Málþing um þátttöku almennings í stjórnun umhverfismála
- Staðsetning
- Þjóðminjasafn Íslands Suðurgata 41
- Hefst
- Miðvikudagur 23. september 2015 13:00
- Lýkur
- Miðvikudagur 23. september 2015 16:00
Tengt efni
Þátttaka almennings í stjórnun umhverfismála
Landvernd og Arnika, tékknesk náttúrverndarsamtök, boða til málþings í Þjóðminjasafninu miðvikudaginn 23.september milli kl 13:00 og 16:00.
Málþingið mun fjalla um aðkomu almennings að ákvarðantöku í umhverfismálum. Talsmenn Arniku flytja fyrirlestra um mengandi starfsemi og eiturefnaúrgang og þá aðstoð sem þau veita almenningi til þess að efla lýðræðslega þátttöku hans þegar kemur að umhverfismálum. Aðilar frá stjórnvöldum og fyrirtækjum munu flytja stutt erindi um sýn sína á þátttöku almenning og svara spurningum í lok málþings.
Landvernd mun einnig fjalla um viðleitni samtakanna til að styðja við og auka þátttöku almennings í ákvarðanatöku um umhverfismál.
Málþingið fer fram á ensku. Sjá nánar á vef Landvernar.
Birt:
Tilvitnun:
Guðmundur Ingi Guðbrandsson „Þátttaka almennings í stjórnun umhverfismála“, Náttúran.is: 15. september 2015 URL: http://nature.is/d/2015/09/15/thatttaka-almennings-i-stjornun-umhverfismala/ [Skoðað:21. apríl 2026]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: