Málstofa um listir og menntun til sjálfbærni
- Staðsetning
- Laugarnesvegur 91
- Hefst
- Sunnudagur 10. janúar 2016 13:00
- Lýkur
- Sunnudagur 10. janúar 2016 15:00
Tengt efni
Málstofa um listir og menntun til sjálfbærni
Sunnudaginn 10. janúar kl 13:00-15:00 verður haldið málþing á vegum Rannsóknarstofu í listkennslufræðum, rannsóknarhóps um menntun til sjálfbærni í Listaháskóla Íslands, Laugarnesvegi 91.
Valgerður Hauksdóttir, myndlistarmaður mun halda stutta kynningu á doktorsverkefni sínu þar sem hún skoðar menntun til sjálfbærni og sjálfbæra efnisnotkun í listsköpun.
Aðal áhersla málþingsins verður að finna út úr því hverjar áherslur rannsóknarhópsins um listir og menntun til sjálfbærni ætti að vera.
Skipt verður í hópa út frá áhugasviðum hvers og eins.
Upp hafa komið tillögur að umræðum:
- Þróunarverkefni í grunnskólum.
- Þróunarverkefni í framhaldsskólum.
- Samfélagstengd verkefni.
- Útgáfa t.d. bók, greinar, photo essay o.s.frv.
- Sýningar.
- Vinnustofur og endurmenntunarnámskeið.
- Ráðstefnur t.d. Hugarflug og Menntakvika.
- Styrkumsóknir.
Birt:
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir, Ásthildur Björg Jónsdóttir „Málstofa um listir og menntun til sjálfbærni“, Náttúran.is: 4. janúar 2016 URL: http://nature.is/d/2016/01/04/malstofa-um-listir-og-menntun-til-sjalfbaerni/ [Skoðað:30. apríl 2026]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: