Garðfuglahelgin
- Staðsetning
- Óstaðsett
- Hefst
- Föstudagur 29. janúar 2016 00:00
- Lýkur
- Sunnudagur 31. janúar 2016 23:59
Tengt efni
Garðfuglahelgin 2016
Árlega fitjar Fuglavernd upp á talningu garðfugla yfir eina helgi. Nú eins og venjulega er um að ræða síðustu helgina í janúar.
Framkvæmdin er einföld. Það eina sem þátttakandi þarf að gera er að fylgjast með garði í klukkutíma föstud. 29. jan., laugard. 30. jan., sunnud. 31. jan. eða mánud. 1. feb. - einhverjum garði. Skrá hjá sér hvaða fugla viðkomandi sér í garðinum og mesta fjölda af hverri tegund á meðan athugunin stendur yfir.
Upplýsingar um garðfuglategundir er að finna á garðfuglavefnum Fuglaverndar á fuglavernd.is
Frekari upplýsingar um talninguna má finna á fuglavernd.is
Áhugamenn um fugla eru hvattir til að taka þátt í garðfuglatalningunni, þetta er einfalt og skemmtilegt verkefni.
Umsjónarmenn garðfuglaskoðunarinnar, þeir Ólafur Einarsson (s.8999744) og Örn Óskarsson (s.8469783), veita svo gjarnan frekari upplýsingar.
Birt:
Tilvitnun:
Hólmfríður Arnardóttir „Garðfuglahelgin 2016“, Náttúran.is: 29. janúar 2016 URL: http://nature.is/d/2016/01/29/gardfuglahelgin-2016/ [Skoðað:27. apríl 2026]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: