Stefnumót við Múlatorg - markaðs- og sumarstemning á Selfossi
- Staðsetning
- Fossheiði 1
- Hefst
- Laugardagur 26. júlí 2014 12:00
- Lýkur
- Sunnudagur 27. júlí 2014 17:00
Tengt efni
Stefnumót við Múlatorg
Markaðs- og sumarstemning á Selfossi
Fyrirtækið Sumarhúsið og garðurinn stendur fyrir markaðs- og sumarstemningu í Fossheiði 1 á Selfossi, þar sem Sumarhúsið og garðurinn ásamt nokkrum fyrirtækjum við Múlatorg á Selfossi brydda upp á þeirri nýjung að vera með lítinn og skemmtilegann markað um helgina, 26.-27. júlí frá kl. 12:00 - 17:00. Á sama stað verður sýning á sígrænum plöntum frá Gróðrarstöð Ingibjargar og frá Nátthaga í Ölfusi. Fyrirtækin sem standa að Stefnumóti við Múlatorg eru Sumarhúsið og garðurinn, Hannyrðabúðin, Verslunin Lindin og Evíta gjafavörur.
Á markaðnum mun kenna margra grasa, notað og nýtt, handverk ýmiskonar, skúlptúrar, skottsala, grænmeti og plöntur.
Hefur þú eitthvað sem þig langar
að kynna eða selja?
Við bjóðum listamönnum, fyrirtækjum, handverksfólki og lesendum okkar tækifæri til að slást í hópinn. Átt þú eitthvað nýtanlegt í bílskúrnum sem þú vilt losna við? Komdu á bílnum og seldu út skottinu. Ef þú hefur áhuga, hafðu þá samband við Auði í síma 824 0056 eða á netfangið audur@rit.is.
Birt:
Tilvitnun:
Auður Ottesen „Stefnumót við Múlatorg“, Náttúran.is: 23. júlí 2014 URL: http://nature.is/d/2014/07/23/stefnumot-vid-mulatorg/ [Skoðað:16. apríl 2026]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: