Kallað eftir keppnisliðum á Ecotrophélia
- Staðsetning
- Óstaðsett
- Hefst
- Mánudagur 11. janúar 2016 23:59
- Lýkur
- Sunnudagur 31. janúar 2016 23:59
Tengt efni
Ecotrophélia – Keppni í nýsköpun vistvænna matvæla 2016 kallar eftir keppnisliðum
Ecotrophelia Ísland er keppni meðal háskólanemenda í þróun vistvænna matvæla. Keppnin felst í að þróa markaðshæf, vistvæn matvæli eða drykki. Keppnin er haldin árlega í síðari hluta maí og er nú kallað eftir keppnisliðum.
Nú stendur yfir skráning nemendahópa sem vilja taka þátt í keppninni í ár. Í hverjum hópi mega vera tveir til tíu nemendur, skráðir í nám á háskólastigi. Þeir mega vera úr hvaða námsbraut sem er en æskilegt að einhver í hópnum hafi þekkingu á matvælum. Nemendur mega ekki vera orðnir 35 ára. Sigurliðið hlýtur vegleg verðlaun og rétt til að taka þátt í alþjóðlegri keppni, Ecotrophelia Europe http://www.ecotrophelia.eu/ í París í október.
Þegar hóparnir hafa skráð sig til leiks fá þeir aðgang að kennsluefni á netinu sem leiðbeinir þeim um alla þætti sem viðkoma þróunarferlinu. Hópunum verður útveguð aðstaða til verklegra prófana.
Frestur til að skila skráningu er til 31. janúar 2016. Skráning sendist á netfangið: gunnthorunn.einarsdottir@matis.is.
Birt:
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Ecotrophélia – Keppni í nýsköpun vistvænna matvæla 2016 kallar eftir keppnisliðum“, Náttúran.is: 25. janúar 2016 URL: http://nature.is/d/2016/01/25/ecotrophelia-keppni-i-nyskopun-vistvaena-matvaela-/ [Skoðað:14. apríl 2026]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: