Ólafsdalshátíðin 2016
- Staðsetning
- Óstaðsett
- Hefst
- Laugardagur 06. ágúst 2016 11:00
- Lýkur
- Laugardagur 06. ágúst 2016 18:00
Tengt efni
Ólafsdalshátið 6. ágúst 2016
Verið velkomin á Ólafsdalshátíðina sem haldin verður nk. laugardag þ. 6. ágúst.
Ókeypis aðgangur og skemmtiatriði
11:00-12.20 Ferð með nýuppgerðu rútunni Soffíu II (Bedford árgerð 1940) í kringum Gilsfjörð.
Leiðsögumaður: Sveinn Ragnarsson á Svarfhóli í Reykhólasveit. Mæting kl. 10.45.
11.00 Sala á miðum í Ólafsdalshappdrættinu hefst.
1. vinningur: flugmiðar fyrir tvo að eigin vali til Evrópu með Icelandair.
Fjöldi annarra góðra vinninga. Miðaverð 500 kr.
12.00-17.00 Ólafsdalsmarkaður, grænmeti og sýningar í skólahúsinu:
Lífrænt vottað Ólafsdalsgrænmeti, Erpsstaðaís, kræklingur frá Nesskel.
Fjölbreyttur matar- og handverksmarkaður.
Ólafsdalsskólinn 1880-1907: fastasýning á 1. hæð.
Dalablóð: málverkasýning Guðrúnar Tryggvadóttur á 2. hæð.
13.00 HÁTÍÐARDAGSKRÁ
Kynnir: Ómar Ragnarsson, skemmtikraftur með meiru.
Erindi: Þorsteinn Sæmundsson, alþingismaður og fyrrverandi kaupfélagsstjóri Kaupfélags Saurbæinga.
Tónlist: Drengjakór íslenska lýðveldisins.
Erindi: Dalablóð; sýning um formæður mínar úr Dölunum: Guðrún Tryggvadóttir, listakona.
Erindi: Grasið og ljárinn; hugleiðingar um ættboga Ólafsdalshjóna: Sr. Gunnar Kristjánsson, prófessor emerítus.
Tónlist: Drengjakór íslenska lýðveldisins.
Leiklist: Lína langsokkur (Ágústa Eva Erlendsdóttir) skemmtir börnum 0-99 ára og gefur sér tíma með þeim.
16.30 Dregið í Ólafsdalshappdrættinu.
Hestar teymdir undir börnum. Rútan Soffía II og önnur virðuleg farartæki til sýnis.
Kaffi, djús, kleinur og flatkökur á sanngjörnu verði.
ATH: netsamband er stopult í Ólafsdal og því er gestum ráðlagt að hafa með sér lausafé til að versla og taka þátt í happdrætti.
Birt:
Tilvitnun:
Rögnvaldur Guðmundsson „Ólafsdalshátið 6. ágúst 2016“, Náttúran.is: 2. ágúst 2016 URL: http://nature.is/d/2016/08/02/olafsdalshatid-6-agust-2016/ [Skoðað:23. apríl 2026]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: