Vistræktarvinnustofa Paulo Bessa
- Staðsetning
- Sólheimar
- Hefst
- Sunnudagur 27. júlí 2014 09:00
- Lýkur
- Sunnudagur 27. júlí 2014 19:00
Tengt efni
Viltu taka þátt í vinnustofu í vistrækt?
Paulo Bessa heldur eins dags vinnustofu í vistrækt og visthönnun á Sólheimum sunnudaginn 27. júlí næstkomandi og er öllum boðið að taka þátt og kynna sér hugmyndafræði vistræktar.
Þátttaka kostar ekkert en þeir sem vilja leggja eitthvað til mega það. Þátttakendur taki með sér eitthvað til að leggja til sameiginlegs hádegisverðar. Annars er boðið upp á kaffi, te og kökur í boði hússins.
Vinnustofan snýst um að svara þessum spurningum og leita svara saman:
- Hvernig notum við vistrækt á Íslandi?
- Hvernig ræktum við skógargarð?
- Hvaða tvíæru plöntur henta hér?
- Sýndu mér hvernig....!
- Hvað er hægt að rækta á Íslandi?
- Gefðu mér innblástur!
- Skiptumst á fræjum!
Dagskrá vinnustofunnar verður þannig:
09:00 Morgunkaffi / Þátttakendur kynna sig
09:30 Grunngildi og viðmið vistræktar
10:00 Aðferðir, halli, útgagnspunktar, mynstur, svæði
11:00 Kaffipása
11:20 Hönnun við mismunandi loftslagsskilyrði. Hönnun á Íslandi.
13:00 Hádegisverður
14:00 Vatn og tré
15:00 Matarskógar
16:00 Jarðvegur, að rækta mat á Íslandi, tvíæringar
17:00 Kaffipása
17:30 Samfélagslegi þáttur vistræktar
18:00 Einfaldar hönnunaræfingar
18:30 Hugarflug / Samvera / Fræskipti
19:00 Garðaskoðun
Skráning hjá Paulo pcbessa@gmail.com
Ljósmynd: Paulo Bessa hlúir að hinum ýmsu plöntum sínum, ljósm. Guðrún Tryggvadóttir.
Birt:
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir, Paulo Bessa „Viltu taka þátt í vinnustofu í vistrækt?“, Náttúran.is: 18. júlí 2014 URL: http://nature.is/d/2014/07/18/viltu-taka-thatt-i-vinnustofu-i-vistraekt/ [Skoðað:30. apríl 2026]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: