Stofnfundur Fair Trade samtaka á Íslandi
- Staðsetning
- Perlan Öskjuhlíð
- Hefst
- Laugardagur 10. maí 2014 11:00
- Lýkur
- Laugardagur 10. maí 2014 13:00
Tengt efni
Stofnfundur Fair Trade samtaka á Íslandi

Við eigum að spyrja spurninga og gera kröfur!
Stofnfundur Fair Trade samtakanna á Íslandi verður haldinn á kaffiteríunni í Perlunni, þann 10. maí kl. 11:00 en 10. maí er alþjóðlegi Fair Trade dagurinn haldinn hátíðlegur um allan heim.
Við tökum þátt í baráttunni fyrir sanngjörnum viðskiptum við þróunarlöndin og styðjum um leið þá sem vilja gera vel. Fair Trade er einstakt samband milli framleiðenda og neytenda, við neytendur getum haft heilmikil áhrif.
Hægt að skrá sig á atburðinn á fésbókinni; Fair Trade á Íslandi og þar má finna nánari upplýsingar.
Allir velkomnir!
Grafík: Fair Trade deild á Náttúrumarkaði, Guðrún Tryggvadóttir og Signý Kolbeinsdóttir.
Birt:
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir, Björg Eggertsdóttir „Stofnfundur Fair Trade samtaka á Íslandi “, Náttúran.is: 7. maí 2014 URL: http://nature.is/d/2014/05/07/stofnfundur-fair-trade-samtaka-islandi/ [Skoðað:15. apríl 2026]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: