Ástand íslenska lómastofnsins
- Staðsetning
- Borgartún 18
- Hefst
- Mánudagur 18. apríl 2016 20:30
- Lýkur
- Mánudagur 18. apríl 2016 22:00
- sjá viðburð
Tengt efni
Ástand íslenska lómastofnsins

Mánudaginn 18. apríl kl.20:30 mun Ævar Petersen fuglafræðingur halda fræðslufund um lóminn í sal Arion banka Borgartúni 18 sem ber heitið ástand íslenska lómastofnsins.
Rannsóknir hafa verið stundaðar á lómum frá árinu 2006 en fyrir þann tíma hafði þessi tegund vakið litla athygli til rannsókna hér á landi. Upphaflega voru settir ljósritar á lóma en einnig fylgst með ástandi stofnsins og varpárangri. Jafnframt hefur upplýsingum verið safnað um varpstaði lóma í landinu.
Í fyrirlestrinum verður þó mest fjallað um samanburð milli tveggja svæði í landinu, á Mýrum á Vesturlandi og Núpasveit – V-Sléttu á Norðausturlandi, sem staðið hefur yfir frá árinu 2012. Fylgst hefur verið með fjölda óðalsbundinna para, varpárangri, fæðu unga o.fl. Niðurstöður eru m.a. túlkaðar með hliðsjón af umræðunni um loftlagsbreytingar og viðkomubrest hjá sandsílum. Ýmsir aðrir umhverfisþættir hafa áhrif á fjölda, útbreiðslu og varp lóma, t.d. afrán refa, sumarþurrkar og himbrimar.
Fundurinn hefst stundvíslega kl. 20:30 og er öllum opin svo lengi sem húsrúm leyfir. Aðgangur er ókeypis fyrir félaga í Fuglavernd en aðgangseyrir er 500 krónur fyrir aðra.
Meðfylgjandi ljósmynd tók Ævar við Nýlenduvatn á Mýrum, Mýrasýslu, 25. maí 2015 en þetta er lómur á hreiðri.
Birt:
Tilvitnun:
Fuglavernd „Ástand íslenska lómastofnsins“, Náttúran.is: 14. apríl 2016 URL: http://nature.is/d/2016/04/14/astand-islenska-lomastofnsins/ [Skoðað:16. apríl 2026]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: