Varðliðar umhverfisins - móttaka verkefna
- Staðsetning
- Óstaðsett
- Hefst
- Fimmtudagur 28. janúar 2016 00:00
- Lýkur
- Föstudagur 01. apríl 2016 00:00
Tengt efni
Óskað eftir verkefnum frá varðliðum umhverfisins
Óskað er eftir verkefnum til þátttöku í hinni árlegu verkefnasamkeppni, Varðliðum umhverfisins. Þetta er í 10. sinn sem samkeppnin er haldin meðal grunnskólabarna í 5. til 10. bekk. Markmið keppninnar er að hvetja ungt fólk til góðra verka í umhverfisvernd, vekja athygli á sýn ungs fólks á umhverfismál og kalla eftir leiðsögn yngri kynslóðarinnar á því sviði.
Að verkefnasamkeppninni standa umhverfis- og auðlindaráðuneytið, Landvernd og Náttúruskóli Reykjavíkur.
Skilafrestur verkefna er til 1. apríl 2016 og skal senda þau á netfangið postur@uar.is eða í bréfpósti á umhverfis- og auðlindaráðuneytið, Skuggasundi 1, 101 Reykjavík, merkt ,,Varðliðar umhverfisins”. Dómnefnd skipuð fulltrúum umhverfis- og auðlindarráðuneytisins, Landverndar og Náttúruskóla Reykjavíkur velur úr innsendum verkefnum og tilnefnir Varðliða umhverfisins.
Verkefnin mega vera af fjölbreyttum toga, t.d. ritgerðir, ljósmyndir, ljóð, veggspjöld, bæklingar, myndbönd og hljóðverk. Í stuttu máli er frjálst að skila inn verkefnum í hvaða formi sem er svo lengi sem þau eru sannarlega unnin af nemendunum sjálfum og umfjöllunarefni þeirra eru umhverfismál í víðum skilningi þess orðs.
Samkeppnin er kjörið tækifæri fyrir nemendur og kennara að koma á framfæri verkefnum sem þeir fyrrnefndu hafa þegar unnið í skólanum því ekki er skilyrði að verkefnin séu sérstaklega unnin fyrir samkeppnina.
Umhverfis- og auðlindaráðherra, Sigrún Magnúsdóttir, útnefnir Varðliða umhverfisins við hátíðlega athöfn á Degi umhverfisins 25. apríl en auk þess fá varðliðarnir glaðning í formi upplifunar af einhverju tagi í samráði við skóla þeirra. Allir þátttakendur í samkeppninni fá viðurkenningarskjal.
Í fyrra voru nemendur í Lágafellsskóla í Mosfellsbæ útnefndir Varðliðar umhverfisins fyrir margþætt verkefni sem spönnuðu allt frá gerð myndbanda, fréttaþátta, heimildamynda og tónlistar til ítarlegrar áætlunar um það hvernig heimili viðkomandi nemanda gæti bætt sig í sjálfbærum lífsstíl. Loks var áskorun nemendanna um úrbætur í umhverfismálum tekin fyrir hjá umhverfisnefnd bæjarins.
Nánari upplýsingar um keppnina eru á heimasíðu umhverfis- og auðlindaráðuneytisins.
Birt:
Tilvitnun:
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið „Óskað eftir verkefnum frá varðliðum umhverfisins“, Náttúran.is: 29. janúar 2016 URL: http://nature.is/d/2016/01/29/oskad-eftir-verkefnum-fra-vardlidum-umhverfisins/ [Skoðað:15. apríl 2026]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: