Verndum hálendið - Virkjum sköpunarkraftinn
- Staðsetning
- Austurvöllur
- Hefst
- Mánudagur 16. nóvember 2015 17:00
- Lýkur
- Mánudagur 16. nóvember 2015 18:00
Tengt efni
Verndum hálendið - Virkjum sköpunarkraftinn - ATH! Breytt tímasetning

Mótmælunum sem áttu að vera á Austurvelli laugardaginn 14. nóvember kl. 15:00 hefur verið frestað vegna árásana í París en verða nú haldin mánudaginn 16. nóvember kl. 17:00.
Við mótmælum öllum áætlunum um virkjanir, uppistöðulón, vegi og raflínur á hálendi Íslands, eins stærsta ósnorta landsvæðis af mönnum sunnan heimskautabaugs.
Við mótmælum stóriðju og öðrum vanhugsuðum skammtímalausnum í orkuframleiðslu og atvinnubúskap.
Náttúra íslands er ekki eign tímabundinna handhafa yfirvalds. Gerum miðhálendi Íslands að þjóðgarði og stöndum vörð um náttúruarf og menningu okkar!
Verndum hálendið fyrir valdhöfum í leit að skyndigróða á kostnað komandi kynslóða. Hlúum að náttúrunni og frekari uppbyggingu í kringum ferðamennsku, sem er okkar helsti atvinnubúskapur í dag.
Það er kominn tími til að virkja sköpunarkraft okkar!
Birt:
Tilvitnun:
Ungir umhverfissinnar „Verndum hálendið - Virkjum sköpunarkraftinn - ATH! Breytt tímasetning“, Náttúran.is: 15. nóvember 2015 URL: http://nature.is/d/2015/11/10/verndum-halendid-virkjum-skopunarkraftinn/ [Skoðað:23. apríl 2026]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 10. nóvember 2015
breytt: 15. nóvember 2015


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: