Vöktun mosaþembugróðurs
- Location
- Urriðaholtsstræti 6
- Start
- Wednesday 09. April 2014 15:15
- End
- Wednesday 09. April 2014 16:15
Related content
Vöktun mosaþembugróðurs við Hellisheiðarvirkjun og Nesjavallavirkjun
Ágústa Helgadóttir líffræðingur flytur erindið Vöktun mosaþembugróðurs við Hellisheiðarvirkjun og Nesjavallavirkjun á Hrafnaþingi miðvikudaginn 9. apríl, 2014 kl. 15:15.. Meðhöfundar eru Ásta Eyþórsdóttir og Sigurður H. Magnússon Náttúrufræðistofnun Íslands.
Eftir að jarðvarmavirkjanir á Nesjavöllum og við Hellisheiði tóku til starfa varð vart við nokkrar gróðurskemmdir í nágrenni þeirra. Að ósk Orkuveitu Reykjavíkur hóf Náttúrufræðistofnun Íslands sumarið 2012 vöktun á gróðri í nágrenni beggja virkjananna. Tilgangur vöktunarinnar er að kanna áhrif virkjananna á gróður í mosaþembum og rannsaka breytingar með tíma.
Til þess að meta ástand og mismunandi skemmdir á mosa var sýnum safnað af mosanum hraungambra (Racomitrium lanuginosum) í nágrenni virkjananna og þau skoðuð á rannsóknarstofu. Í kjölfarið var útbúinn sérstakur lykill til greiningar á öllum helstu útlitseinkennum mosans, bæði heilbrigðum og skemmdum, alls 10 flokkar. Tíðni háplantna, fléttna, mosa og mismunandi mosaflokka var metin í samtals 30 vöktunarreitum sem staðsettir voru í mismunandi stefnu og fjarlægð frá báðum jarðvarmavirkjununum.
Skemmdir á mosa voru mjög misjafnar eftir stöðum, þó mun meiri við Nesjavallavirkjun en Hellisheiðarvirkjun. Þær eru að hluta raktar til mengunar frá virkjununum. Ekki kom fram neitt ákveðið mynstur eftir fjarlægð eða stefnu. Mestu skemmdirnar voru bundnar við einstaka reiti sem voru ýmist næst virkjununum eða í 4 km fjarlægð.
Í erindinu verður fjallað nánar um verkefnið m.a. ræddar tilgátur og spár um þróun skemmda í mosaþembum við virkjanirnar.
Ljósmynd: Mosagróður á heiði, Guðrún Tryggvadóttir.
Birt:
Tilvitnun:
Náttúrufræðistofnun Íslands - NÍ - Garðabæ „Vöktun mosaþembugróðurs við Hellisheiðarvirkjun og Nesjavallavirkjun“, Náttúran.is: April 8, 2014 URL: http://nature.is/d/2014/04/08/voktun-mosathembugrodurs-vid-hellisheidarvirkjun-o/ [Skoðað:Dec. 8, 2025]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: