnig rekin ostagerð.
Í Skaftholti er ræktað fjölbreytt úrval grænmetis. Einnig er framleiitt nautakjöt og kindakjöt í Skafholti. Öll framleiðslan er vottuð lífræn frá Vottunarstofunni Túni.
Sjá veggmyndina fyrir Opna daginn í Skaftholti hér að neðan.

Birt:
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Opinn dagur í Skaftholti“, Náttúran.is: 20. ágúst 2014 URL: http://nature.is/d/2014/08/20/opinn-dagur-i-skaftholti/ [Skoðað:15. apríl 2026]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: 22. ágúst 2014


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: