Málþing um Árósarsamninginn á Íslandi
- Staðsetning
- Sturlugata 7
- Hefst
- Þriðjudagur 27. maí 2014 12:00
- Lýkur
- Þriðjudagur 27. maí 2014 13:30
Tengt efni
Málþing um Árósarsamninginn á Íslandi: Framkvæmd, reynsla og nauðsynlegar úrbætur
Hvað færði Árósarsamningurinn okkur? Notar almenningur réttindi sín í umhverfismálum? Standa umhverfisverndarsamtök sig? Hvernig tekst stjórnvöldum upp - veita þau réttindin?
Landvernd efnir til hádegismálþings í stofu 132 í Öskju Náttúrufræðahúsi Háskóla Íslands, þriðjudaginn 27. maí n.k. um framkvæmd árósasamningins á Íslandi, reynslu síðustu tveggja ára og nauðsynlegar úrbætur. Málþingið hefst kl. 12 og lýkur 13:30.
Fjallað verður um hvernig tekist hefur til við innleiðingu samningsins og hvað reynsla undanfarinna tveggja ára getur kennt okkur um nauðsynlegar úrbætur. Litið verður sérstaklega á nýlega skýrslu Landverndar til eftirlitsnefndar Árósasamningsins um innleiðingu samningsins á Íslandi, þróunar í Evrópu og kærumál til ESA, Eftirlitsstofnunar EFTA, sem tengjast umhverfislöggjöf á Íslandi.
Dagskrá:
Frá Árósum til Gálgahrauns - Sif Konráðsdóttir, lögfræðingur.
Skuggaskýrsla Landverndar um framkvæmd Árósasamningins - Guðmundur Ingi Guðbrandsson, framkvæmdastjóri Landverndar
Kvörtun til ESA vegna innleiðingar umhverfislöggjafar - Ragnheiður Elfa Þorsteinsdóttir, lögfræðingur
Um Árósarsamninginn:
Árósarsamningur var undirritaður 25. júní 1998 en fullgiltur af Íslands hálfu í október 2011. Hann veitir mikilvæg og víðtæk réttindi á sviði umhverfismála. Samningnum er ætlað að tryggja aðkomu almennra borgara og samtaka þeirra að ákvörðunum er hafa áhrif á umhverfið. Jafnframt á hann að tryggja víðtækan aðgang almennings að gögnum um hvers komar umhverfismál. Loks er samningnum ætlað að tryggja rétt til að fá ákvarðanir endurskoðaðar fyrir dómstólum og eftir atvikum með stjórnsýslukærum. Umhverfisverdarsmtökum er ætlað stórt hlutverk í framfylgd þessara réttinda.
Sjá Skuggaskýrslu Landverndar um framkvæmd Árósarsamningsins.
Ljósmynd: Grænir fánar í Gálgahrauni haustið 2013, ljósm. af vef Hraunavina.
Birt:
Tilvitnun:
Guðmundur Ingi Guðbrandsson „Málþing um Árósarsamninginn á Íslandi: Framkvæmd, reynsla og nauðsynlegar úrbætur“, Náttúran.is: 25. maí 2014 URL: http://nature.is/d/2014/05/25/malthing-um-arosasamningurinn-islandi-framkvaemd-r/ [Skoðað:21. apríl 2026]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: 1. júlí 2014


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: