Bláberjadagar á Súðavík
- Staðsetning
- Óstaðsett
- Hefst
- Föstudagur 22. ágúst 2014 09:00
- Lýkur
- Sunnudagur 24. ágúst 2014 18:00
Tengt efni
Bláberjadagar í Súðavík 2014
Bláberjadagar er stórskemmtileg hátið sem nú verður haldin á Súðavík í fjórða sinn. Bláberjadagar verða nú haldnir dagana 22. – 24. ágúst.
Fjölbreytt skemmtiatriði verða á boðstólum fyrir unga sem aldna. Dagskráin fyrir hátíðina verður hefðbundin en lögð er áhersla á lok berjatímabils með fjölbreyttri tónlist og keppnum í hinum ýmsu greinum sem tengjast berjunum.
Dagskráin fyrir hátíðardagana verður birt á vef Bláberjadaga þegar hún liggur fyrir.
Ljósmynd: Bláberjalyng, ljósm. Guðrún Tryggvadóttir.
Birt:
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Bláberjadagar í Súðavík 2014“, Náttúran.is: 12. ágúst 2014 URL: http://nature.is/d/2014/08/12/blaberjadagar-i-sudavik-2014/ [Skoðað:15. apríl 2026]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: