Á að fórna náttúruperlum fyrir ósjálfbærar jarðgufuvirkjanir?
- Staðsetning
- Norræna húsið Sturlugata 5
- Hefst
- Miðvikudagur 06. apríl 2016 16:30
- Lýkur
- Miðvikudagur 06. apríl 2016 19:00
Tengt efni
Á að fórna náttúruperlum fyrir ósjálfbærar jarðgufuvirkjanir?
Náttúruverndarsamtök Suðvesturlands heldur málstefna undir yfirstögninni „Á að fórna náttúruperlum fyrir ósjálfbærar jarðgufuvirkjanir?“ í Norræna húsinu miðvikudaginn 6. apríl nk. kl. 16:30.
Þar verður m.a. fjallað um gildi landslags á Reykjanesi og hve framkvæmdir geta spillt upplifun þess sem þar vill njóta náttúrunnar í sem upprunalegastri mynd. Sýndar verða myndir af ýmsum náttúrperlum svæðisins sem sumum hverjum verður e.t.v gjörbreytt á næstunni. Fjallað verður um hugsanlegar afleiðingar af nýtingu háhitasvæða til raforkuframleiðslu og takmörk varanleika þeirra.
Efnisflytjendur hafa, hver á sínu sviði, rannsakað þessi mál vandlega. Benda má á að í tímaritinu Náttúrufræðingurinn 82. árg. 1.- 4. hefti 2012 er greinin „Eðli og endurnýjanleiki jarðvarmakerfa“ eftir Stefán Arnórsson. Þar leiðir Stefán líkur að því að skoða megi háhitasvæði sem námur en ekki óendanlegar orkulindir einkum ef ekki er gætt hófs í nýtingu.
Dagskrá málstefnunnar verður þessi:
- Kl. 16:30 Gildi landslags á Reykjanesi - Höfundar og fyrirlesarar Guðbjörg R. Jóhannesdóttir, aðjúnkt við LHÍ og nýdoktor við Heimspekistofnun HÍ. og Edda R. H. Waage, lektor í land- og ferðamálafræði, Líf- og umhverfisvísindadeild HÍ.
- Kl. 17:15 Náttúruperlur í hættu á Reykjanesskaga - Ellert Grétarsson, náttúruljósmyndari, sýnir myndefni frá Eldvörpum og Krýsuvík.
- Kl. 17:55 Þróun háhitakerfa og umhverfisáhrif nýtingar - Höfundur og fyrirlesari dr. Stefán Arnórsson jarðhitasérfræðingur og fv. prófessor við HÍ.
- Kl. 18:40 Pallborð þar sem flytjendur svara spurningum fundargesta.
Salurinn verður opinn frá kl. 16:00 og gert ráð fyrir að málstefnunni verði lokið kl. 19:10.
Fundarstjóri: Eydís Franzdóttir./Aðgangur ókeypis og allir velkomnir.
Stjórn NSVE hvetur félagsmenn til að mæta.
Birt:
Tilvitnun:
Náttúruverndarsamtök Suðvesturlands „Á að fórna náttúruperlum fyrir ósjálfbærar jarðgufuvirkjanir?“, Náttúran.is: 28. mars 2016 URL: http://nature.is/d/2016/03/27/ad-forna-natturuperlum-fyrir-osjalfbaerar-jardgufu/ [Skoðað:14. apríl 2026]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 27. mars 2016


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: