Eiga náttúruvernd og ferðaþjónusta samleið?
- Staðsetning
- Þjóðminjasafn Íslands Suðurgata 41
- Hefst
- Miðvikudagur 04. nóvember 2015 12:15
- Lýkur
- Miðvikudagur 04. nóvember 2015 13:15
Tengt efni
Eiga náttúruvernd og ferðaþjónusta samleið?
Miðvikudaginn 4. nóvember kl. 12:15 - 13:15 standa Náttúruverndarsamtök Íslands og Landvernd fyrir fyrirlestri Brent Mitchell í samstarfi við Landgræðsluna, Vatnajökulsþjóðgarð, Þingvallaþjóðgarð og Umhverfisstofnun/þjóðgarðinn Snæfellsjökli. Fyrirlesturinn fer fram á ensu og verður haldin í fyrirlestrarsal Þjóðminjasafnsins.
Náttúra Íslands er hornsteinn vaxandi ferðaþjónustu, atvinnugreinar sem færir landsmönnum mestan erlendan gjaldeyrir. En geta markmið verndar og nýtingar farið saman? Hvernig er unnt að efla starf stjórnvalda, hagsmunaaðila og almennings í verndun þessarar auðlindar? Á að markaðssetja Ísland á grundvelli vistvænnar ferðamennsku (e. Ecotourism)? Ætti að friðlýsa stærri svæði og stofna fleiri þjóðgarða? Hvernig er best að vinna að samstöðu hagsmunaaðila við slíka vinnu og er hægt að auka þátttöku almennings í ferlinu?
Brent Mitchell, sem er bandarískur sérfræðingur um þjóðgarða, friðlýst svæði og leiðir til að efla starf almennings og félagasamtaka í náttúruvernd mun miðla af víðtækri reynslu sinni af slíkum málum í fyrirlestrinum. Hann mun meðal annars ræða um hvernig samstillt náttúruverndarátak yfirvalda og annarra hagsmunaaðila í Kosta Ríka hefur orðið til þess að landið er talið eitt hið fremsta á sviði vistvænnar ferðamennsku og einn helsti áfangastaður ferðamanna sem sækjast eftir náttúruupplifun.
Brent Mitchell hefur komið að þróun og innleiðingu verkferla um vernd landslagsheilda og uppbyggingu náttúruverndar víða um heim. Ljóst er að hann hefur af mörgu að miðla sem nýst getur í umræðu og stefnumörkun um þessi mál hér á landi. Það á meðal annars við um þær hugmyndir sem eru uppi um stofnun þjóðgarðs á Miðhálendi Íslands.
Ferill Brents á þessu sviði hófst þegar hann vann að stofnun fyrstu þjóðgarðanna á Haiti og víðar á þeim slóðum. Hann vinnur nú hjá Quebec Labrador Foundation við það m.a. að auðvelda kaup á landi til sérstakrar verndunar í austanverðu Kanada og á Nýja Englandi og þróun vinnubragða í verndun náttúrulegra auðlinda og menningarlegrar arfleifðar á grunni „ráðsmennsku“ (land stewardship). Hann er einn af stofnendum U.S. National Park Service Stewardship Institute (áhugaverðrar „áhugastofnunar“ sem styður við þjóðgarðana með margvíslegum hætti). Hann er leiðandi meðhöfundur nýrrar samantektar um vernd landslagsheilda í BNA, fráfarandi forseti samtaka sérfræðinga um verndun svæða í BNA og er virkur í alþjóðlegum þjóðgarðamálum.
Birt:
Tilvitnun:
Landvernd „Eiga náttúruvernd og ferðaþjónusta samleið?“, Náttúran.is: 29. október 2015 URL: http://nature.is/d/2015/10/29/eiga-natturuvernd-og-ferdathjonusta-samleid/ [Skoðað:23. apríl 2026]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: