Kertafleyting á Minjasafnstjörninni
- Staðsetning
- Óstaðsett
- Hefst
- Miðvikudagur 06. ágúst 2014 22:00
- Lýkur
- Miðvikudagur 06. ágúst 2014 23:00
Tengt efni
Kertafleyting í minningu fórnarlamba kjarnorkusprengjanna
Aldrei aftur Hiroshima! Aldrei aftur Nagasaki!
Kertafleyting á Tjörninni í Reykjavík og á Akureyri miðvikudagskvöldið 6. ágúst.
Í Reykjavík verður safnast saman við suðvesturbakka Tjarnarinnar, við Skothúsveg kl. 22:30. Flotkerti verða seld á staðnum.
Á Akureyri verður einnig kertafleyting, sem þó hefst hálftíma fyrr eða kl. 22:00. Fleytt verður við Minjasafnsstjörnina.
Frá árinu 1985 hafa íslenskir friðarsinnar fleytt kertum í minningu fórnarlamba kjarnorkuárásanna á Hírósíma og Nagasakí 6. og 9. ágúst 1945 og til að leggja áherslu á kröfuna um heim án kjarnorkuvopna. Um 200 þúsund manns létust í árásunum á borgirnar Hírósíma og Nagasakí. Síðan hafa enn fleiri dáið meðal annars vegna geislavirkni af völdum sprengjanna og margir eiga enn um sárt að binda. Friðarsinnar telja mikilvægt að komandi kynslóðir dragi lærdóma af kjarnorkuárásunum svo slík vopn verði aldrei framar notuð. Saga þessi ætti að vera okkur ofarlega í huga nú þegar sífellt berast fregnir af stríðsátökum og sprengjufalli. Hernaðaryfirgangur stórvelda er enn áberandi og standa þau með beinum eða óbeinum hætti fyrir sprengjuregni á almenning víða um lönd.
Þetta er því 30. kertafleytingin hér á landi. Um er að ræða hefð sem upprunin er í Japan, en athafnir af þessu tagi fara fram víða um heim.
Fundarstjóri er Saga Garðarsdóttir leikari , Guðmundur Andri Thorson rithöfundur flytur ávarp og Grímur Helgason klarinettuleikari og Svanur Vilbergsson gítarleikari spila við Tjörnina. Aðgerðin er á vegum Samstarfshóps friðarhreyfinga, sem er samstarfsverkefni sjö friðarsamtaka og -hópa.
Að lokinni kertafleytingunni kl.23:30 verða Friðartónleikar í Fríkirkjunni. Tónlistarhópurinn Kúbus flytur þá hálftíma langa friðardagskrá með tónlist eftir Toru Takemitsu, Olivier Messiaen og Bill Evans. Aðgangur er ókeypis.
Ávarp við kertafleytinguna á Akureyri flytur Ragnheiður Skúladóttir leikhússtjóri. Samstarfshópur um frið stendur að fleytingunnni.
Birt:
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Kertafleyting í minningu fórnarlamba kjarnorkusprengjanna“, Náttúran.is: 5. ágúst 2014 URL: http://nature.is/d/2014/08/05/kertafleyting-i-minningu-fornarlamba-kjarnorkuspre/ [Skoðað:15. apríl 2026]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: