}

Saman gegn sóun - sýning í Perlunni

Staðsetning
Perlan Öskjuhlíð
Hefst
Föstudagur 09. september 2016 14:00
Lýkur
Laugardagur 10. september 2016 17:30
til baka sjá mánuð

Tengt efni

Appið Húsið skoðað í spjaldtölvu.Föstudaginn 9. september nk. verður sýning undir heitinu „Saman gegn sóun 2016“ haldin í Perlunni auk þess sem samnefnd ráðstefna verður haldin í Nauthóli.

Sýningin „Saman gegn sóun“ opnar föstudaginn 9. september kl. 14:00 og er opin til kl. 18:00. Á laugardeginum 10. september opnar sýningin kl. 12:00 og lýkur kl. 17:30. Aðgangur er ókeypis.

Umhverfisstofnun og FENÚR hafa veg og vanda að ráðstefnunnni og sýningunni en Náttúran.is tekur þátt í sýningunni og kynnir Húsið og Endurvinnslukortið.

Aðrir þátttakendur eru Umhverfisstofnun, Reykjavíkurborg,  SORPA bs., Endurvinnslan, Gámaþjónustan, Íslenska gámafélagið, Fura, Grænir skárar, Molta, Hópsnes, Lífdísill, Ver, Fríorka, Resource Iceland, ON, og Orkusalan.

Sjáumst í Kringlunni!

 

Birt:
8. september 2016
Uppruni:
Náttúran.is
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Saman gegn sóun - sýning í Perlunni“, Náttúran.is: 8. september 2016 URL: http://nature.is/d/2016/09/08/saman-gegn-soun-syning-i-perlunni/ [Skoðað:20. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Nýtt efni:

Veður frá windyty.com

Skilaboð: