Skráningar fyrir ræktunarreiti í Seljagarði
- Staðsetning
- Óstaðsett
- Hefst
- Miðvikudagur 27. janúar 2016 00:00
- Lýkur
- Fimmtudagur 05. maí 2016 23:00
Tengt efni
Opið fyrir skráningar í grenndargarðinn Seljagarð sumarið 2016
Enn á ný hefst ræktun í samfélagslega grenndargarðinum og gróðurhúsinu Seljagarði við Jökulsel í Seljahverfi.
Í boði eru bæði gróðurhúsarreitir og útireitir fyrir áhugasama ræktendur. ÓKEYPIS þátttaka í sameiginilega hluta. Hægt er að taka frá lítil beð fyrir einkaræktun gegn umhirðu á sameiginlegu svæðum eða smávægilegu gjaldi.
Endilega hafið samband og gangið frá skráningu. Byrjendur og nýgræðingar í ræktun eru velkomnir.
Fræ og forræktun er á eigin ábyrgð en aðstoð og ráðgjöf er í boði fyrir þá sem að sækast eftir henni.
Skráning á seljagardur109@gmail.com
útireitur: 4800 kr, úti og innireitur 6000 kr, innireitur 3000 kr, tilraunasvæði úti 2000 kr.
Lokað er fyrir skráningu í gróðurhúsinu 5. maí.
Birt:
Tilvitnun:
Náttúran.is „Opið fyrir skráningar í grenndargarðinn Seljagarð sumarið 2016“, Náttúran.is: 27. janúar 2016 URL: http://nature.is/d/2016/01/27/opid-fyrir-skraningar-i-grenndargardinn-seljagard-/ [Skoðað:28. apríl 2026]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: