Juliet Schor um deilihagkerfið
- Staðsetning
- Aðalbygging Sæmundargata 2
- Hefst
- Föstudagur 30. október 2015 09:00
- Lýkur
- Föstudagur 30. október 2015 11:00
Tengt efni
Samneysla: Nýtt fyrirbæri eða sama gamla neysluhyggjan?
Föstudaginn 30. október heldur Juliet Schor, prófessor í félagsfræði við Boston College og höfundur fjölmargra bóka og fræðigreina um neyslusamfélag nútímans fyrirlestur um deilihagkerfið í boði rannsóknarverkefnisins „The Reality of Money“ við Heimspekistofnun, Landverndar og Háskóla Íslands á Þjóðarspeglinum í HÍ. Pallborðsumræður í lokin.
Dagskrá:
- Juliet Schor. Samneysla: nýtt fyrirbæri eða sama gamla neysluhyggjan?
- - Pallborðsumræður að loknu erindi próf. Schor.
Í pallborði verða:
- Gunnar Ó. Haraldsson, forstöðumaður Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands
- Rakel Garðarsdóttir, stofnandi VAKANDI
- Sigurður Eyberg Jóhannesson, náttúrufræðingur
- Málstofustjóri verður Ragna B. Garðarsdóttir, dósent í félagssálfræði við Sálfræðideild HÍ.
Í erindi sínu mun Juliet Schor fjalla um deilihagkerfið. Hún mun velta upp þeirri spurningu hvort deilihagkerfið sé sú töfralausn frá umhverfismengandi einnota samfélaginu sem því var ætlað að vera eða enn eitt gróðatækið. Um þessar mundir vinnur próf. Schor að bók um þetta efni.
Juliet Schor er prófessor í félagsfræði við Boston College. Áður kenndi hún við hagfræðideild Harvard í 17 ár. Hún er afkastamikill höfundur og hefur skrifað fjölda bóka og vísindagreina um afleiðingar neyslusamfélaga nútímans. Nýjasta bók hennar heitir Plentitude. Í henni fjallar Schor um hnignun vistkerfa út frá hagfræðilegu og félagsfræðilegu sjónarhorni. Hún leggur til róttækar breytingar á lífsmáta og lífsgildum nútímamannsins og því hvaða skilning við leggjum í neysluvarning.
Birt:
Tilvitnun:
Landvernd „Samneysla: Nýtt fyrirbæri eða sama gamla neysluhyggjan?“, Náttúran.is: 28. október 2015 URL: http://nature.is/d/2015/10/28/samneysla-nytt-fyrirbaeri-eda-sama-gamla-neysluhyg/ [Skoðað:30. apríl 2026]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: 3. nóvember 2015


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: