Hrafnaþing: Framandi tegundir í fjalllendi og á hálendi Íslands
- Staðsetning
- Urriðaholtsstræti 6
- Hefst
- Miðvikudagur 03. febrúar 2016 15:15
- Lýkur
- Miðvikudagur 03. febrúar 2016 16:00
Tengt efni
Hrafnaþing – Framandi tegundir í fjalllendi og á hálendi Íslands
Pawel Wasowicz, grasafræðingur hjá Náttúrufræðistofnun Íslands, flytur erindi sitt “Non-native species in the flora of Icelandic highlands and mountains“ á Hrafnaþingi miðvikudaginn 3. febrúar kl. 15:15.
Athugið að erindið verður flutt á ensku.
Í erindinu verður fjallað um þau vandamál sem fylgja slæðingum og ílendum slæðingum í fjalllendi og á hálendi Íslands. Leitað verður svara við spurningum eins og hve margar tegundir slæðinga finnast á hálendissvæðum, hvernig dreifast þær og hvar eru þær algengastar? Einnig verður í stuttu máli rætt um framtíð íslensku hálendisflórunnar.
Hrafnaþing er haldið í húsakynnum Náttúrufræðistofnunar að Urriðaholtsstræti 6-8 í Garðabæ, í Krummasölum á 3. hæð, kort
Hrafnaþing er opið öllum. Verið velkomin!
Vinsamlega athugið Náttúrufræðistofnun Íslands er grænn vinnustaður og beinir þeim tilmælum til allra sem hafa tök á að samnýta ferðir og nota vistvænan ferðamáta.
Útdráttur úr erindinu:
Almennt séð teljast framandi tegundir óboðnir gestir í náttúru landsins. Fjölmargar rannsóknir hafa sýnt fram á að þær eru meiri ógn við líffræðilega fjölbreytni heldur en samanlögð áhrif mengunar, landbúnaðar og sjúkdóma. Það sem meira er, þá fylgir þeim gríðarlegur kostnaður. Sumar aðfluttar tegundir, eins og tegundir sem eru ræktaðar til matar og gæludýr, eru til mikils gagns á meðan aðrar geta valdið miklum skaða. Aðfluttar háplöntutegundir spila sérstakt hlutverk vegna þess hve þær eru mikilvægar í vistkerfum landsins.
Áhrif mannsins á háplöntuflóru Íslands má rekja aftur til 9. aldar þegar norrænir landnemar settust hér að og síðan þá hefur gróður landsins breyst gríðarlega. Vaxandi áhrif mannsins og loftslagsbreytingar á „litlu ísöld“ (1600–1900) leiddu til verulegrar breytingar á gróðurþekju, aðallega vegna rofs og eyðimerkurmyndunar. Hins vegar hélst samsetning háplöntuflórunnar nokkuð vel þar til nýlega, fyrst og fremst vegna harðneskjulegs veðurfars og einangrunar landsins.
Nýjustu rannsóknir á slæðingum á Íslandi sýna að það er marktækur munur á samsetningu gróðurs eftir svæðum. Þannig er mikill fjöldi aðfluttra tegunda á láglendi á meðan þær sjást varla í fjalllendi og hálendissvæðum. Á Íslandi telst land sem er yfir 400 m hæð yfir sjávarmáli til fjalllendis eða hálendis og á það við um 40% landsins. Íslenska hálendið telst til nokkurra af fáum óspilltum svæðum í Evrópu vegna þess hve afskekkt það er og loftslag kalt. Miðhálendið er talið stærsta svæðið í Evrópu, sunnan við heimskautsbaug, sem búseta mannsins hefur aldrei verið varanleg. Nýlegar rannsóknir hafa leitt í ljós að þessi svæði gegna lykilhlutverki í að viðhalda náttúrulegu dreifingarmynstri margra innlendra plantna.
Í fyrirlestrinum verður fjallað um þau vandamál sem fylgja slæðingum og ílendum slæðingum á hálendi Íslands og í fjalllendi. Leitað verður svara við spurningum eins og hve margar tegundir slæðinga finnast á hálendissvæðum, hvernig dreifast þær og hvar eru þær algengastar? Einnig verður í stuttu máli rætt um framtíð íslensku hálendisflórunnar.
Birt:
Tilvitnun:
Náttúrufræðistofnun Íslands - NÍ - Garðabæ „Hrafnaþing – Framandi tegundir í fjalllendi og á hálendi Íslands“, Náttúran.is: 1. febrúar 2016 URL: http://nature.is/d/2016/02/01/hrafnathing-framandi-tegundir-i-fjalllendi-og-hale/ [Skoðað:28. apríl 2026]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: