Tilnefningar til Kuðungsins
- Staðsetning
- Óstaðsett
- Hefst
- Fimmtudagur 25. febrúar 2016 00:00
- Lýkur
- Miðvikudagur 23. mars 2016 00:00
Tengt efni
Óskað eftir tilnefningum til Kuðungsins 2015

Úthlutunarnefnd á vegum umhverfis- og auðlindaráðuneytisins óskar eftir tilnefningum um fyrirtæki eða stofnun, sem vegna verka sinna og athafna á síðasta ári, er þess verðug að hljóta umhverfisviðurkenninguna Kuðunginn fyrir árið 2015.
Óskað er eftir því að stutt greinargerð fylgi með tilnefningunni. Fyrirtæki og stofnanir geta hvort heldur tilnefnt sig sjálf eða verið tilnefnd af öðrum.
Kuðungurinn er viðurkenning á framlagi fyrirtækja og stofnana til umhverfismála sem veitt er árlega. Umhverfisráðuneytið veitti Kuðunginn fyrst árið 1995, þá fyrir starf á árinu 1994. Þau fyrirtæki sem hafa hlotið viðurkenninguna hingað til eru:
2014 – Landspítalinn
2013 – Kaffitár
2012 – Íslenskir fjallaleiðsögumenn
2011 – Náttúran.is
2010 – Farfuglaheimilin í Reykjavík
2009 – Oddi
2008 – Íslenska Gámafélagið
2007 – Sólarræsting
2006 – Bechtel
2005 – Línuhönnun
2004 – Orkuveita Reykjavíkur
2003 - Hópbílar
2002 – Árvakur
2000 – Íslenska álfélagið
1999 – Borgarplast
1998 – Fiskverksmiðja Haraldar Böðvarssonar á Akranesi
1997 – Olíufélagið
1996 – Fiskverkun KEA í Hrísey
1995 – Prentsmiðja Morgunblaðsins
1994 – Umbúðamiðstöðin, Gámaþjónustan og Kjötverksmiðjan Goði
Sjá Kuðungshafa hér á Grænum síðum.
Í úthlutunarnefnd Kuðungsins fyrir árið 2014 sitja Ásborg Arnþórsdóttir formaður, skipuð af umhverfis- og auðlindaráðherra, Kristinn Þorsteinsson fyrir félagasamtök á sviði umhverfismála, Heimir Janusarson fyrir Alþýðusamband Íslands og Sigurður Ágústsson fyrir Samtök atvinnulífsins.
Tillögur skulu berast umhverfis- og auðlindaráðuneytinu eigi síðar en miðvikudaginn 23. mars n.k. merktar ,,Kuðungurinn” á póstfangið postur@uar.is eða með pósti í umhverfis- og auðlindaráðuneytið, Skuggasundi 1, 101 Reykjavík.
Birt:
Tilvitnun:
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið „Óskað eftir tilnefningum til Kuðungsins 2015“, Náttúran.is: 3. mars 2016 URL: http://nature.is/d/2016/03/03/oskad-eftir-tilnefningum-til-kudungsins-2015/ [Skoðað:29. apríl 2026]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: