Konur í tækni funda um sjálfbærni
- Staðsetning
- Óstaðsett
- Hefst
- Þriðjudagur 15. apríl 2014 17:30
- Lýkur
- Þriðjudagur 15. apríl 2014 19:00
Tengt efni
Konur í tækni
Félagið Konur í tækni heldur fund í dag og verður fundurinn helgaður sjálfbærni í tilefni Græns apríls. Markmiðið er að gefa gestum innsýn inn í atvinnulífið og að sýna hvernig samfélagsábyrgð getur gefið fyrirtækjum samkeppnisforskot. Að þessu sinni er fundurinn haldinn í höfuðstöðvum GreenQloud klukkan 17:30 þriðjudaginn 15. apríl.
Á viðburðinu á Facebook segir:
Vissir þú að upplýsingatækniiðnaðurinn er kominn fram úr flugiðnaðinum í útlosun koltvíoxíðs? Þetta er vegna sífellt vaxandi magns gagna á hverju ári sem við erum öll ábyrg fyrir.
Apríl er mánuður Jarðar og sem fyrirtæki sem leggur mikið í að upplýsa markaðinn um mikilvægi umhverfisvænnar upplýsingaætækni viljum við hafa næsta viðburð Kvenna í tækni um sjálfbærni á Íslandi.
Komdu og fáðu að vita meira um íslensk fyrirtæki og stefnu þeirra í málum sjálfbærni og hvernig það að hafa fleiri konur í stjórn fyrirtækja getur haft áhrif á stefnu fyrirtækja í sjálfbærni. Það væri einnig gaman að heyra hvað þú og/eða þitt fyrirtæki eru að gera í tengslum við sjálfbærni almennt en einnig á degi jarðar þann 22. Apríl.
Dagskrá
17:30 Velkomin! – Sushi og spjall
17:45 Halldóra Hreggviðsdóttir – Hvernig geta fyrirtæki notað aðferðir samfélagsábyrgðar til að öðlast samkeppnisforskot?
18:10 Guðný Reimarsdóttir – Tækifæri fyrir konur í stjórnun tæknifyrirtækja og fyrirtækja sem sækja á erlenda markaði.
18:35 Auður Alfa Ólafsdóttir – Hvernig hefur fjöldi kvenna í stjórnunarstöðum í fyrirtækjum áhrif á umhverfisstefnu og stefnu í samfélagsábyrð.
18:45 Umræður og styrking tengslanets
Ljósmynd: Umfeðmingu, ljósm. Guðrún Tryggvadóttir.
Birt:
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Konur í tækni“, Náttúran.is: 15. apríl 2014 URL: http://nature.is/d/2014/04/15/konur-i-taekni/ [Skoðað:25. apríl 2026]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: